Sameiningin - 01.10.1913, Page 22
246
fyrstu blaðsíðu til hinnar síðustu finn eg hátign og óenclanlegan heilag-
leik sameinaðan hinum dýrðlegasta kærleika. Eg er þess fullviss, að'
engin vísindi geta nokkru sinni skert það eða hrakið það.
Orð skjalara og skrumara líða undir lok og missa stundaráhrif
sín, en ritningarorðið stendr stöðugt og ljómar æ meir og meir. Ótal
flokkar og einstakir menn hafa risið upp í heiminum, sem reynt hafa
að vefengja það og draga úr þvx, en orð þeirra vekja aðeins öldur
á yfirborðinu, sem hjaðna bráðlega aftr.-----------Vitnisburðr hins
einfaldasta trúaðs manns, sá, sem er í samrœmi við ritninguna, hefir
meira gildi en hundrað bœkr hins hálærðasta vísindamanns, sem af-
neitar krafti Krists, guðdómi hans og friðþæging. Við þetta getum
vér, smælingjarnir, huggað oss og gengið öruggir fram í trúnni í fullri
vissu. En eitt mætti ekki með sanni vera hœgt að segja um oss, sem
trúum á guðs orð í heilagri ritning, það, að vér látum það liggja ó-
notað og lesum það sjaldan eða aldrei. Því hvernig ættum vér að
geta vitnað um það, sem vér ekki þekkjum? og hvernig ætti guðs orðið
að bera sjálfu sér vitni í lífi voru, ef það fær aldrei fœri á að hafa
áhrif á oss? Kæru vinir! látum því guðs orð búa ríkulegar hjá oss
en hingað. til og stöndum svo fast við játning vora, hvar sem vera
skal og frammi fyrir hverjum, sem vera skal. Og umfram allt, látum
oss ekki æðrast, en veljurn guð fyrir kennara vorn, því hver er slíkr
kennari sem hann ? Og er vér lesum orðið og heyrum það með réttu
hugarfari og auðmýkt, þá mun hann verða kennari vor, hinn góði
heilagi andi, og leiðbeina oss í allan sannleika í öllu því, sem oss er
nauðsynlegt að vita oss til sáluhjálpar, því hver er slíkr kennari
sem hann ?
Hann ber vitni í hjörtum vorum, að vér séum guðs börn, en
fyrst og fremst ber hann vitni um Jesúm Krist og Ijóma dýrðar hans.
Heilagr andi ber vitni um líf Jesú og dauða; sýnir oss dauða hans sem
algjöra fórnargjörð á hinu mikla altari hins eilífa helgidóms. Þar
dó hann fyrir syndir allrar veraldarinnar, sjálfr gjörðr að synd
fyrir oss.
Um þetta vitnar hátt og greinilega öll saga kristinnar kirkju.
Öll hin sanna kristni hefir frá fyrstu byrjan vegsamað mest af öllu
það dásemdarverk guðs, að hann gjörðist maðr og að hinn eingetni
föðursins dó á krossinum af fúsum og frjálsum kærleika, til þess að
afmá hina réttlátu reiði guðs og frelsa oss undan valdi syndar-
innar.---------
Um ekkert verk guðs' hefir eins mikið verið sungið af mönnum
á jörð. Þeir söngvar, sem sungnir hafa verið um hina undrsamlegu
fœðing Krists, um pínu hans og fórnardauða, um upprisu hans og
himnaför, um sending hans heilaga anda, og konungstign hans og
starf hans til hjálpræðis á öllum öldum og enn í dag, um dýrðlega
von kristninnar, um endrkomu hans, — það söngvasafn er svo stórt
og óviðjafnanlegt, að vel má segja, að ekkert hafi verið kveðið eins
undan hjartarótum mannkynsins einsog þetta.--------