Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 16
16 30. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR Endurútreikningar frá fjármála-stofnunum vegna ólögmætra erlendra lána streyma nú inn um lúgur landsmanna. Margir hafa gagnrýnt endurútreikningana og bent hefur verið á að afturvirkur vaxtaútreikningur standist hugs- anlega ekki lög. Ekki er ætlunin að velta vöngum yfir réttmæti þess heldur einungis skoða þær aðferð- ir sem lánastofnanir eru að beita og bera saman við aðferðarfræð- ina sem lögfest var í árslok 2010. Með lögum nr. 151/2010 var lögfest sérregla í 18 gr. laga nr. 38/2001 um þá aðferðarfræði sem beita ætti við endurútreikn- ing lánasamninga sem hefðu að geyma ákvæði um ólögmæta vexti og verðtryggingu. Aðferðin er sú að upphaflegur höfuðstóll skal vaxtareiknaður miðað við vexti Seðlabanka Íslands. Frá höfuðstól og áföllnum vöxtum skal síðan draga frá innborganir miðað við hvern greiðsludag og ráðstafa upp í áfallna vexti og höfuðstól. Skýrt kemur fram í greininni að einungis er heimilt að vaxtareikna upphaf- legan höfuðstól. Í athugasemdum með frumvarpi laganna er skýrt tekið fram að ekki sé heimilt að krefjast vanskilavaxta né annarra vanskilaálaga. Ákvæðið er tæm- andi um hvaða vaxtaútreikningi megi beita á hin ólögmætu lán. Þannig er ekki heimilt að reikna dráttarvexti, ígildi dráttarvaxta né heldur bæta vöxtum við höfuð- stól skv. 12 gr. laganna enda tengist slík aðgerð vanskilum sbr. umfjöll- un um þá grein í frumvarpi laga nr. 38/2001. Ákvæðið um endur- útreikning ólögmætra lána var ætlað að vera skýrt og skilvirkt. Undirritaður hefur skoðað endur útreikninga SP fjármögnun- ar, Frjálsa fjárfestingarbankans og Arion banka. Arion banki og Frjálsi beita sömu aðferðarfræð- inni en SP fjármögnun annarri. Báðar þessar aðferðir eru í ósam- ræmi við framangreinda aðferð- arfræði laganna og ganga báðar á hagsmuni lántakenda. SP fjármögnun beitir þeirri aðferðarfræði að endurreikna greiðsluflæði lánsins eins og það hefði átt að vera miðað við breytta vexti. Á hverjum gjalddaga er end- urreiknaður gjalddagi færður inn á ímyndaðan veltureikning og á móti eru færðar raunverulegar greiðslur á greiðsludegi. Staða hins ímyndaða veltureiknings er síðan vaxtareiknuð við hverja hreyfingu. Ef lántaki greiddi alltaf útsenda greiðsluseðla á gjalddaga og heildarfjárhæð hvers gjald- daga var hærri en endurútreikn- aðir vextir leiðir útreikningurinn af sér sömu niðurstöðu og aðferð- arfræði laganna. Flestir eiga sögu um að hafa einhvern tíma greitt eftir gjalddaga, svo ekki sé talað um þá sem sömdu við fyrirtækið um frystingu greiðslna. Við þær aðstæður reiknar SP fjármögnun ígildi refsivaxta og vaxtavaxta sem er algerlega óheimilt sam- kvæmt lögunum. Hér getur munað tugum ef ekki hundruðum þús- unda til óhagræðis fyrir skuldara. Fjármálastofnanirnar sem veittu íbúðalán virðast flestar ætla að beita annarri aðferðar- fræði en fjármögnunarfyrirtæk- in. Aðferðin gengur út á það að höfuðstóll skuldarinnar er vaxt- areiknaður miðað við vexti Seðla- bankans. Á sérhverju 12 mánaða tímabili er áföllnum vöxtum bætt við höfuðstól og í framhaldinu eru vextir reiknaðir af samanlögðum áföllnum vöxtum og höfuðstól. Sömu aðferð er beitt á innborganir og mismunurinn sagður vera nýr höfuðstóll. Hafi verið greitt reglu- bundið meira en sem nemur tæp- lega endurútreiknuðum vöxtum er aðferðin hagstæðari fyrir lán- þega. Slík staða lánþega heyrir því miður til undantekninga og hafi menn samið um frystingar eða greiðslulækkun verður munurinn enn meiri, lánþega í óhag. Eins og áður segir er þessi aðferðarfræði andstæð lögunum og getur jafnvel munað milljónum sem fjármála- stofnanirnar eru að ofreikna stöðu einstakra lánasamninga. En hvers vegna eru fjármála- fyrirtækin að beita mismunandi aðferðum við endurreikninginn, þrátt fyrir skýra og skilvirka aðferðarfræði laganna? Svarið getur ekki legið í öðru en því að fyrirtækin rói að því öllum árum að finna aðferð sem hentar þeim best til að hámarka eigin lánasöfn. Þetta reyna þau að gera innan ramma laga um vexti og verð- tryggingu í heild sinni en ekki út frá þeirri uppgjörsreglu sem sett var sérstaklega gagnvart endur- útreikningi hinna ólögmætu lána. Húsnæðislán eru til langs tíma með lága afborgun af höfuðstól en bílasamningar til skamms tíma með háa afborgun af höfuðstól. Því hentar ekki sama aðferðar- fræðin til að hámarka útkomuna vegna lána til lengri tíma og lána til skamms tíma. Ef aðferðarfræði bankanna, sem beitt er á húsnæð- islánin, er beitt á bílasamninga leiðir það til meiri lækkunar á bílalánunum en þegar hefur verið kynnt. Ekki er hægt að túlka aðferðar- fræði fjármálafyrirtækjanna öðruvísi en sem alvarlega tilraun til að hagnast óeðlilega á kostnað lántakenda. Að mati undirritaðs getur verið um milljarða króna að ræða sem fyrirtækin eru að hafa af lánþegum með ólögmætum hætti. Það eitt og sér að fjármála- fyrirtækin beita ekki sömu aðferð- um við endurútreikninginn ætti að klingja bjöllum hjá eftirlitsaðilum um að ekki sé allt með felldu. Hér er rannsóknar þörf. Rangur endurútreikn- ingur ólöglegra lána Erlend lán Gunnlaugur Kristinsson löggiltur endurskoðandi Báðar þessar að- ferðir eru í ósam- ræmi við framangreinda aðferðarfræði laganna og ganga báðar á hagsmuni lántakenda. Látum ei fornar nýlenduþjóðir beygja okkur vegna óráðsíu og siðleysis í einkafyrirtæki, en rök eru öll okkar megin þar sem þetta er helzt; 1. Þeir sem gerst þekkja til Icesave-málsins telja að bóta- skylda sé ekki til staðar frá þjóð- inni. 2. Hví forðast viðsemjendur málsókn eins og heitan eldinn? 3. Hvað hafa brezkir valdið miklu tjóni með hryðjuverkalög- um og yfirtöku á banka – senni- lega margföld Icesave-krafan. 4. Hví skulum við ekki standa stolt, óbeygð og óbuguð, eins og þegar við færðum út landhelg- ina og lögðum heimsveldið. 5. Verði dæmt í málinu, eru yfirgnæfandi líkur á sigri. 6. Hví að skuldfæra fædda sem ófædda Íslendinga um langa framtíð um óþekkta upp- hæð, sem gæti verið allt að 200 milljarðar, sem er um 600 þús. á hvert mannsbarn í landinu. 7. Fólk erlendis verður stolt af okkur ef við fellum þennan ósóma, því víða er fólk að súpa seyðið af alls konar fjármála- sukki. Nú í júní eru 200 ár frá fæð- ingu Jóns Sigurðssonar, sem keikur gekk gegn nýlenduherr- um og megum við ekki vanvirða og smána minningu hans með því að samþykkja þessi ólög. Heldur skal í minni og heiðri haft hans mottó: Að vera sverð Íslands, sómi þess og skjöldur. Gjör rétt – þol ei órétt Icesave Friðgeir Haraldsson atvinnurekandi AF NETINU Foreldrar 200.000, borgin 1,2 milljónir á ári að meðaltali Ekki vita allir að hvert leikskólabarn kostar að meðaltali 1,4 milljónir á ári. Hlutur foreldra (leikskólagjöldin) er að meðaltali rúmlega 200.000 krónur á ári. Ég er stolt af því að hafa forgangsraðað í þágu stærsta árgangs Íslands- sögunnar (börn fædd 2009). Það útheimtir mikla fjármuni og þess vegna þarf að hagræða á móti. Í haust fara 1500 börn í 1. bekk, börn fædd 2005. Börnin sem verða tveggja ára á árinu – og þurfa leikskólapláss – eru langtum fleiri, eða á milli 1800-1900 talsins. Þessi meirihluti forgangsraðaði í þeirra þágu. Þessi meirihluti jók framlög til Leikskólasviðs um 658 milljónir króna á milli ára við gerð síðustu fjárhags- áætlunar. Stór hluti þeirrar viðbótar er til að koma til móts við þennan stóra árgang. Okkur sem stjórnum í Reykjavík fannst óhugsandi að færa leikskóla- þjónustuna aftur til þess sem Reykvíkingar þekktu áður en Reykjavíkurlistinn kom til sögunnar. Árið 1994 komust börn inn á leikskóla rúmlega þriggja ára – og í boði var vistun hálfan daginn fyrir hjón. oddny.eyjan.is Oddný Sturludóttir Fagor hitakútar TB W A \P IP A R • S ÍA • 1 00 81 4 45.900 49.900 56.900 65.900 73.900 82.900 97.900 11 20 H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Vísinda- og tækniráðs 2011 Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er styrki stoðir mannlífs á Íslandi. Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2011. Verðlaunin eru tvær milljónir króna. Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu. Við val á verðlaunahafa er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 20. apríl 2011. Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is Nánar á www.rannis.is Tilnefningar óskast! Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.