Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1913, Page 2

Sameiningin - 01.10.1913, Page 2
226 ef liugsunin eyðist öll í skraf og skrif, þá er illa með það afl farið. Hugsunin er sterkasta aflið í lieiminum. Þa^ má eyða því, að sínu leyti einsog rafmagni, til þess eins að gjöra liávaða, í stað þess að liafa það til verk- legra framkvæmda. Það var hér endr fyrir löngu í einu íslenzka byggðarlaginu, að vefið var þindarlaust að rita, rœða og rífast um trúmál, og kvað þá einn glettinn hagyrðingr þetta við bónda einn um sláttinn: „Hvort hyggrðu þá ekki, höldr minn! bezt að hætta að rífast um trúna? Fyrir mitt leyti álít eg allt eins þarft a)ð yrkja sér blett fyrir kúna.‘ ‘ Yér erum skáldinu sammála. Fyrst eftir að Islendingar komu hér til lands og fóru hver með öðrum að gefa sig í vinnumennsku hjá innlendum verkstjórum, kvörtuðu verkstjórar undan því, að Islendingar, sem annars væri duglegustu menn, tefði hver fyrir öðrum með endalausum samrœðum. Þegar menn vöndust samvinnu við hérlent fólk, sannfœrðust menn um það, að hér eru það verk, en ekki orð, sem g'ilda á markaðinum. 0g andleg mál eru háð sama lögmáli sem veraldleg starfsmál. Það eru verklegar framkvæmdir, en ekki orðaþras, sem gagnar. Um kirkjumál vor hefir verið mikið „skrifað og skrafað.‘ ‘ í þeim efnum höfum vér líkzt verkamönnunum nýkomnu, sem kenna þurfti að þegja við vinnu. En ýmislegt bendir nú á, að skraf-öldin sé bráðum liðin, en starföldin að byrja. Þeir, sem setið liafa á síðustu kirkjuþingum vorum, hafa ef til vill veitt því eftirtekt, að þegar starfsmál lágu fyrir fundi, þá hafa menn ekki drekkt málunum í fossandi mælsku-flóði, — þótt „lieiðar- legar undantekningar“ hafi átt sér stað. Menn liáfa gengið að málunum með rólegum starfs-liyggindum og hrundið þeim í framkvæmd. Hin kirkjulegu félags-fyr- irtœki vor ná ekki fram að ganga nema því aðeins, að nœgilegt fé sé fyrir liendi. Nú hafa leikmenn vorir farið á stað, rólegir og fáorðir, og safnað fé til framkvæmd- anna. Starf þeirra sýnir sig nú bezt á trúboðs-sjóðun- um, kirkjubyggingar-sjóðnum, útgáfu-sjóðnum, o. s- frv. Stórmál vor, sem um hefir verið rœtt og ritað svo árum skiftir, eru nú að komast í framkvæmd fyrir þá sömu rósömu alvöru, sem gagntekið hefir marga, menn, og

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.