Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1913, Síða 9

Sameiningin - 01.07.1913, Síða 9
i37 gjört það. MaSrinn í dœmisögnnni þoldi ekld freisting þá, sem því er samfara að vera auðugr og grœða meira og meira. Hin ríkulega uppskera fór með hann. Hann tók ekkert tillit til þess, að dauðinn kynni að vera skammt undan. Sá, sem hvorld tekr tillit til dauðans né eilífðar- innar í lífsreikningi sínum, getr aldrei kallazt annað en heimskingi. Trúaðr maðr tekr tillit til hvorstveggja. Og því er það, að trúin — kristna trúin — tryggir mann svo vel fyrir því í meðlætinu, að hann hnigi niðr í andvara- lausa lífsnautn eða mammons-þjónustu, og láti það, sem bezt er og göfugast í sálu hans, kafna—guðsmyndar-neist- ann. — En svo kemr mótlætið. Ætla má nú víst, að allr þorri vantrúarmanna hafi fyrir æfa-löngu veitt því þegj- anda samþykki með trúmönnunum, að betra sé að vera trúaðr en vantrúaðr, þá er hin dimma tíð mótlætisins er komin, þau árin, er um er sagt: „Mér líka þau ekki.“ Aldrei hefir þess heyrzt getið, að nokkur maðr hafi á tíð mótlætis talið sig vansælan fyrir það, að liann tryði guðs orði, tryði á frelsarann og fyrirheit hans. Hinsvegar eru óteljandi vitnisburðir til um það, hvílíkrar sælu menn hafi notið í mótlæítinu fyrir það, að þeir voru trúaðir. Svo er og til mergð vitnisburða um það, að menn, sem ekkert sinntu guðs orði eða neinu guðlegu, meðan ekki neitt veru- lega amaði að á æfi þeirra, og töldu trúna óþarfa eða jafn- vel skaðlega, þráðu sárt, er kross mótlætis hafði á þá lagzt, að þeir væri trúaðir. Enda eru þeir víst ekki fáir —lof sé guði!—, sem auðnaðist, er lífið fór að gjörast þeim þungbært og öldur dauðans voru teknar að velta sér yfir þá, að beygja sig undir orð drottins, verða kristnir menn, og eignast svo þann frið í baráttu sinni miðri, sem heimrinn eða vantrúin fær aldrei veitt. Fyrir sanntrúuðum kristnum manni þarf ekki að rök- styðja það, að mesta vizka eða forsjálni sé að trúa einsog guðs barn, en mesta heimska að lifa ekki í trúnni. Sá maðr hefir sönnunina í eigin hjarta. Fyrir manni þeim, sem algjörlega iiefir gefið sig vantrúnni á vald, duga venjulega engar sannanir. Á dögum jarðneskrar holds- vistar sinnar sannfœrði frelsari vor Jesús Kristr engan, sem ekki vildi trúa, hvað sem hann prédikaði og hvernig sem hann prédikaði. En á þeirri tíð voru ákaflega margir,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.