Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1916, Síða 17

Sameiningin - 01.12.1916, Síða 17
303 hins lifanda Guðs.” Æðstu prestarnir mátu meira vöid sín en hann. Myrkur sjálfselskunnar þeim kærara en ljósið hans. Pílatus spurði í háði: “hvað er sanneikur?” Heródes vildi skemta sér við “glens og nýjar fréttir.” Og sá sem sagði: “Eg finn enga sök hjá honum”, fékk Jesúm óvinum hans í hendur til að krossfestast. Og dómunnn var feldur og hatrið sýnt vegna þess, og þess eins, að hann, sem var heilagur, leið ekki syndina óátalda. Barabas var tekinn fram yfir Krist, vegna þess að hann var 1 samræmi við heimsandann. Á jólanóttina boðuðu englarnir frið. peir boðuðu frið við Guð, þann frið, sem hver sá hlýt- ur, sem iðrast synda sinna og biður Guð um náð vegna Jesú Krists. Og sá friður hefir veizt þúsundum manna. Konungurinn í hásæti sínu, þó einvaldur sé yfir heilli þjóð, er snauður án hans. Fátæklingurinn í hreysi sínu er auð- ugur, hafi honum hlotnast sá friður. Menn Ieita eftir sælu; allir eru í sæluleit. peir leita eftir auði. En auðurinn veitir ekki sælu, sá hjartað kalt. peir leita sælunnar í nautnum, en “farga með því hjartans ró.” pær leita sælunnar í skemtunum. par er um dægur- flugur að ræða. En sælan eina varanlega er fólgin í friði við Guð, þeirri meðvitund, að hann sé elskulegur f a ði r vor. En mannssálin seka dirfist ekki að kalla hann föður, nema vegna þess eins, að jólabarnið leyfði oss að kalla sig bróð- ur. Vegna kærleiksfómar hans, sem leið með mönnum og fyrir menn, “höfum vér frið við Guð.” Sá sem hefir frið við Guð, hefir frið við sjálfan sig. Lífið er ægilegt bardagasvið, þegar bezt lætur. Allir finna til veikleika síns í því stríði. Áhyggjurnar marg- földu lama lífsfjörið og þreyta bæði líkama og sál. pó er sú þrautin þyngst, að vera í ósátt við Guð. En sá, sem veit sig í sátt við hann, ber lífsbyrði sína létt. “Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér séum Guðs böm,” segir postulinn. Án þeirrar sæluríku meðvitundar hefði hann eigi sungið i fangelsinu, né verið glaður í ofsóknum. Sæll er sá maður, sem öðlast þann frið. Friður við Guð og friður við sjálfan sig, er hið dýrasta óðal hvers kristins manns. En þeim friði er samfara löngun eftir friði við alla menn, ef mögulegt er. Faðerni Guðs og bróðemi Krists krefst þess, að bróðurskyldunnar sé gætt við alla menn. pví heitar sem menn elska Guð, því ein- lægar þrá þeir velferð bræðra sinna.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.