Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1916, Page 17

Sameiningin - 01.06.1916, Page 17
113 þess manns, sem vill gerast meðlimur í kirkjn Drottins? Segir ekki Jesús sjálfur: “Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð lilaðnir, eg vil veita yður livíld”? Fagnar hann ekki ávalt og allsstaðar hinum bágstadda og snauða? Vera kann, að menn hafi stundum verið ónærgætnir og rangsýnir í þessu atriði. En mannaverk eru líka á öllum svæðum ófullkomin. En ekki er hægt að efast um boð frelsarans. Það er ekki gott, þegar sá misskilningur kemst að, að verið sé að safna nýjum með- limum í söfnuði með því eina augnamiði, að styrkja söfn- uðinn fjárhagslega og efnalega. Frábærlega væri það lítilmótleg hvöt, ef það væri aðal hvötin. Og- ekki revnd- umst vér trúir erindrekar og starfsmenn Guðs, ef vér settum oss ekkert helgara eða liærra takmark, þegar vér erum að reyna að efla ríkið út á við. Líka eru þeir til, sem ekki segjast hafa neitt veru- lega á móti því, að gerast meðlimir í söfnuði, en vcgna anna í sambandi við frumbýlingslífið og daglegu störfin megi þeir enn ekki vera að því að sinna þeim málum. Á þá að líta á kirkju Guðs sem félag áþekt t.d. búnaðarfé- lögum, hindindisfélögum, verzlunarfélögum eða lestrar- félögum, sem vér tilheyrum ef svo stendur á, en ekki, ef ástæðurnar gera oss það erfitt? Kirkjan er ekki neitt slíkt félag, sem menn eigi að tilheyra eða ekki tilheyra eftir ástæðum. Hún er hjálpræðis-stofnun Guðs á jörð- inni. Hún er ríki Guðs hér, þar sem náðarmeðulum hans er útbýtt, þar sem mönnum er gefið tækifæri til að komast í samfélag við frelsarann, og vera fyrir náð teknir í sátt við Guð. Guð hefir bent oss á kirkjuna sem stofnun þar sem vér leitum samfélags við hann og finn- um veginn til lífsins. Ekki dylst oss, að það er mikið verkefni í söfnuðunum að uppræta slíkt og' þvílíkt illgresi, og hæta jarðveg lijartnanna, og’ v.ökva frækorn trúarinnar, svo unt sé að framleiða sem mostan ávöxt Guði til dýrðar og mönnun- um til blessunar. -----O----- Eitt vil eg nú minna safnaðafólk vort á: skyldu vora í samhandi við það, að veita móttöku nýjum safnað-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.