Fréttablaðið - 16.03.2011, Page 30

Fréttablaðið - 16.03.2011, Page 30
16. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR18 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðs- sonar ■ Pondus Eftir Frode Overli 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. klafi, 8. heldur brott, 9. garðshorn, 11. golf áhald, 12. slappi, 14. yfirstéttar, 16. einnig, 17. áþekk, 18. missir, 20. hljóta, 21. heimsálfa. LÓÐRÉTT 1. að lokum, 3. ógrynni, 4. nennu- leysi, 5. orlof, 7. eldsneyti, 10. saur, 13. óvild, 15. tafl, 16. pota, 19. bók- stafur. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. ok, 8. fer, 9. kot, 11. tí, 12. slaki, 14. aðals, 16. og, 17. lík, 18. tap, 20. fá, 21. asía. LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. of, 4. letilíf, 5. frí, 7. kolagas, 10. tað, 13. kal, 15. skák, 16. ota, 19. pí. ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Diddi, Páll Óskar, Tommi frænka og Ísak koma allir! Ættum við að bjóða okkar ástkæru nágrönnum Pondusi og Báru líka? Tja... Bára er alveg frábær. Ég veit ekki alveg með Pondus! Jáá... hann er stundum svolítið stífur og stuttur í spunann! Ímyndaðu þér svipinn á honum þegar strákarnir draga hann á dansgólfið! Haha- haha! Við getum ekki sleppt þessu! Hvað nú? Hvað með þig og Söru? Vertu rólegur pabbi. Þetta er allt í öruggum höndum. Mamma þín og ég viljum bara að það sé á hreinu að það sé engin áhættustarfsemi í gangi hjá ykkur tveimur. Engar áhyggjur. Það er engin hætta þegar það er engin starfsemi í gangi. Ég vissi að það væri ástæða fyrir því að mér leist svona vel á Söru! Hver er þetta? Þetta er pabbi þegar hann var í menntaskóla. Vá... Ég veit, sítt hár, bartar, flottur jakki... Hann er alger and- stæða við pabba! Já, í hvaða skóla gekk hann eiginlega, And- stöðuskólann? Hey! Hmmm... ákvarðanir ákvarðanir. Í hvað á ég að fara í dag? Ponduuuus? BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi og breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur Háskóli Íslands, Vísindagarðar, breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur . Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir nemendaíbúðum á miðsvæði (M5) við Háskóla Íslands. Heimildir um heildarbyggingarmagn á svæðinu verða óbreyttar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Háskóli Íslands, Vísindagarðar, breyting á deiliskipulagi Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, lóð Vísindagarða. Reiturinn afmarkast af Eggertsgötu, Oddagötu og Sturlugötu. Í tillögunni er gert ráð fyrir byggingu Vísindagarða og byggingum fyrir Háskóla Íslands á 3-4 hæðum þar sem fjórða hæðin er inndregin. Einnig er gert ráð fyrir húsum undir stúdentagarða meðfram Oddagötu á tveimur og hálfri hæð og fjórum hæðum að Sæmundargötu. Áður auglýst tillaga hefur verið felld niður og er hagsmunaaðilum bent á að eldri innsendar athugasemdir hafa fallið úr gildi. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér tillöguna og senda athugasemdir og ábendingar til skipulagsstjóra Reykjavíkur. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 16. mars 2011 til og með 2. maí 2011. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 2. maí 2011. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 16. mars 2011 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Stundum er sagt að stjórnmál séu list hins mögulega. Að sama skapi eru flutningar list hins flytjanlega. Hryggj- arstykkið í flutningum er vitaskuld flutningsteymið. Mundu að sama hversu stóra hönk þú átt upp í bakið á vinum þínum munu þeir ósjálfrátt leiða hugann að því hvort þeir geti komið sér undan þessari kvöð. Þetta er ekki mælikvarði á trúfestu þeirra; að flytja búslóð er ein- faldlega eitt það leiðinlegasta sem mann- skepnan tekur sér fyrir hendur og það er eðlilegt að vilja komast undan því. Nokkr- ar leiðir eru þó til að sporna við þessu. LEITAÐU liðsinnis með góðum fyrir- vara, þó ekki of miklum. Þú vilt ekki að fólk noti lítinn fyrirvara sem afsökun fyrir að komast ekki. Á hinn bóginn má fyrirvarinn ekki vera svo mikill að sá sem hringt er í geti fundið afsök- un fyrir forföllum í skjóli þess að þú hafir enn nægan tíma til að finna stað- gengil. EKKI byrja á að spyrja hjálparhell- una lokaðra spurninga um hvort hún geti veitt liðveislu á til- teknum degi. Það gefur henni færi á að fara undan í flæmingi. Byrjaðu á opinni spurningu til að úti- loka að viðkomandi sé upptekinn, til dæmis „ertu að gera eitthvað sérstakt á laugardaginn?“ Þegar hjálparhellan svarar neitandi læturðu vaða. AF liðléttingum má hvorki vera of né van. Ef flutningsteymið er of fjölmennt er hætt við að sumir freistist til að fara snemma og fyrr en varir er enginn eftir. Það þarf að muna um hverja hönd; rannsóknir sýna að fólk lætur sig síður hverfa ef það sér fram á að það myndi setja strik í reikninginn. HREINSKILNI borgar sig ekki. Auðvitað á að skipuleggja flutninga þannig að þeir taki fljótt af. Tiltækum höndum fækkar hins vegar í beinu hlutfalli við hversu hreinskiptinn þú ert varðandi tímaáætl- un. Dragðu alltaf um þriðjung af áætluð- um flutningstíma. Gerðu lítið úr umfangi búslóðarinnar og haltu til hlés aukaatriðum á borð við að áfangastaðurinn sé á fjórðu hæð í lyftulausri blokk. Ef vinur þinn mætir á annað borð fer hann trauðla fyrr en verkinu er lokið. LOFAÐU veitingum, jafnvel bara til mála- mynda. Það er enginn að fara að troða sig út af pitsu sem er borin fram í miðjum flutn- ingum og enginn þjórar bjór í miklu magni kófsveittur og örmagna klukkan hálf fimm á laugardegi. Hvort tveggja verður þó að vera til staðar; aðeins rustar snuða um veit- ingar. Í versta falli siturðu uppi með mat og drykk sem endist þér í nokkra daga. Það gæti verið verra. Vel flutt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.