Fréttablaðið - 16.03.2011, Page 4

Fréttablaðið - 16.03.2011, Page 4
16. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ICESAVE Utankjörfundaratkvæða- greiðsla vegna þjóðaratkvæða- greiðslunnar um Icesave, hefst hjá Sýslumanninum í Reykjavík í dag. Kosið er á skrifstofutíma á milli klukkan 9.00 til 15.30 alla virka daga til 25. mars. Á laugar- dögum er hægt að kjósa á milli 12.00 og 14.00. Frá og með mánudeginum 28. mars fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardalshöll. Sjálf þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram þann 9. apríl. Kosningar um Icesave: Utankjörfundar- staðir opnaðir SAMGÖNGUR Vegagerðin keypti í árs- lok 2009 rannsóknargögn Greiðrar leiðar hf. vegna ganga undir Vaðla- heiði á 100 milljónir króna. Að sögn Hreins Haraldssonar vega- málastjóra rennur þessi upphæð inn í Vaðlaheiðargöng hf. sem hluti hlutafjár Vegagerðinnar í félaginu. Pétur Þór Jónasson, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og fulltrúi Greiðrar leiðar í stjórn Vaðlaheiðarganga, segir stærsta hluta kostnaðarins vegna rann- sóknargagnanna felast í jarðfræði- rannsóknunum og borunum sem gerðar voru undir stjórn Ágústs Guðmundssonar jarðfræðings á árinu 2005. Margar fleiri úttekt- ir liggi einnig að baki, til dæmis varðandi hugsanlegar fornminjar á svæðinu. Í ársreikningi Greiðrar leiðar fyrir árið 2008 eru rannsóknar- gögn félagsins metin á 60,2 millj- ónir króna. Vegagerðin greiddi hins vegar 100 milljónir fyrir gögnin ári síðar, eins og fyrr segir. „Mismunurinn er uppsafnaðar verðbætur sem samkomulag var um að greiddar yrðu ofan á kostn- aðinn,“ útskýrir Pétur Þór og und- irstrikar að aðeins sé um verðbæt- ur að ræða; engir vextir hafi verið reiknaðir ofan á útlagðan kostnað Greiðrar leiðar. - gar Vegagerðin keypti rannsóknargögn um Vaðlaheiðargöng með verðbótum: Seldu gangagögnin á 100 milljónir LÖGREGLUMÁL Tollverðir á Kefla- víkurflugvelli handtóku fyrir skömmu tvo pólska ríkisborg- ara með fljótandi amfetamín- basa sem breyta má í átta kíló af amfetamíni. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Í fórum mannanna fundust tvær vínflöskur sem reynd- ust innihalda samanlagt um 1,5 lítra af fljótandi amfetamíni. Úr amfetamínbasanum hefði mátt vinna um átta kíló af amfetamíni í neysluformi. Götuverðmæti átta kílóa er um 40 milljónir króna. Mennirnir tveir voru úrskurð- aðir í gæsluvarðhald. - aó Tveir Pólverjar handteknir: Með 1,5 lítra af amfetamínbasa FRÉTTASKÝRING Hvaða fyrirtæki og samtök hafa orðið uppvís að brotum á samkeppnislögum á síðustu árum og hvað hafa þau greitt í sektir? Fyrirtækjum og samtökum var gert, eða þau sömdu um, að greiða samtals rúmlega 2,3 millj- arða króna vegna brota á samkeppnislögum á árunum 2008 til 2010. Skipti, móðurfélag Símans og Tæknivara, greiddu hæstu einstöku sektina á þessu árabili, 400 milljónir vegna ólög- mæts samráðs árið 2010. Árið áður var Símanum gert að greiða 150 milljónir í sekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Hagar hafa á hinn bóg- inn greitt hæstu saman- lögðu fjárhæðina á árunum 2008 til 2010. Fyrstnefnda árið var fyrirtækið sektað um 315 milljónir vegna misnotkunar á mark- aðsráðandi stöðu, um 20 milljónir 2009 vegna brots á banni við framkvæmd samruna og um 270 milljónir í fyrra vegna ólögmæts samráðs. Samtals hefur Högum því verið gert að greiða 605 milljónir vegna brota á samkeppnislögum á þessum þremur árum. Hæsta sekt í einu máli varðaði brot stóru kortafyrirtækjanna sem samið var um lausn á 2008. Var þeim gert að greiða samtals 735 milljónir. Það er lægri fjárhæð en olíufélögin voru sektuð um vegna samráðsmáls þeirra. Sekt þeirra var í fyrstu ákveðin samtals 2,6 milljarðar en áfrýjunarnefnd lækkaði fjárhæð- ina í um einn og hálfan milljarð. Á þessum þremur árum voru fimm samtök fundin sek um brot á samkeppnislögum. Það eru Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðn- aði, Félag íslenskra stórkaupamanna (nú Félag atvinnurekenda), Bændasamtökin, Samtök iðn- aðarins og Samtök verslunar og þjónustu. bjorn@frettabladid.is GENGIÐ 15.03.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 216,4764 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,23 115,79 185,7 186,6 160,94 161,84 21,576 21,702 20,56 20,682 18,187 18,293 1,4055 1,4137 181,69 182,77 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is Sektir vegna samkeppnislagabrota 2008-2010 Ár Fyrirtæki Eðli brots Sektir Eftir 2010 Hagar Ólögmætt samráð 270 milljónir áfrýjun SS og Reykjagarður Ólögmætt samráð 45 milljónir KS Ólögmætt samráð 40 milljónir Norðlenska Ólögmætt samráð 30 milljónir Kjarnafæði Ólögmætt samráð 20 milljónir Lyf og heilsa Misnotkun á markaðsráðandi stöðu 130 milljónir 100 milljónir Skipti, Síminn og Tæknivörur Ólögmætt samráð 400 milljónir Samt. atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði Ólögmætt samráð 4 milljónir Ívar Brot á tilkynningaskyldu vegna samruna 12 milljónir 2009 Síminn Misnotkun á markaðsráðandi stöðu 150 milljónir Félag íslenskra stórkaupmanna Ólögmætt samráð 1 milljón Bændasamtök Íslands Ólögmætt samráð 10 milljónir 7 milljónir Vélar og verkfæri Misnotkun á markaðsráðandi stöðu 15 milljónir 10 milljónir Hagar Brot á banni við framkvæmd samruna 20 milljónir Sena Brot á banni við framkvæmd samruna 15 milljónir Teymi Ólögmætt samráð 70 milljónir Fengur Brot á banni við framkvæmd samruna 10 milljónir 2008 Valitor Ólögmætt samráð og misn. á markaðsr. stöðu 385 milljónir Borgun Ólögmætt samráð 185 milljónir Fjölgreiðslumiðlun Ólögmætt samráð 165 milljónir Samtök iðnaðarins Ólögmætt samráð 2,5 milljónir Samtök verslunar og þjónustu Ólögmætt samráð 1 milljónir Fiskmarkaður Íslands Misnotkun á markaðsráðandi stöðu 10 milljónir 7 milljónir Geysir Green Energy Brot á tilk.sk. um samruna 500 þúsund Sundagarðar Brot á tilk.sk. um samruna 750 þúsund Hagar Misnotkun á markaðsráðandi stöðu 315 milljónir Samkeppnisbrotasektir 2,3 milljarðar á þremur árum 25 fyrirtæki voru sektuð um samtals 2,3 milljarða króna fyrir brot á samkeppnislögum á árunum 2008 til 2010. Hagar voru brotlegir öll þrjú árin og Síminn tvisvar. Hagsmunasamtök brjóta líka samkeppnislögin. Milljónir borg- uðu Hagar í sektir árin 2008 til 2010 HÚSLEIT Halldór Guðbjarnason forstjóri greinir fjölmiðlum frá viðbrögðum sínum við húsleit samkeppnisyfirvalda í Visa sumarið 2006. Í kjölfar hennar samdi fyrirtækið um að greiða 385 milljónir í stjórnvaldssekt. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. 605 Gegn krabbameini í körlum Í mars renna 100 kr. af hverjum seldum pakka af Nicotinell beint til átaksins Mottumars 100 KRÓNUR Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins ® Víkurskarð AKUREYRI 7,4 km 1 1 V A Ð L A H E I Ð I Vaðlaheiðargöng HREINN HARALDSSON PÉTUR ÞÓR JÓNASSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 16° 10° 7° 2° 14° 11° 1° 1° 18° 15° 16° 14° 28° -3° 16° 15° -2°Á MORGUN Strekkingur með SV- og NA-ströndinni annars hægari. FÖSTUDAGUR Strekkingur allra syðst annars hægari. -4 -8 -6 -8 -4-2 -3-6 -2 -3 -3 -4 0 2 -2 -1 -5 -1 -8 -2 -4 9 10 10 9 6 8 6 5 9 13 4 15 SNJÓKOMA EÐA ÉL verða víða um land næstu daga. Mesta úrkoman verður austanlands í dag en svo léttir heldur til þar. Frost verður á landinu fram á föstudag en svo lítur út fyrir hlýnandi veður. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður Framvísaði röngu vegabréfi Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrítugan Afgana í eins mán- aðar fangelsi fyrir að framvísa röngu vegabréfi við komuna til landsins í fyrradag. Hann kom hingað frá Ósló og framvísaði malasísku vegabréfi manns sem er níu árum yngri. DÓMSTÓLAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.