Sameiningin - 01.08.1919, Qupperneq 32
188
félagi? 3. Hvað er það helzta, sem spillir kristilegri samúð?
4. Hví er svo nauðsynlegt fyrir kristna menn ao lifa saman í
ást og eindrægni?
V. 1. Hví eigum vér að tilbiðja Guð? 2. Hvers vegna er
nauðsynlegt að sækja kirkju? 3. Hvernig eigum vér að til-
biðja Guð? 4. Hvað græðum vér á kristilegri tilbeiðslu?
VI. 1. Hver er hin rétta afstaða kristins manns gagnvart
þeim, sem ekki eru kristnir? 2. Hvað þurfum vér að gjöra, til
þess að efla ríki Krists á jörðunni? 3. Hvers konar eftirdæmi
gáfu þeir kristnu og lærisveinar hans í þessu efni? 4. Hvernig
getum vér unnið að verki þessu? 5. Hver eru launin?
VII. 1. Hvernig getur kirkjan flutt erindið um Jesúm
Krist út í heiðingjalöndin? 2. Hvernig getum vér hjálpað til
við það starf? 3. Hvað hefir kirkjufélagið gjört í þessu efni?
4. Hvað lærum vér af orðum Krists um þetta? 5. Hver var mest-
ur trúboðinn í kristinni kirkju? 6. Hví eigum vér að hugsa um
heiðingjatrúboð á meðan til eru ókristnir menn heima fyrir?
VIII. 1. Hvert er æðsta boðorð lögmálsins, og hvað er það
tvent, sem oss er þar boðið? 2. Hvaða menn eigum vér að elska,
og hvað mikið? 3. Hvernig á sá kærleikur að koma í Ijós? 4.
Hver tegund góðverka var það, sem rætt var um í sjöttu og sjö-
undu lexíu? 5. Hverja tegund er hér um að ræða? 6. Hvað
lærum vér, oss til viðvörunar, af prestinum og Levítanum? 7.
Hvað lærum vér af Samverjanum?
IX. 1. Hvað er bindindi? 2. Hví er það svo nauðsynlegt?
3. Hví er svo erfitt að vera bindindissamur ? 4. Á hvaða dygð-
um öðrum hvílir þessi dygð, og hvaðan fáum vér styrkinn? 5.
Hver eru láunin?
X. 1. Hvað er ríki Guðs? 2. Hverjir eru í ríki hans hér
á jörð? 3. Hvernig hefir það vaxið og þróast? Hvað kendi
Jesús um dýrmæti þess? 5. Hvaða framtíð á það fyrir höndum?
XI. 1. Hvernig vitum vér, að til er líf eftir þetta líf? 2.
Er það nokkurt gleðiefni í sjálfu sér, að hafa hugboð um tilveru
sálarinnar eftir dauðann? 3. Undir hverju er það komið, hvort
sú von er nokkurt gleðiefni? 4. Hvað kennir nýja testamentið
um upprisu dauðra?
XII. 1. Hvað er heilög ritning? 2. Hví er hún rétt-nefnd
“orð Drottins”? 3. Hvað er aðaLkjarni þess sannleika, sem
Guð birtir oss þar? 4. Hvernig eigum vér að nota ritninguna?
5. Hvaða blessun öðlumst vér með því, að leggja stund á orð
Guðs?
“BJARMI”, kristilegt heimilisblaS, kemur út I Reykjavík tvisvar
á mánutSi. Ritstjóri cand. S. Á. Gíslason. Kostar hér 1 álfu 85 ct.
árgangurinn. Fæst I bókaverzlun Finns Jónssonar I Winnipeg.
“SAMEINIÍIGIN” kemur út mánaSarlega. Hvert númer tvær
arkir heilar. Ver8 einn dollar um ári8. Ritstjóri: Björn B. Jónsson
774 Victor St. Winnipeg. — Hr. J. J. Vopni er féhlrSir og ráSs-
maöur “Sam.”—Aildr.: Sameiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg, Man.