Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 23
179
uður þessi hefir jafnvel troðið sér inn í ráðstefnu kirkjunn-
ar. Stofnunin þarf að standa, eða tækifæri býðst til að
komast að góðum samningi, eða vegur opnast til valds og
metorða, finst leiðtogunum, og svo vernda þeir margt, sem
rangt er, og þegja, þegar þeir eiga að bera sannleikanum
vitni, af því að þeir eru búnir að gjöra andlaust kerfi úr
kirkju hins lifanda Guðs og bræðralagi því, sem andlegt líf
mannanna er undir komið.
Pað var ranglætiskerfið, sem réð Kristi bana, á mann-
lega vísu talað. pegar hann sjálfviljugur lagði niður líf
sitt, þá var morðvélin til taks. pað var kirkjukerfi Farísea,
sem um langa hríð höfðu hatað þennan alþýðuvin og sann-
leikserindið hans. J?að var kerfi Saddúkea, heimsbarnanna,
sem í speki sinni gátu engan stað fundið orðum þessa rétt-
láta manns, er trúði á komanda dóm. J?að var pólitískt
blygðunarleysi Pílatusar og ótrygð við sannleikann, sem að
lokum framseldi Krist. Pílatus valdi það ráðið, sem auð-
veldást var, til að lægja ofsann í Gyðingunum. Hann fram-
seldi þennan hugsjónamann, sem trúði því, að til væri sann-
leikur. Pílatus var hlekkur í pólitískri keðju.
Eina viðkvæðið þarf að vera: “Brjótum niður rang-
lætis-kerfið”. í nafni lýðveldis og trúar þurfa menn að hef j-
ast handa, og berjast gegn þeim ófögnuði með vopnum rétt-
lætis og sannleika. Vér þurfum að draga rangindin fram
í dagsljósið. Ef trúaðir menn sjá ekki lýðfrelsinu borgið
með því að kollvarpa hverju ranglætis-kerfi, þá taka stjórn-
lausir byltingaseggir við taumhaldinu, og brjóta niður, eigi
að eins goðahof rangindanna, heldur gjörvalla bygging
mannfélagsins. pað er ómannlegt að standa hjá. Sá sem
ekki er með dáðríkri trú, sem sýnir mátt sinn í sönnu lýð-
frelsi, hann er á móti hvorttveggju, bæði frelsinu og trúnni.
Gungur og landeyður eiga engan rétt á sér nú. Sá sem ligg-
ur á liði sínu, veitir óvinunum lið. Vér þurfum að vera al-
trúir til hvers sem vera skal, að erviða, að líða, að verða
fyrir röngum dómum og álasi, að þola fult píslarvættið ef
þörf gjörist, til þess að mennirnir megi njóta sannarlegs
frelsis fyrir tilstyrk falslausrar og lifandi trúar.
G. G.
Trinity (prenningar) söfnuðurinn í Rockford, 111., tilheyr-
andi lútersku kirkjunni, hefir undanfarandi kostað að fullu
einn trúboða á Indlandi. Nýlega bætti hann öðrum við, og sér
framvegis um tvo trúboða á Indlandi. petta er að taka trú- #
boðsstarfið alvarlega og kristilega.