Sameiningin - 01.06.1916, Qupperneq 16
112
starfi voru hefir þó verið og er enn þá, að fá fólk í söfn-
uði, — bæta nöfnum á safnaðaskrár liinna fámennu safn-
aða vorra. Og víst má það vera oss mikið fagnaðarefni,
þegar það gengur vel. En muna þurfum vér það, að
ekki er búið nema undur lítið að gera af því verki, sem
söfnuðunum er trúað fyrir, þegar búið er að bæta nöfn-
um nýrra safnaðarlima á nafnaskrá safnaðarins. Alt
aðal-starfið er þá enn framundan. 0g enginn einn mað-
ur getur í bverjum söfnuði unnið það verk. Garðvrkj-
una í ríki Guðs þurfa allir safnaðarlimirnir að stunda
sameiginlega, og leggja við það liina mestu alúð. Yér
þurfum að hjálpast að við það, að hlúa að frækornunum,
vökva þau, uppræta illgresið umhverfis þau og róta við
jarðveginum, svo að ávöxtúrinn fyrir málefni Drottins
geti orðið mikill og fagur.
í sambandi við starf mitt hefi eg æði oft rekið mig
á misskilning hjá mönnum viðvíkjaiídi inngöngu í söfn-
uði, sem mér hefir fundist vera eins og illgresi, sem
þyrfti að uppræta.
Sumir liafa til dæm.is sagt: “Já, eg vil g'jarnan
ganga í söfnuð barnanna minna vegna.” Það er vissu-
lega göfugt, að vilja börnum sínum vel. Það er göfugt,
að vilja beina lífi þeirra og hugsun inn á brautir rétt-
lætis og trúar. En er þá kirkjan—ríki Guðs á jörðinni—
einvörðungu fyrir börn? Eða erum vér, fullorðnir menn
og fullorðnar konur, svo fullkomin, að vér þurfum ekki
á þeim áhrifum til betrunar að halda, sem ættu að standa
hverri þeirri sál til boða, sem þátt tekur í starfi Guðs
ríkis og helgum tíðum? Er kirkja Guðs þá eitthvert
barna- eða ungmenna-félag, ætluð til þess eins, að bæta
og göfga siðferði hinna ungu?
Ivomið hefir það líka fyrir, að menn liafa sagst
gjarnan vildu gerast meðlimir kristins safnaða.r, en ekJd
geta það að sinni sökum efnaskorts. En live nær hefir
Jesiis Kristur vísað uokkrum manni frá gæðum ríkis
síns sökum þess, að hann væri of fátækur? Hvar er
hægt í öllu Guðs orði að benda á nokkurt atriði, sem
beinlínis eða óbeinlínis g'efið það til kynna, að fátæktin,
örbyrgðin, eða alísleysið geti verið þröskuldur í vegi