Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.08.1919, Qupperneq 24

Sameiningin - 01.08.1919, Qupperneq 24
180 Rómversk-kaþólska kirkjan í Bandaríkjunum telur nú um 17V2 miljón meðlimi. pingmaður einn á þingi Ohio ríkis bar fram lagafrumvarp þess efnis að banna bænagerð á þýzku í kirkjum þess ríkis. Er þetta góð mynd af afbökuðum þjóðræknísanda. Einlægt heyrir maður eitthvað nýtt. Nafntogaður Lundúna- prestur mælir með því að mönnum sé leyft að reykja í kirkju meðan á guðsþjónustu stendur. Býður nokkur betur? Presbýterar í Pennsylvania ríkinu hafa samþykt að lág- mark launa, er prestar þeirra fá, skuli vera $1200 ef prestur- inn er ókvæntur, en $1400 og húsnæði, ef presturinn er kvæntur. Dr. Gerberding, hinn góðkunni kennari við lúterska presta- skólann í Chicago, hefir nú lokið 25 ára starfs-tímabili við skólann. Hann var heiðraður á viðeigandi hátt í sambandi við uppsögn skólans. Elzti prestur lútersku kirkjunnar í Ameríku er séra William F. Eyster, sem nú er til heimilis í Crete, Nebraska. Hann er á áttunda árinu yfir nýrætt, og er enn við allgóða heilsu, þó ekki sé hann þjónandi prestur. Af Concordia College í Moorehead, Minnesota, útskrifuð- ust á síðastliðnu vori 82 nemendur. Af St. Olaf’s College í Northfield, Minn. 72; og af Luther College, Decorah, Iowa, 28. Ber þetta vott um í hve miklum blóma þessir kirkjuskólar eru. pað er sífelt að koma betur í ljós hve nauðsynlegt starf það er, sem þessir skólar reka. Ein af hinum sorglegu afleiðingum styrjaldarinnar nýaf- stöðnu eru þeir hnekkir er trúboðsstarf kirkjunnar hefir orðið fyrir. Fjöldi af trúboðum hefir orðið að hætta, og ekki verið unt að bæta í skarðið. Hvílík lífsnauðsyn að kristnin vakni alvarlega til meðvitundar um þá brýnu skyldu, er á henni hvílir. í Bandaríkjunum eru nú samkvæmt nýjustu skýrslum 197,404 kirkjur. Tala allra meðlima er um 35 miljónir. Meira

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.