Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 8

Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 8
26i helmingur til vetrar. Kornist hefir það inn í meðvitund vora, að kalla 11 ið blíða sumar og’ liið stríða vetur. Mun- urinn er svo feikna mikill í meðvitund vorri á sumri og vetri. Islands-börn imfa átt mörgum minna af sumri að segja, þó ef til vill sé sumarið þeirra fegurst allra sumra, og íslendingar eru óvenjulega sumarelskir. Yér börn norðanáttarinnar liöfum átt svo mikið af vetri, að vér þráum meira sumar. Sumar og vetur tákna þá meðlæti og mótlæti lífsins. Missiri þau bæði eru mönnunmn ætluð af kærleiksráði hins algóða. Ekki koma árstíðirnar þær af handahófi og tilgangslaust, fremur en aðrar árstíðir. Hann, sem ekki lætur linna sáning og uppskeru, sumri og vetri, degi og nótt, lætur lieldur ekki linna meðlæti og mótlæti, svo börn sín geti lifað, dafnað og þroskast til eilífrar fullkomnunar. Eins og náttúran ekki gæti lifað, ef ekki væri nema annað missirið, hvort sem það væri sumar eða vetur, eins lifir maðurinn ekki né verður allrar þeirrar blessunar aðnjótandi, sem Guð hefir ætlað hon- um, nema svo, uð hann lifi bæði missirin: gleði og sorg. Mörgum liættir við að afbiðja veturinn, sorgina, en “faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gera.” Vér kvörtum og kveinum, þegar koma rigningar og snjó- veður. Síðustu dagar hér liafa verið, að oss hefir fund- ist, daprir og leiðinlegir og eklci laust við, að vér höfum látið óánægju í Ijós í hvert sinn, sem vér liöfum lieilsast og minst á tíðarfarið. En haldið þér, að þessir drunga- legu dagar hafi verið án gagns og gildis. Nei, það er nauðsynlegt, að sumir dagar sé dimmir og daprir. Á þann sannleika er mint í Ijóðaperlu einni yndislegri, eft- ir ameríska skáldið góðkunna, Longfellow. Kvæðið heitir The Rainy Day, og m.unu flestir við kannast. Efni þess væri ef til vill eittlivað á þessa leið: Nú úti’ er kalt og dimt og dapurt, Það dynur á regn og veður napurt. Við vegginn hnipir hin visna eik Og vindurinn rífur upp laufin bl'eik,— Og veðrið er dimt og dapurt.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.