Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 28
30. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR20 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is Skalli við Vesturlandsveg hefur um árabil verið með vinsælli vegasjoppum landsins. Margir verða því sjálfsagt undrandi yfir því að fyrirtækið ætli að flytja starfsemi sína í vikunni. „Ég er mjög vonsvikinn. Hefði gjarnan viljað vera hér áfram, sérstaklega þar sem vel hefur gengið síðustu ár eftir að reksturinn fór almennilega í gang. Hins vegar var okkur bara ekki gefinn kostur á því,“ segir Jón Viðar Magnússon, sem hefur rekið Skalla frá því að fyrirtækið hóf starfsemi sína í Lækjargötu fyrir fjörtíu árum. Hann opnaði söluturn- inn við Vesturlandsveg fyrir tæpum átján árum en þarf nú frá að hverfa þar sem Skeljungur vill ekki framlengja húsa- leigusamninginn við fyrirtækið. „Þetta er ekki spurning um hærri húsaleigu; við vorum alveg tilbúin að greiða meira. Ég heyrði því aftur á móti fleygt fram að okkur gengi einfaldlega of vel og Skeljungur sæi sér því leik á borði með því að opna eigin starfsemi í hús- næðinu,“ segir Jón Viðar, sem ætlar ekki að leggja árar í bát þótt á móti blási heldur opna sjoppu undir merkjum Skalla á nýjum stað á föstudag. „Eftir langa leit fann ég loks fullkominn stað í Ögurhvarfi 2, við hliðina á Til sjávar og sveita. Þetta er rúmgott húsnæði í miðri byggð og mikil umferð allt um kring,“ segir Jón Viðar en viðurkennir þó að blendnar tilfinningar fylgi flutning- unum. „Þótt gaman verði að opna á nýjum stað erum við að stinga okkur í djúpu laugina og maður á eftir að sakna fasta- kúnnanna sem hafa átt þátt í að gera starfið skemmtilegt.“ Jón Viðar segir fleiri breytingar fyrirhugaðar, þar á meðal á matseðli. „Lúgan og skyndibitinn, hamborgarar og fransk- ar verða á sínum stað en meiri rækt verður lögð við pitsur og ís en áður,“ segir hann og bætir við að eins verði nokkrir heilsuréttir á boðstólum. „Ég vil þó taka fram að óhollusta er í algjörum minnihluta þótt öðru sé stundum haldið fram; sem dæmi fer úrvals kjöt, gróft brauð og ferskt grænmeti í hvern borgara og sósan er eina óhollastan en það er alfarið undir hverjum og einum komið hvað mikið er notað af henni og frönsku kartöflurnar eru það eina sem fer í djúpsteik- ingarpottinn.“ Jón Viðar ætlar eftir sem áður að standa vaktina í Skalla og nýtur meðal annars liðsinnis fjölskyldunnar. „Konan hefur verið með mér í þessu frá upphafi og börnin líka. Svo taka barna- og barnabarnabörnin stundum þátt, svona þegar þau eru ekki í skólanum og allir ganga í öll verk. Þannig að oft er glatt á hjalla hjá okkur,“ segir hann og brosir. roald@frettabladid.is SKALLI VIÐ VESTURLANDSVEG: FLYTUR Farsæll söluturn færir sig um set FLYTUR Jón Viðar neyðist til að loka Skalla við Vesturlandsveg. Hann ætlar að opna nýjan söluturn og ísbúð undir merkjum fyrirtækisins í Ögurhvarfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 38 AUÐUR JÓNSDÓTTIR rithöfundur er 38 ára.„Almennt held ég að fólk í pólitískum stöðum skiptist á að koma manni ánægjulega og illa á óvart.“ Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Guðlaugs Jóhannessonar rafvirkjameistara. María Másdóttir Már Guðlaugsson Sigrún Sif Karlsdóttir Kristófer Másson Tryggvi Másson Þórir Guðlaugsson Andri Snær Þórisson Sævar Þór Þórisson Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur, Bergþór Friðriksson frá Fáskrúðsfirði, sem lést 24. mars, verður jarðsettur frá Garðakirkju þann 1. apríl kl. 13.00. Elín Þorsteinsdóttir Bjarni Sigmar Gréta Ingvaldur Hanna Þóra Ómar Friðrik Kristborg Árný Bára Ægir Ingibjörg Margrét Steinunn Guðfinna Stefán Berglind Aðalsteinn Linda Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Ásthildur Michelsen lést föstudaginn 25. mars og verður jarðsungin frá Guðríðarkirkju föstudaginn 1. apríl kl. 15.00. Lúðvíg Thorberg Helgason Guðný Bergdís Lúðvígsdóttir Brynjar Olgeirsson Birgir Freyr Lúðvígsson Ingigerður Arnarsdóttir Fjölnir Lúðvígsson Ingibjörg Margrét Kristjánsdóttir Björn Fjalar Lúðvígsson Hildur Myrna Lobrigo Frank Snær Lúðvígsson börn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Árni Ásgrímur Pálsson Álfkonuhvarfi 31, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 27. mars sl. Útför hans fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 6. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsam lega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Linda Gústafsdóttir Ágústa H. Árnadóttir Sigurjón Ingvarsson Páll Árnason G. Harpa Jóhannsdóttir Ómar Þór Árnason Rakel Lindberg Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Katrín Ágústa Thorarensen Hólmgarði 2a, Keflavík, lést á Grensásdeild Landspítalans laugardaginn 12. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey frá Keflavíkurkirkju að ósk hinnar látnu. Ragnheiður Thorarensen Theodór Jónsson Andrea Thorarensen Skúli Theodórsson Dagný Erlendsdóttir Thelma Theodórsdóttir Elvar Sturluson Andrea Theodórsdóttir Valur Ingólfsson Katrín Thorarensen Ólafur Númason Kristín Thorarensen Davíð Hreinsson Sigurjón Harðarson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigríðar Friðriksdóttur frá Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistfólks fjórðu hæðar Hrafnistu Reykjavík fyrir frábæra umönnun. Jón Berg Halldórsson Helga Sigurgeirsdóttir Guðmundur Meyvantsson Halldór Berg Jónsson Hrönn Helgadóttir Sigurbjörg Jónsdóttir Jóhannes Helgason Ólafur Þór Jónsson Guðrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir og afi, Karl Helgason fv. kennari á Akranesi, Gullsmára 9, Kópavogi, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 25. mars. Útför hans fer fram frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ föstudaginn 1. apríl kl. 13.00. Már Karlsson Fanney Leósdóttir Þröstur Karlsson Anna H. Gísladóttir og barnabörn. Sigurður Magnússon fv. framkvæmdastjóri, Klapparstíg 1, Reykjavík, andaðist sunnudaginn 27. mars. Jarðarför fer fram föstudaginn 1. apríl kl. 15 frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Íþróttasamband fatlaðra. Sigrún Sigurðardóttir Sigurður Rúnar Sigurðsson Ágúst Birgisson Jóhann Sigurðsson Agnes Elva Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigrún Jónsdóttir frá Brautarholti, lést laugardaginn 26. mars á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 2. apríl kl. 14. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á MS-félagið, sími 568-8620. Guðríður Svala Haraldsdóttir Ólafur Haraldsson Alda Rut Sigurjónsdóttir Daníel Ingi Haraldsson Steinunn Ásta Guðmundsdóttir Halldór Friðrik Haraldsson Arna Pálsdóttir Katrín Lilja Haraldsdóttir Reynir Sigursteinsson Guðrún Birna Haraldsdóttir Gísli V. Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. Guðríður Svala Haraldsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.