Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1913, Side 20

Sameiningin - 01.07.1913, Side 20
148 að gefa af fúsum 0g frjálsum vilja og trúarlegri lotn- ingu fyrir guði og málefninu. Engan á áð þvinga, eng- an ginna til að gefa. Enginn ætti heldr að gefa nema því aðeins, að hann gefi af trú og sannfœringu. Þá er yndi að gefa, Sá, sem gefr guðs vegna, og leggr það, sem hann gefr, einsog þakkarfórn hjarta síns á altari drottins með djúpri lotningu fyrir honum, finnr guðlega gleði í því að gefa. Yerum þá ávallt vandir að virð- ingu kirkjunnar. Höfum lotningu fyrir söfnuði Krists. Höfum lotningu fyrir verkinu, sem vér erum að vinna í Jesú nafni. Sé kirkjuleg starfsemi vor ekki þannig vaxin, að vér sjálfir getum horið lotningu fyrir henni, þá er oss mál að hætta. En ef vér trúum því, að vér vinnum í Jesú nafni og höfum guðs málefni fram að bera, þá berum lotningu fyrir starfinu. Og að því skapi sem vér berum lotningu fyrir kirkjumálum vorum, munu aðrir bera virðingu fyrir þeim og oss. Skiljum það, að staðrinn, sem vér stöndum á, er heilög jörð, þegar vér vinnum að kirkjumálum, og fœrum þangað af fúsum huga. krafta vorai, eigur vorar, allt vort, með jafn- mikilli lotningu einsog var í hjarta Mósesar, er hann kom til guðs fjalls og stóð við hinn logandi runn. Kæru kirkjuþingsmenn, prestar og leikmenn! Vér erum saman komnir við „guðs fjall“, og í návist guðs eigum vér að dvelja hér hina næstu da,ga. Logi guðs lieilaga réttlætis brennr fyrir augum vorum. Guðs runnr eyðist ekki, en hann eyðir öllu óhreinu og óein- lægu, sem í námunda kemr við eldinn. I)rögum skó vora af fótum oss og verum auðmjúkir; nálgumst stað- inn og göngum að verkinu með heilagri lotningu. Yér erum komnir saman í elztu kirkju þjóðflokjks vors í álfu þessarri, því húsi, sem frumbúarnir fátœku reistu liér frelsara sínum til dýrðar fvrir hartnær þrjá- tíu árum. í þessu liúsi stóð vagga kirkjufélags vors fyrst, og hér báðu feðr þess góðan guð fyrir lífi barns- ins fyrsta sinn. Við þessa kirkju er grafinn hinn fyrsti píslarvottr trúar vorrar í þessu landi; við hlið kirkj- unnar er bautasteinn þess íslenzka prestsins, sem fyrstr dó í byggðum vorum 0g hafði beinlínis lagt lífið í söl-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.