Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1919, Page 4

Sameiningin - 01.08.1919, Page 4
160 af prestunum, til þess að halda fólki í þrældómi. Nú riði þessi stormur henni að fullu. Nú yrði hún hrakin út á “Syrtuna”, ofan í sandbleytuna, botnlaust vítið, sem hún hefði tilbúið öðrum, en þar sem hún sjálf ætti heima. Ónei! það er engin hætta á því. Ekki frekar en með postulann Pál. Kirkjan er Drottins stofnun, og stendur og mun standa, þrátt fyrir allar hrakspár nú sem fyr. Ekki þó vegna afburða meðlima hennar og ágætis, heldur vegna þess, að Drottinn er með henni. Hann sagði sjálfur: Sjá, eg er með yður alla daga, alt til enda veraldar. Og heitorð sín heldur hann. Vilja hefir hann bæði og máttinn. Ef vér trúum á hann, þá treystum vér því. Og enginn, sem hon- um hefir treyst, hefir þurft að láta æðrast, hvernig sem blásið hefir. Hann sér um að hún berist ekki út á “Syrtuna” og ferst ekki þar, þótt meðlimir hennar sumir, bæði háir og lágir, kunni að berast út þangað og láta fyrirberast þar. Hans vegna fær hún staðið af sér alla storma og komist hreinsuð út úr hverri eldraun. En minnumst þess á sama tíma, að skrifað er: Drott- inn agar hvern þann, sem hann eiskar. Og líka hins, er segir: Dómurinn byrjar á Drottins húsi. Og dómur Drott- ins gekk yfir allan heim með heimsstríðinu mikla. En lít- um svo á, að það hafi verið fyrst og fremst dómur yfir kirkju hans. En dómurinn var agi hans. Hann hefir viljað vekja hana og koma henni til þess að hyggja að átt- um og fara betur eftir áttavitanum sínum, svo að ljósið af hæðum lýsti henni, krafturinn af hæðum styrkti hana til þess að vinna að hinu dýrlega hlutverki sínu, því, að koma heiminum til þess að kannast við Jesúm Krist sem konung sinn, friðþægjara og frelsara. En, eins og kunnugt er, eru áhrif hvers aga undir því komin, hvernig aganum er tekið. Kirkjan þarf að finna til þess, að aginn sé réttlátur, verðskuldaður, og nauðsynlegur. Hún þarf að læra að auð- mýkja sig fyrir Drotni sínum. Hún þarf þá líka að treysta því óbifanlega, að hann sé með henni einnig þá, er hann agar hana, og að aginn sé henni einmitt merki þess. Hún þarf þá líka að koma auga á Guðs dýrlega tilgang með agann og hafa augun á honum, þeim sem sé, að fá að upphef ja hana svo, að hann geti sýnt heiminum að hún er hans og að hann vilji birta heiminum dýrð sína fyrir hennar hönd. Guði hefir nú verið ant um þetta. Og hann hefir á- valt sýnt það. Hann hefir sýnt það með því að hlífa ekki sjálfum sér, og líka með því að hlífa ekki kirkju sinni, þeg- ar um það hefir verið að ræða að koma henni til þess að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.