Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 16
272 sögusögn” eða “erfikenning” (traditio). Um þessa erfi- kenning var sagt, að hún hefði geymst í kirkjunni frá dög- um Krists og postulanna. Að vísu var sumt í erfikenning- unni rétt og satt, svo sem það, að ungböm eigi að skíra, og að sunnudagana eigi að halda helga í stað laugardaganna, sem Gyðingar héldu helga; en flest af því, sem kallað var erfikenning, var eigi annað en mannasetningar, og voru til orðnar löngu eftir postulanna daga, og margt af því mót- hverft orðum og anda heilagrar ritningar eða jafnvel alveg ókristilegt. En jafnframt þessu, að heilög ritning væri eigi nægileg leiðbeining á vegi sáluhjálparinnar, var kent, að hún væri of myrk og þungskilin fyrir almenning, og öll- um þess vegna bannað að skilja nokkuð í henni öðruvísi en kirkjan vildi, eða kirkjufeðurnir og páfinn höfðu skilið það. Að lyktum hafði af sömu ástæðu verið ákveðið, að engir aðrir en klerkar og munkar mættu lesa ritninguna. Af þessu leiddi, að fyrir Lúters daga áttu mjög fáar þjóðir ritning- una á móðurmáli sínu, og að hún var, að heita mátti, falin fyrir öllum almenningi. Guðs orð í heilagri ritningu var þannig eigi að eins í niðurlægingu, heldur og í nokkurskon- ar útlegð; en erfikenningin var í hávegum höfð og í flestu látin ráða. 2. Dauðir menn og dauðir hlutir voru dýrkaðir. Hinn sanni þríeini Guð var eigi einn saman tignaður og tilbeðinn, heldur voru þar að auki ákallaðir og dýrkaðir eigi að eins englar, helur einnig og einkanlega ýmsir dauðir menn, er kallaðir voru “helgir menn” eða “dýrðlingar”. í fornkirkj- unni höfðu hinir kristnu verið vanir að minnast píslarvott- anna og annara framliðinna guðsmanna á dauðadögum þeirra, til að styrkjast af dæmi þeirra í trúnni og guðræki- legu líferni. pessi fagri kristilegi siður breyttist svo, þá er fram liðu stundir, að úr honum varð hin ókristilega helgi- mannadýrkun. pá er englar og helgir menn voru ákallaðir, átti það eiginlega að vera til þess, að biðja þá um fyrirbænir þeirra. En þessa var alment eigi gætt, heldur voru þeir þráfaldlega líka beðnir um þá hluti, sem er Guðs eins að veita. Reyndar kendu kennifeður kirkjunnar, að Guð ein- an ætti að t i 1 b i ð j a, en að engla og helga menn mætti að eins á k a 11 a ; en þann greinarmun skildi almenningur eigi eða gleymdi honum. pá er helgimannadýrkunin var byrj- uð, fór hún brátt svo í vöxt, að hinnar eiginlegu guðsdýrk- unar gætti lítið hjá henni. Helgir menn voru ákallaðir og dýrkaðir við hvert tækifæri. Hvert land, hver borg fékk sinn verndardýrbling, og hver einstakur maður valdi ein- hvern helgan mann sér til hjálpar og verndar í lífi og dauða. Einkum var María mey tignuð og ákölluð sem helzt og mest allra helgra manna. Hún var kölluð “guðsmóðirin, himna-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.