Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1916, Page 31

Sameiningin - 01.12.1916, Page 31
317 FYRIR UNGA FÓLKIÐ. Dt-ilil þessa annast séra l'rlðrik llallgriiusson. Jólasálmurinn. ÞaS er ónotalegur dagur aS haustlagi áriS 1818; stormur og kuldaregn lemur gluggarúSurnar; laufin hrynja af trjánum, og sólin hefir ekki látiS sjá sig dögum saman. í snotru og þokkalegu herbergi situr ungur maöur hugsi. Lamp- inn á borSinu varpar daufri birtu á föla og gáfulega andlitiS hans, sem sórg og kvíSi hafa rist á rúnir sínar. HvaS eftir annaS tekur hann höndum fyrir andlit sér og legst fram á borÖiS meS sárum andvörpum. MaSurinn er Franz Gruber, kennari og organleikari í Arnsdorf á Þýzkalandi. Hann er utan viö sig af harmi og kvíöa; því konan hans unga og fríöa er mjög veik. Fimm ár hafa þau veriö í hjóna- bandi,—indæl ár, full af ástríki og fögnuöi. En svo veiktist hún alt i einu, og síöan hefir hann ekki litiö glaSan dag. Alt í einu er bariS aö dyrum hjá honum, og inn kemur aldavin>- ur hans Jósep Mohr, prestur í Oberdorf. Hann gengur aS honum glaSlega, slær á öxlina á honum og segi meS fagnaSarhreim í röddinni: “Gott kveld, Franz! Líttu á hvaS eg hefi meöferöis”. Hann dregur blaS upp úr vasa sínum. “ÞaS er kvæöi, sem eg hefi nýlega lokiö viö, — jólasálmur, sem viö skulum syngja i fyrsta sinni á jóladaginn í kirkjunni okkar. ÞaS er fallegt, þó aö eg hafi sjálf- ur ort þaS; þaS finn eg. Og nú ætla eg aö biöja þig aö semja lag viS þaö; eg veit, aS þú getur fundiö þá tóna, sem vekja bergmál í hjörtunum.” Franz Gruber horfSi framan í vin sinn og hristi höfuSið; eins og í leiöslu tók hann viö blaöinu og lagði þaö á borðið, án þess aS lita á þaS. “Nei, Jósep,” sagöi hann lágt, og röddin skalf; “mér er þaS ó- mögulegt. Engir tónar fæðast nú í sál minni; þar er nú ekkert nema grátur.” Þá tók presturinn fyrst eftir þvi, hve vinur hans var fölur og hnugginn. “í öllum guSanna bænum, Franz,” æpti hann upp yfir sig, “hvaS gengur aS þér? HvaS hefir komið fyrir?” Þá sagði Franz Gruber vini sinum frá skýinu svarta, sem hafSi svo sviplega lagst yfir sólbjarta heimiliS hans. —•----- Dagar liöu daprir og langir. Ekkert batnaöi henni, Engill dauöans kom æ nær og nær.------------ Aftur lemur stormurinn gluggana. Laufin eru öll fa'Iin af trjánum og ekkert er eftir nema berar greinarnar. JörS er öll hvít af Snjó. ÞaS er komiS fram í Desember. Og þegar jóla-tilhlökk-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.