Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1913, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.07.1913, Blaðsíða 5
133 þú með eins miklum liraða og’ ljósið liefir gætir fleygt þér áfram út-í himin-djúpið, og liéldir áfram að ferðast á þann liátt dag og nótt, ár út og ár inn, öld eftir öld; þús- undir ára og milíónir liði, og allt-af liéldir þú fleygiferð þinni áfram. Aldrei myndir þú þó komast þangað, er iieimsvíðáttan iiætti. 1 fljótu bragði kann þér að sýnast, að þú lilytir að komast þangað sem allt liættir; en er þú hugsar þig betr um,þá sér þú, að slíkt takmark getr ekld verið eudimark himingeimsins, lieldr,að þú neyðist til að trúa, að víðátta sú nær óendanlega langt út-fyrir það tak- mark. Hugsan þín getr ekki skilið óendanleik himingeims- ins, og þú ert neyddr til að liafa það fyrir satt, að víðátta sií sé óendanleg.“ Og svo bœtir sami maðr þessu við: „Ósjaldan kemr það fyrir á vorri tíð, að menn vilja ekki kannast við, að það sé satt, sem þeir geta ekki skilið eða gjört sér grein fyrir. En þarna er svar frá guði upp-á allar slíkar vantrúar-hugsanir/ ‘—Yér þurfum ekki fram- ar vitnisburða við um það, að þessar megin-setningar skynsemis-trúarinnar eru frámunalega óskynsamar. Eitt sinn reis upp í liuga heimspekings eins efasemd um það, að hann væri sjálfr til. Býsna langt sýnist nú farið í vantrú, þegar einliver maðr fer að verða í vafa um það, livort hann sé til sjálfr. Og naumast virðist rétt að kenna vantrúna við skynsemina, þá er hún leiðir mann í slíkan efa. En í rauninni höfum vér enga slíka sönnun fyrir því, að vér séum til, sem skynsemis-trúar-menn lieimta að fá fyrir því, að það sé verulegr sannleikr, sem kristindómrinn kennir. Svo frá sjónarmiði alþroskaðrar skynsemis-trúar hafði maðrinn einmitt rétt fyrir sér. Sá maðr, sem hefir kristindóminn í hjarta sem verulegt lífs- afl, hann liefir í eiginni persónu sinni eins mikla sönnun fyrir því, að kristindómrinn er sannr, einsog hver vantrú- armaðr sem vera skal—og þá auðvitað hver einasti maðr —fyrir því, að hann er til og á lífi. Allir telja það hlœgi- lega heimsku, ef einliver fer að lialda því fram, að hann sé ekki til. En jafn-hlœgileg heimska er það, er maðr, sem þykist hafa skynsemina í meiri liávegum en allt ann- að, heldr því fram, að það, sem kristindómrinn, eða kristna trúin, sýnir manni, sé ímyndanir einar, — að afl það hið andlega, sem ber lærisveina Jesú Krists áfram, sé

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.