Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1919, Page 16

Sameiningin - 01.08.1919, Page 16
172 rökkurvofum framliðinna, og opinberanir úr heilum tauga- bilaðra kvenna og karla, — þetta á að vera ljósið og lífsins orðið innblásna, sem koma á í staðinn fyrir innblásið Guðs orð heilagrar ritningar, eða að vera lykillinn að því og leið- réttingin á því líkt og “frúarorðið”—heilaspuni Mrs. Eddy— er þeim “Christian Scientistum”. Við slíkar og þvílíkar lífs- ins lindir á alþjóð íslands að setjast og súpa á sér til heilsu- bótar og heilla um tíma og eilífð. Önnur samtök hafa raunar líka orðið þar, en þjóðernis- leg, oss villuráfandi “löndunum” vestrænu þjóðernislega til frelsunar. Sjáanlega var oss hætta búin. pjóðernislega um líf eða dauða að ræða með oss. Til þess var fundið. Bræð- urna, er samtök hafa haft með sér, tók sárt að hugsa til þess, ef vér skyldum glatast þjóðernislega. pess vegna þessi áhugi. Og vel sé þeim fyrir áhugann. Og áhuga eigum vér að hafa á því, að varðveita sem bezt allan góðan ís- lenzkan arf í fórum vorum og fara sem bezt með hann. En einkennilegt virðist mér það vera, þegar eg hugsa um þetta, að aldrei skuli nein samtök hafa verið heima um það, að hjálpa oss hér í dreifingunni kristindómslega, þótt oft hafi “makedónískt kall” heyrst héðan heim, bænin um kirkjulega og kristindómslega hjálp, og það kall sterkara heldur en kallið hitt. Lítur út fyrir eins og meiri hætta sé að glatast þjóðernislega en kristindómslega, — að þar sé um líf eða dauða að ræða, en ekki hér. En eg þykist sjá eitt í sambandi við þessi samtök, — að böggull fylgi rifi þar. — Hægt er að kalla það ofsjónir. En þeir um það, sem það gera. — Sá sem forystu hefir þar á hendi og áhrifamestur er maðurinn, er sá maðurinn, sem erkibiskup allra öndunga á íslandi má telja og er lofðungur allrar marglyttumenskunnar trúarlegu og andlegu þar. Auk þess er hann sá, sem á sterkastan “trúboðs-andann” að efl- ing trú sinni. Hefir sent “trúboða” sína út um alt land og vestur hingað. Að vísu hafa þeir verið dulklæddir, í hjúpi skáldskapar-listarinnar, og fagurlega búnir. Fæsta því grunað, í hvaða erindum þeir væru komnir og með hvaða “gerningum” þeir hefðu verið búnir út að heiman. Minna þeir að ýmsu leyti á seiðskratta æfintýranna, er með gern- ingaveðrum seiddu til sín sendimenn konunga. Sátu svo fyrir þeim í skógarrjóðrum á gullstólum, forkunnarfagrar og fagurlega búnar, greiðandi gulllokka sína með gullkömb- um, og heilla þá svo, að þeir biðja um ástir þeirra til handa konungum sínum. Eins reyna þessir “trúboðar” mannsins með gerningum skáldskaparins og dularfullra fyrirbrigða að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.