Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1913, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.07.1913, Blaðsíða 17
145 vor og rit með ósœmilegu og heimskulegu orðagjálfri um guðleg efni og trúmál. Af hverju myndi það stafa'! Og af hverju koma hégómlegar deilur og hrottalegar stælur manna á meðal hverndagslega um trúmál! Mun það ekki allt stafa af því, að oss skortir næma meðvitund um heil- agleik guðs og lotningu fyrir honum. Þarsem lotningin fyrir guði er sönn og alvarleg, þar getr ekkert þetta átt sér stað. Ef til vill mætti eitthvað fœra til afsökunar lotningar- skortinum lijá einföldum og óupplýstum mönnum; en þeg- ar sama lotningarleysið sýnir sig hjá menntuðum mönn- um og jafnvel andlegum leiðtognim og kennurum annarra, þá getr maðr enga málsbót fundið. Og er ekki við því að búast, að lítil sé lotning hjá alþýðu, ef lotningarskortr kemr í ljós lijá sjálfum kennimönnunum? Og verðum vér þó ekki að játa það, að hreina og háalvarlega lotningu vantar oft og tíðum, þegar jafnvel kennimenn þjóðar vorrar rœða trúmál, einkum þegar ágreiningr er milli þeirra og ritdeilur eiga sér stað ? Hvers vegna gengr oss svo illa að rœða trúmál? og hví verðum vér ósáttir hver við annan, þegar sitt lízt hverjum? Myndi það ekki að allmiklu leyti koma til af því, að oss skortir djúpa lotn- ingu fyrir guði og því, sem hann hefir viljað kenna oss, af því að vér ekki drögum skó vora af fótum oss, þegar vér komum til „guðs fjallls“ og göngum að staðnum, þarsem logar liinn guðlegi eldr ? Annað tákn lítillar lotningar sé eg í sambandi við starfsaðferðir vorar í kirkjulegum efnum. Mér finnst vinna vor í kirkjunni bera allt of lítinn vott heilagrar lotningar fyrir henni og lionum, sem er konungr kirkj- unnar. Safnaðar-starf vort er einatt rekið meir eftir lieimsins reglum lieldr en í anda og að dcemi drottins vors Jesú Krists og postula hans. Safnaðar-fundir vor á meðal eru stundum lítt aðgreinanlegir frá veraldlegu eða pólitisku fundahaldi. Sálrnr er að sönnu sunginn í byrjun fundar, eða bœn flutt, en að öðru leyti yrði ókunnugum stundum ervitt að átta sig á því, að ekki væri verið að halda veraldlegan fund, heldr væri hér lærisveinar Jesú Krists með biðjandi lotningu fyrir honum að rœða um eflingu og útbreiðslu sannleiks- og náðar-ríkis hans.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.