Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 25
181 en fjórum miljónum stærri er tala kvenna í söfnuðunum en tala karla. En tala kirkjulýðsins alls einungis þriðjungur af allri íbúatölu. Kirkjan hefir því stórt og þýðingarmikið hlut- verk heima fyrir, um leið og hún að sjálfsögðu á að sinna því að boða kristindóminn öllum þjóðum. pann 8. marz síðastl. voru 40 ár liðin síðan biskup G. J. F. Dietrichsen í Hamarstifti í Noregi var vígður til prests. Diet- richsen biskup er fæddur í Wisconsin ríki-í Bandaríkjunum. Faðir hans var þá trúboði þar á meðal útfluttra Norðmanna. Biskup varð hann 1910, fyrst í Tromsöstifti, svo tveimur árum seinna í Hamarstifti. Einn söfnuður Meþódistakirkjunnar í borginni Minneapolis safnaði nýlega $18,000 á einum degi til styrktar starfsmálum þess kirkjufélags, er hann tilheyrir. Söfnuðurinn telur 500 meðlimi. Skuld hvílir á söfnuðinum, er nemur $21,000, en hann lét stórmál kristninnar sitja fyrir. Ætlar sér þó innan skamms að lúka þeirri skuld. Nýlega hefir flotamálaráðherra Bandaríkjanna gefið út eftirfylgjandi skipun um helgihald Drottins dagsins í flota þjóðarinnar: “Til að tryggja viðeigandi helgihald Drottins dagsins í flota Bandaríkjanna og til að veita hermönnum og foringjum þeirra þá hvíld og tilbreytingu, er þeim ríður svo mjög á, skal eftirfylgjandi skipun framfylgt: Eftirleiðis er öll- um foringjum og öðrum er hlut eiga að máli, falið að annast um á skipum þeim eða landstöðvum, er þeir eru settir á, að engin vinna sé framkvæmd á Drottins daginn nema brýnustu nauð- synjaverk...... Ekkert skip flotans skal byrja ferð á sunnu- degi nema brýn nauðsyn sé til. Til að tryggja reglubundnar guðsþjónustur á skipum flotans og landstöðvum, er það enn fremur boðið að aldrei skuli vinna koma í bága við að haldnar séu guðsþjónustur, og sé herprestum veitt öll möguleg aðstoð og hvatning í verki þeirra að koma á og halda slíkar guðsþjón- ustur. Hæfilegur salur skal tilreiddur í þessu augnamiði, og sé hann undirbúinn sæmilega til notkunar, og skal séð um að algerð kyrð ríki á skipi hverju meðan á guðsþjónustu stendur. Lúðraflokkur skipsins sé ætíð til afnota við guðsþjónustur. Sé enginn herprestur á skipinu skal foringinn gera ráðstafanir, ef unt er að fá herprest af öðru skipi eða úr nágrenninu, til að halda guðsþjónustu, og veita honum alla aðstoð. Sé ekki unt að fá reglulegan herprest, er það lagt fyrir að fyrirliðarnir útvegi, þegar heppilegt er hæfan prest úr landi til að halda guðsþjónustu.” Á dögum þrælastríðsins gaf Lincoln forseti út svipaða skipun hvað landherinn snerti.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.