Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1916, Síða 25

Sameiningin - 01.06.1916, Síða 25
121 urri alvöru í sálarlíf hans, þá verður það mjög skiljanlegt, hvers vegna Guð sviftir hann því, sem hann lagði mestan trúnað á. En væri þá ástæða til að hika sér við að biðja þannig? Þvi er áreiðan- léga óhætt að svara neitandi; því Guð vill, að þú gefir sér hjarta þitt óskift, en það stendur óhaggaö að “Guð er kærleikur”, og hlýtur að beita þeirri lækningaraðferð, sem hans alvizka veit að er hin eina rétta. Aö endingu vildi eg benda á nokkur vers úr einum af Passíu- sálmum Hallgríms Péturssonar; mér virðast þau geyma hina réttu hugsun og bænaranda hins syndþjáða manns, sem í alvöru leitar á náðir Drottins: “Gráta skalt glæpi sárt, en Guði trúa, elska hans oröið klárt, frá illu snúa. Ónýt er iðrun tæp, að því sk'alt hyggja, ef þú í gjörðum glæp girnist að liggja. Ó, Jesú að mér snú ásjónu þinni; sjá'þú mig særðan nú á sálu minni. Þegar eg hrasa hér, —hv'að mjög oft sannast,- bentu í miskunn mér, svo megi’ eg við kannast, Oft lít eg upp til þin. augum grátandi, líttu þá ljúft til mín, svo leysist vandi.” Þakkir kunnum vér höfundinum fyrir þennan hreinskilna og ákveðna vitnisburð hans um ávexti krstilegs trúarlífs. Einkum viljum vér biðja lesendurna að taka til alvarlegrar yfirvegunar orð hans um veraldar-auð og önnur svonefnd gæði, sem sálin hleður stundum utan um sig eins og múrvegg—á milli sín og Guðs. Eíf vort í Kristi verður aldrei sigursælt, fyr en vér gefum honum alt, sem vér eigum, og sjálfa oss með, og stelum engu undan.. Engum manni eru jarðnesk auðæfi holl, nema sá hinn sami get.i skoðað hvern skilding þeirra eins og eign Drottins, og látið þá hugsun stjórna bæði aðdráttum og eyðslu. Þó skyldum vér engan dæma, sem Guð sviftir eignunum. Sá sem er nógu vel kristinn til þess að gefa Drotni eignir sínar og v'erja þeim öllum eftir vilja hans, hann er um leiö fær um að bera fátæktina v'el og kristilega; því að þeim manni er oröiö það ljóst, að fyrir peninga fást engin þau gæði keypt, sem dýrmætust hafa reynst i lífinu. Frá manni í Saskatchewan. Svo sem kunnugt er af ritningunni, voru tveir ræningjar lcross- festir með Drotni. Það er og kunnugt, að hjá öörum þessara syndugu manna er engin hugarfarsbreyting sjáanleg—hann iðraðist ekki. Þessi kvalafulli dauðdagi, krossfestingin, virðist ekki hafa nein betrandi eða auðmýkjandi áhrif á hann. Plann virðist deyja með forhertu hjarta, lifa og deyja með helvíti í hjarta sínu. Þú,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.