Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 12
168 Pað var verið að safna til skólans á einum stað. pá var komið til manns eins og hann spurður, hvort hann vildi styrkja. “Nei, ekki rautt cent”, sagði hann. “En ef þú vilt fá peninga til þess að drepa hann, þá skal eg gefa $1,000.” — Nú, þetta voru hin beztu meðmæli með skólan- um. Eg er manninum mjög þakklátur fyrir.. Hann gaf skólanum miklu meira en hann vissi. Hann sýndi að skól- inn var einhvers virði kristilega. Og hann þarf einmitt að verða oss mikils virði, já, mest virði kristilega. Kristindóms fræðslan í skólanum þarf að verða oss kristnum mönnum það, sem bjartast gerir yfir skólanum í augum vorum og sem vér leggjum mesta áherzluna á og viljum fórna mestu fyrir. Kristindóms mentunin í sambandi við stofnunina á að vera oss það, sem um fram alt gerir hana oss ómissandi, og lífs- nauðsyn að halda henni við og láta hana þrífast sem bezt. íslenzka er mikils virði, en hún er ekki mér og á ekki að vera oss kristnum mönnum eins mikils virði, því síður meira virði. f útskýring Fræðanna á fyrsta boðorðinu stendur með- al annars: Vér eigum að elska Guð yfir alla hluti fram. pað eru þeir til, sem snúa því við þannig: Vér eigum að elska íslenzkuna yfir alla hluti fram. — En vitaskuld eru þeir ekki með oss. En það eru menn með oss, sem virðast lesa þannig: Vér eigum að elska íslenzkuna og Guð yfir alla hluti fram. pá er íslenzkan sett við hliðina á Guði. Og reynzlan hefir ávalt verið sú, að hafi nokkuð mannlegt verið sett við hliðina á Guði, þá hefir Guð æfinlega verið látinn þoka niður í reyndinni. Og þó að oss tækist að halda jöfn- uðinum, sem oss í reyndinni er alveg ómögulegt, þá værum vér samt orðið hjáguðadýrkendur; því Guð þolir engan og ekkert við hliðina á sér. Hann einn er ofar öllu. pess vegna á kristindómurinn að vera efstur, tvímælalaust og algerlega efstur; því þá er Guð efstur. Á einum stað segir Jesús: Hver sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og hver, sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður.— (Matt. 10. 37). Jesús hefir líka sagt: Leyfif börnunum til mín að koma og bannið þeim það ekki. Og honum gramdist við læri- sveina sína fyrir það, að þeir bönnuðu mæðrunum að koma með börnin til hans. En nú halda margir kristnir menn hjá oss, að það sé saklaust. Ef aðeins unglingarnir fá mentun, ekki sízt ef þau fá mentun líka í íslenzkum fræðum, þá sé það gott og blessað. Um það er ekkert hugsað, hver áhrif mentunin, sem þau fá, hefir á samband þeirra við Drottinn

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.