Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 1
Múnaðarrit til stuðnings kirJcju og lcristindómi íslendinqn
gejiff út af Jiinu ev. lút. Jcirlejufélagi Isl. % VestrJæim'>
RÍTSTJÓRI: BJÖRN B. JÓNSSON.
XXXI. árg. WINNIPEG, NÓVEMBER, 1916 No. 9.
Aramótin kirkjulegu.
Með sunnudeginum, 3. .Desember, byrjar nýtt ár í
kirkju Krists á jörðinni. Það er siður margra góðra
manna, að setja sér nýjar Jífsreglur með nýju ári. Sá
siður mætti verða til blessunar einnig við byrjun kirkju-
árs. Sé þeim mönnum, sem telja sig til safnaðar Drott-
ins, alvara, þá er þeim um engan hlut jafn liugað og það,
að standa vel í stöðu sinni sem félagar Krists í söfnuð-
inum. Og þar sem nú ganga yfir heiminn jafn-alvarleg-
ir tímar sem nú, þá ættu kistnir menn að fyllast nýjum
áhuga og berjast af meiri móð en nokkru sinni áður fyr-
ir ríki mannkyns-frelsarans á jörðunni, sem eitt er ríki
friðarins.
Kirkjan kristna neyðist til þess á áramótum þess-
um, að gera þá auðmjúku játning, að lrún hefir reynst
að mörgu levti ótrú Drotni sínum. Hefði hún unnið
betur verlc sitt, hefði liún flutt boðskap fagnaðarins og
friðarins í krafti kærleikans, og Jiefði liún sýnt trú sína
í verkunum, þá lituðust ekki kristnu þjóðirnar blóði
hver annarar.
Framtíðar-kirkjan, kirkja hinnar komandi jólaföstu
heimsins, verður ldrkjan sú, sem temur sér lund frelsar-
ans, boðslcap sinn tekur inn við hjartarætur Jesú sjálfs,
og vinnur í nafni lxans kraftaverk kærleikans.
Verða söfnuðir vorir innan vébanda þeirrar kirkju?
Mun eldur kærleikans og lieilaga lífsins brenna á öltur-
um vorum 1 Yerður það líkn og fyrirgefning og bróður-