Sameiningin - 01.06.1916, Side 8
104
lyndi. Með því þarf kirkja hans að mæla fram með sér,
að liún eigi mikið af sam'a anda. Annars vegar hvílir
kristilegt langlyndi á sönnn trausti til Guðs, og æðrast
því ekki þó hvað eina verði að bíða síns tíma, heldur
starfar með þolgæði og felur Drotni árangurinn; hins
vegar á samhygð með mönnunum, skilningi á kjörum
þeirra og einlægri löngun að vera þeim til hjálpar, sem
ekki trufiast af erfiðleikum og mótbyr. Langlyndið
veitir rétta kjölfestu í starfi kristninnar, svo það verði
ekki liáð einungis stundarróti tilfinninganna og goluþyt
æsinganna, heldur lialdi áfram í kyrþey og ró, hvort
sem erfitt gengur eða vel. 0g það er slíkt starf, sem
mælir með sér, sýnir þol, og þegar til lengdar lætur vinn-
ur meira á, en fjörkippir óheilbrigðrar æsingar. Og við-
leitni kristninnar að bæta úr böli syndarinnar, má aldrei
þreytast.
“Með góðvild”.—Það er blíða kærleikans, sem ekki
lætnr sigrast. Hve ólíkt sterkara vopn það er en óvild-
in, sem er vopn heimsins. Óvildin veldur ósanngirni,
heldur við glæðunum, kyndir eld af eldi. Góðvildin tem-
ur sér sanngirni, dregur úr fjandskap, safnar glóðum
elds yfir liöfuð mótgerðamanninum. Það er eitt skæð-
asta vopnið, sem kristindómurinn leggur áhangendum
sínum upp í hendurnar. Að skeyta skapi sínu, að ala á
hefndarhug, og-láta þannig stjórnast af hinum lægri
hvötum, skaðar þann mest sjálfan, sem temur sér það.
Góðvildin er ólíkt sigursælla vopn, og mælir fram með
þeim kristnum manni, eða félagskap, sem henni beitir.
“Með heilögum anda”.—Þefta getur verið meining-
arlaus talsháttur. En það táknar veruleika. Kristin
kirkja þarf að sýna, að hún reiðir sig ekki á sinn eigin
kraft, heldur á upplýsingu, leiðbeiningu, áhrif og styrk
heilags anda. Það er ljósasta einkenni lifandi kristni,
að hún væntir lijálpar Guðs fyrir áhrif heilags anda,
þiggur liana, og sýnir áhrif hans í lífi sínu. Það er
sannur heilbrigðisvottur. Ilvenær sem kirkjan gerist
einungis mannleg stofnun, sem treystir sínum eigin
myndugleik og hyggjuviti, er liún dauðadæmd. En er
liún mælir fram með sér “nieð heilögum anda’’ og með