Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1927, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.05.1927, Blaðsíða 19
H5 svo dauSans lítiÖ um og látum okkur svo dauðans lítið dreyma um dýrð og dásemdir Drottins. Við erum öll svo dauðans vantrúuð. Eða réttara sagt, við erum í andlegum efnum svo dauðlega dofin. Við gefum okkur ekki að því, að njóta dýrðarmyndanna, sem oss eru sýndar í Guðs orði. Við lokum sjálfir fyrir okkur ljóssins heima og leyfum sjálfum okkur ekki til hlýtar að dreyma um það, sem á að verða hlutskifti okkar innan skamms. Eða hvað oft hefir þú, vinur minn, setið með myndina af Jesú, sem þú átt geymda í nýja testamentinu þínu, í höndum þér, horft á hana föstu augnaráði, og látið þig svo dreyma um það, þegar þú færð að sjá hann sjálfan,—gert þér í hugarlund, hvernig hann verði útlits, hvernig hann taki á móti þér. Þetta er ekkert hégómatal, á ekkert skylt við veiklað drauma- og tilfinninga-fum. Langt frá því. Svo framarlega sem þú ert kristinn maður, þá er Jesús þér langmesti og sannasti raunveruleiki lífsins. Og hér er um staðreynd að ræða,—staðreynd sem staðfest er af honum sjálfum, að þú eigir að fá að sjá hann. H'vort getur þá nokkur stilt sig um að hugsa til þess, hlakka til þess, búa sig undir það, gera sig sem hæfastan til þess, og vera svo hreinn og flekklaus, sem verða má, svo maður þurfi sem minst að fyrirverða sig, þegar maður fær innan skamms að standa augliti til auglitis við herran Jesú. —Eg er að hugsa um það, hvort við, sem hér erum á helgri foæna- stund í Guðs húsi þetta kvöld, ekki getum öll, með leiðsögn heil- ags anda, látið augun aftur, og gert oss mynd af honum, honum sem við öll eigum að fá að sjá—innan skamms. Og svo er þá hið annað atriði: hvar það verður, sem við fá- um að sjá hann. Það tekur hann sjálfur fram. Það verður hjá föðurnum. “Eg fer til föðursins,” segir Jesús. Það verður í hús- um okkar himneska föðurs, að við hittum frelsarann. Þar segist hann og munu hafa stað tilreyddan handa okkur öllum. Eg veit það þarf ekki að gera neinum þeim manni, sem lært hefir að hugsa á andlega vísu, grein fyrir því, hv'ar föðurhúsið sé. Til andans heima nær enginn landafræði. Við köllum bústaði Guðs “himna” og ríki hans “himnaríki,” af því við viljum tileinka þvi eðli hins háa og heilaga. En Guðs ríki og hús vors himneska föð- ur á engin takmötk. Það er ejns stórt eins og heimur andans er. Það er eins stórt eins og Guð sjálfur, og jafnt alsstaðar eins og Guð er alsstaðar. En þá má segja að við komum heim í okkar föðurhús, þegar við komumst til ljósrar og lifandi vitundar um það, að við erum hjá Guði. Föðurhúsin eilífu eru samfélag vort við Guð í eilífðinni. Þar eigum við að fá að sjá Jesú. Og þar mun hann heyra bænina, sem lærisveinarnir báðu forðum, og við

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.