Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1916, Side 11

Sameiningin - 01.12.1916, Side 11
297 þú þiggja Gnðs dýrmætu gjöf—elska hann sem dýrasta fjársjóð hjarta þíns—nema í anda staðar við Betlehems- jötuna í fagnandi tilheiðslu og láta baimið heilaga kenna þér, hve Guð er óumræðilega góður ? Það er kristið jólahald. Þá ert þú ríkur, hvað sem líður löndum og lausafé; þá átt þú þann fjársjóð, sem aldrei gengur til þurðar. Þá þarft þú engu að kvíða um tíma og eilífð, ])ví sam- félag frelsara þíns er þér .athvarf og styrkur. Þá getur þú með sanna jólagleði í hjarta þínu tekið undir orð postulans: “Þökk sé Guði fvrir sína dásamlegu gjöf.” (2. Kor. 9, 15). Jólin tákna líka beiðni, — beiðni frá Guði um elsku þína. Elskandi hjarta þráir elsku; því heitari sem elsk- an er, þess sterkari er þráin. Hvert ástaratlot þess sem elskar, er fögur beiðni um elsku í móti. Elskan þráir sameiningu, — að tvær sálir geti orðið eitt, með sama markmiði, sömu gleði, sömu lífsfyllingu. Hvergi kernur sú hugsun fram fegurri og fullkomnari en í bæn frelsar- ans: “En eg bið ekki einungis fyrir þessum, heldur og fyrir þeim, sem trúa á mig fyrir orð þeirra; allir eiga þeir að vera eitt,—eins og þú, faðir, ert í mér og eg í þér, eiga þeir einnig að vera í okkur” (Jóh. 17, 20. 21).— Jólin tákna það, að Guð fæðist inn í mannlífið, til þess að mannkynið geti samlagað sig honum og sameinast honum til eilífra samvista í endalausri sælu og óumræði- legri lífsfyllingu. Boðskapur jólanna frá Guði til þín er þessi: “Son minn, gef mér hjarta þitt!” Reyndu að hugsa þessa stórkostlegu husgun: Guð, skaparinn almáttugi, andinn eilífi og ótakmarkaði, liann þráir þig! Svo dýrmætur ert þú í augum hans, sem er sjálfur ímynd allrar fullkomnunar og dýrðar, að liann biður um elsku þína! Sál mín verður gagntekin af auð- mýkt, þegar eg reyni að gjöra mér grein fvrir þessari óskiljanlegu náð, að heilögum Guði skuli þykja svo vænt um mig, svndugan og margfaldlega brotlegan mann, að honum skuli geta þótt það einhvers virði, að eg elski hann.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.