Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1916, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.12.1916, Blaðsíða 15
301 lifað. pó þeir dveldu í myrkrinu, þráðu þeir Ijós. vængja- tökin veiku voru merki um ljósþrá. Og í hvert sinn, sem vonin reyndist tál, varð myrkrið svartara—Og mennirnir dvöldu í myrkrinu, en þráðu ljósið. Stórveldin fornu risu úr rústum hins liðna. Og mönn- um fanst dýrðarljóma bregða fyrir. Frægðin lofaði sælu. En áþján og kúgun fóru hröðum fetum um jörðina. Frægð- in lofaði sælu. En frægðin var keypt með blóði og frelsi manna. Frægar þjóðir. En borgararnir stynjandi þrælar. petta er myndin af stórveldunum fornu: Assýriu, Egyptalandi, Babýloníu, Medíu og Persíu. Stundarfrægð konunga á kostnað heilla þióða.—Myrkrið jókst,—myrkur synda, ófrelsis og andlegs dauða. Grísk menning hefir dáð verið í sögum og lióðum. Mörgum hefir virst þaðan hafa streymt liós, enda eigi mót von. Engin þjóð hefir verið jafn gáfuð og Grikkir. Engin þjóð vakið eins fagrar vonir, enga drevmt eins fagra drauma. Skáldskapur þeirra og listir óviðiafnanlegt.—pó var Sókrates dæmdur til dauða fyrir að segja satt. Platon gerður að þræli. Eld-tunga Demosþenesar megnar ekki að veria landið fagra. Filippus frá Makedoníu sigraði börn þeirra, sem börðust fyrir frelsi Grikkja og menningu heims- ins við Salamis og 1 Laugaskarði. Og Rómverjar, hetiuþjóðin, sem hafði sigrað Karhagó, hafði ekki svo sterk bein, að hún þyldi góða daga. Sigur- vegarar heimsins kunnu ekki að sigra siálfa sig. Rómverj- ar, mentaða þjóðin, varð “barbörum” að bráð. pjóðirnar rísa og falla eins og öldur á sæ. Hvers vegna hnignar þeim? Hví verður stórveldi einnar aldar smáþjóð eftir fáein hundruð ár? Af því þær bera frækom eyðileggingarinnar í sjálfum sér. Menn geta deilt um or- sökina, ef þeir vilja, myndað sér allskonar hugmyndir um uppruna hins illa. En hvaðan sem það er runnið, er það víst, að saga heimsins,—þjóða og einstaklinga—, sannar það, að mennirnir geta ekki af eigin ramleik sjálfum sér bjargað. — “Með eigin kröftum enginn verst.” Og þó er það satt, sem postulinn sagði: “öll skepnan stynur eftir Guði.” Hver getur talið öll þau tár, sem s y n d i n hefir valdið,—eða þá ófullkomleika manneðlisins, ef einhverjum þykir það mýkra í munni? Enginn nema Guð getur talið þau. Enginn nema hann heyrt og virt eftir atvikum allar þær kvalastunur, sem hafa stigið til hæða frá kvöldum sál- um á jörðu; enginn nema hann séð til fulls hyldýpi eymdar-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.