Sameiningin - 01.08.1919, Page 3
1*59
Menningar-framför öll á hraðri siglingu fyrir beggja skauta
byr. 0g þeir, sem helzt réðu ferðum og þóttust einnig ráða
veðrum, töldu örvita þá, sem hægar vildu fara og óttuðust
að ekki mundi stýrt til “Góðhafna”, þótt úr “Góðhöfnum”
hefði verið dregið upp segl. En ef veðurathuganir hefðu
verið gleggri, þá hefði orðið vart við bliku, sem var að draga
upp á loftið. En ljómi menningarinnar huldi hana. Um
hana var haft svo hátt. Um dýrð hennar svo digurmann-
lega talað, og á hana bent með bragar-móði, svo að framtíð-
ar-himininn logaði af ljóma hennar eins og heiðríkur haust-
himininn við norðurheimskaut, “með bragandi norðljósa
log.” En—“Loki bundinn beið í gjótum.”
Svo slitnuðu böndin, menningar-böndin, sem talin voru
hin ágætustu. En þau reyndust enginn Gleipnir. “Úlfur-
inn” hristi sig og — böndin hrukku sem brendur þráður í
sundur. Og—
“Titraði jökull, æstust eldar,
öskraði djúpt í rótum lands,
eins og væru ofan feldar
allar stjörnur himna ranns;
eins og ryki mý eða mugga,
margur gneisti um loftið fló;
dagur huldist dimmum skugga,
dunaði gjá og loga spjó.”
Inni í öllu þessu heimsróti var nú kirkjan—úti í öskr-
andi og æðandi storminum. Og svo er henni kent um af
mörgum. Hún hafði unnið svona illa. Og bundið svona
illa “úlfinn.”
Með þessu var hún að vísu viðurkend sem stórveldi í
heiminum, eins og hún hefir verið og er, þótt ekki ætti það
að vera slík viðurkenníng. En einhverjum þurfti um að
kenna. Og þá fanst sumum hægast, að láta það koma niður
á kirkjunni. Og vitaskuld var hún ekki saklaus. Og margt
má finna að hjá henni, bæði að því, sem hún gerði og eins
lét ógert. .En muna verður á sama tíma það, sem frelsar-
inn sagði við Gyðinga: “J7ið vilduð ekki.” peir vildu þá
ekki þiggja. póttust vita betur, hvað til friðar heyrði.
Svo hefir það verið, og er enn. Enginn fær varpað allri sök
af sér.
peir, sem kalt var til kirkjunnar og vildu daga hennar
talda, glöddust, því þeir töldu sér trú um, að nú kæmi í ljós
það, sem þeir höfðu einlægt sagt, að hún hefði engan rétt á
sér og væri engin guðleg stofnun. Hún hefði verið búin til