Sameiningin - 01.11.1916, Page 29
285
í Septemberlok var tala nemenda viS St. Olaf College í North-
field, Minrn, 489. Nærri helmingur, eöa 239, voru stúlkur.
—-----o-------
'Þetta höfum vér séð tilfært úr blaði er nefnt er Alabama Bap-
tist: “ÁriS 1905 var eytt fhér í landij $2.80 til að byggja vín- og
ölgerðarhús móti hverjum dollar, er var varið til aö byggja kirkjur.
Tíu árum seinna, eða 1915, voru hlutföllin þannig, að einum dollar
var variS til vín>- og ölgerðar-húsa, móti $38.20 til kirkjubygginga.”
—Eru þaö blessuð framför.
------o-------
Mörg kirkjuleg málgögn neyðast til þess í síðustu tíð að hækka
áskriftargjald sitt v'egna þess, hve pappír er nú orðinn dýr.
. Áreiðanlegt er talið, að vínbann hafi komist á að nýju í Suður-
Dakota við kosningarnar nýafstöðnu.
------O-------
Þrjátíu nýir nemendur eru í prestaskóla Augustana sýnódunnar
sænsku, og von á fleirum.
------o-------
1 ríkinu Wisconsini telur lútesrka kirkjan því sem næst eins
nxarga nxeðlimi og allar hinar prótestantisku kirkjurnar til samans.
------o-------
í sunnudagsskóla einurn lúterskum í Toledo, Ohio, eru innrituð
350 börn innan 5 ára fCradle rollý.
Ráðgert er að byggja nýjan spítala í Williston, N.-Dak. Fyrir
því gangast nxenn úr Sameinuðu kirkjunni norsku.
------o-------
á þrettán tungumálum flytur lúterska kirkjan erindi sitt í New
York borg.
------o-------
í borginni Cumamoto í Japan eru fjórir stórir miðskólar fHigh
SchoolsJ. Tveir eru undir umsjón stjórnarinnar; einn er eign
Buddista og einn er lúterskur. Nemendur við lúterska skólann
stóðu sig bezt við nýafstaðin próf.
------o-------
Mörgurn mun vera það ókunnugt, að þrátt fyrir það að Belgía
hefir þurft að fæða fólk sitt að nxiklu leyti af gjafafé siðan Þjóð-
verjar lögðu landið undir sig, hefir þó verið flutt inn í landið fleiri
þúsund “tons” af byggi á hverjum mánuði til ölgerðar. Og það
þrátt fyrir alla neyðina og hungrið !
í blaðinu “Christian Herald” er að birtast æfisaga manns, sem
heitir John Goode. Hann var áður glæpanxaður, en er nú fyrir á-
hrif kristindómsins búinn að ávinna sér virðingu allra, er hann
þekkja. Tildrögin til þess, að hann lenti út á stigxi glæpanna þegar