Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 18
174 Og með stofnun Jóns Bjarnasonar skóla hefir það stígið stærsta sporið, sem hægt er að stíga í þá átt. Allir, sem telja sig þjóðernisvini og ekki eru það að eins í nösunum, ættu að taka höndum saman og beita öllum áhuga þjóðrækni sinnar til þess að hlúa að honum sem bezt. Svo ætti það að vera, ef þeim finst um líf eða dauða vera að ræða í því máli, og þeim er ant um líf þess. En eru nokkur líkindi til þess að það verði gert? — Eg þykist sjá bliku á lofti, er boði Evrakvíló, ölduæsir, í aðsígi. Vér eigum ekki að fá að sigla fyrir hægum byr með kristindómsmál vor. Reynt verður hér eftir, eins og hingað til frá byrjun, að hrekja oss af leið og ef unt væri út á “Syrtuna”, út á sandrifin andlegu, gróðurlausu, og út í sandbleytuna, þar sem allri ferð áfram í sannleika lýkur, en alt sogar niður, — on’í botnlaust vítið. En eins lengi og Drottinn ekki yfirgefur oss, þarf enga storma að óttast. Stríðið hefir nýlega sýnt oss það. Hann vill láta þá verða oss að byr áfram. Kallar oss með þeim nær sér, og hvetur oss til þess að standa betur saman og fastar á kletti vorum, bjargi aldanna, ekki samt sem “stein- tröll frá liðnum öldum” né heldur hangandi á honum sem marglyttur, heldur sem lifandi þjónar hans. pá stöndum vér ekki í neinni sandbleytu, en höfum fótfestu og getum sótt upp í storm og straum og hjálpað fólki voru til þess að ná sem beztri fótfestu þar, sem eina fótfestan áreiðan- lega er í lífinu, hjá Drotni vorum og frelsara Jesú Kristi, og vera hjá honum vistfólk og vinnuhjú að verki hans, en láta engin seiðlæti soga sig út og burt frá honum. Hann sjálfur er kristindómurinn. Að eiga hann er að eiga kristindóminn og um leið lífið. Að hafna honum er að hafna kristindóminum og láta sogast út í dauðann og fyrir- berast þar. Oss ríður því á að sjá og eiga þá sjón lifandi í sálu vorri, að um líf eða dauða er að ræða, þegar snertir kristindóms- mál vor. J?að eru vor eilífðarmál og vor æðstu mál, og eiga því að vera vor mestu áhugamál. Evrakvíló, öldusæir heil- ags anda, þarf því að fá að hrekja hálfvelgjuna alla hjá oss og hálfleikann við hin heilögu mál kristindómsins út á “Syrtuna”, on’í botniaust vítið, þar sem þau hjú eiga heima, svo að þau aldrei komi upp aftur; en á sama tíma þarf hann í mætti sínum að hrífa oss alla, sameinaða og samhenta, út í fórnfúst starf og stríð til sigurs málefni Drottins undir forystu hans.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.