Sameiningin - 01.12.1916, Side 18
304
' _ T3*"
Hvað býr oss í huga um hátíð þessa? Hverjar verða
endurminningar vorar um þessi jól? Liðugar nítján aldir
eru liðnar síðan frelsarinn fæddist. Saga þeirra alda er
oss kend í skólunum. Hvert bam lærir þar meira eða
minna. En langflestar blaðsíður sögu þeirrar eru frá-
sagnir um stríð og manndráp. J?au er hægt að telja hundr-
uðum saman. pó bað Jesús: “Faðir, fyrirgef þeim, því
þeir vita ekki hvað þeir gera.” Sú afsökun var réttmæt,
er um böðlana við krossinn var mælt,—afsökunin hin eina
hugsanlega. En þjóðirnar, sem hafa háð flest stríðin
síðan, kenna sig við nafn Jesú Krists. Er hægt að afsaka
þær á sama hátt? — Nei, þær vita.
“In hoc signo vinces” segja munnmælin að Konstantín-
us hafi séð letrað á himininn. ólafur ráðlagði að taka pór
úr stafni. Helgi “trúði á Krist, en hét á J?ór.” Er þar
eigi ímynd hins lítt kristna heims enn í dag?
Menn kallast kristnir bræður. En munu kristnir bræð-
ur sýna bræðralag bezt með því að úthella hver annars
blóði ?
Menn viðurkenna orð hans, sem varði öllum starfstíma
sínum til að lina mannlegt böl. J?ó leitast auðvaldið við að
setja okurverð á lífsnauðsynjar “kristinna bræðra.” Borg-
arar landanna eru kallaðir í stríð. Samtímis leitast menn
við að græða á stríðinu. Lífi einstaklinga er fómað, en
jafnvel vopnatilbúnaður auðgar þúsundum einstaka menn,
þegar stórveldi er í hættu statt. Hvar eru takmörk þess
lösts, sem postulinn sagði að væri rót alls ills?
Og orsök þessa stríðs, og allra stríða, er heiðni mann-
anna. pað er kent valdhöfum landa. Hégóma-mas! Eng-
inn valdhafi kæmi stríði af stað, ef hugsunarháttur þjóðar-
innar væri því andstæður. pað er mögulegt vegna þess
eins, að stríðshugsjónin er í samræmi við þjóðatilfinning-
una, þjóðametnaðinn, þjóðahatrið. Svo er og um auðkýfi.
Hún verður ætíð möguleg meðan samkepnishugsjónin ræð-
ur í hugum manna. Hún væri ómöguleg, ef menn elskuðu
bræður sína sem sjálfa sig. Auður skapar álit, vegna þess
að hann er virtur mest. Hugsjónir skipa óæðra bekk, en
auragirndin öndvegi. Alt þetta breyttist, ef kenningar
hans, sem fæddist á jólunum, væru í raun og veru mest
metnar í heiminum. pá væri manngildi metið eftir því
einu, hvað maður hver hefði látið gott af sér leiða.
Vorri þjóð hefir ljós kristindómsins skinið í 916 ár.
Flosi sagði: “Oss er það mikill ábyrgðarhluti, er vér erum