Fréttablaðið - 02.05.2011, Side 2

Fréttablaðið - 02.05.2011, Side 2
2. maí 2011 MÁNUDAGUR2 verið handtekinn og yfirheyrður vegna rannsóknarinnar, meðal annars áðurnefndur Borgnesing- ur á laugardagskvöld. Síðdegis í gær hafði hins vegar öllum verið sleppt úr haldi. Heimildir Fréttablaðsins herma að mikil áhersla sé lögð á það að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu efnisins. Talsvert lög- reglulið hafi unnið að því myrkr- anna á milli alla helgina og svo verði áfram á meðan af því er talin steðja hætta. Karl Steinar Valsson, yfirmað- ur fíkniefnadeildar lögreglunn- ar, segir lögreglu óttast mjög að meira af efn- inu sé í umferð. Ha n n seg i r ómögulegt að vita hvort inn- flytjendur og sölumenn efn- isins viti sjálfir hversu hættu- legt efnið er. „ E n m a ð u r ætlar svo sem e n g u m a ð dreifa svona efnum vitandi að þau kunni að vera eitruð,“ segir hann. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um rannsóknina í gær. - sh, jss VEÐUR Mesta snjólag í tæplega aldarfjórðung, 16,3 sentimetrar, mældist í Reykjavík í gærmorgun sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Leita þarf aftur til ársins 1987 til að finna jafn snjóþung- an fyrsta maí en þá var 17 sentimetra snjólag í höf- uðborginni. Jörð var síðast alhvít í maímánuði árið 1993. Í öðrum landshlutum var þó mögulegt að fagna baráttudegi verkalýðsins í sumarlegra veðri. Víða á Austurlandi skein sól í heiði og mældist þar 17 gráðu hiti síðdegis. Á Norðurlandi fór hitinn upp í 13 stig. Veðurstofan spáir hlýnandi veðri í dag. Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, segir óneitanlega dálítið sérstakt að svo mikið snjói hér á landi í byrjun maí. Það sé þó alls ekki eins- dæmi. „Fyrsta veðrið sem ég man eftir var 3. maí 1929, þegar ég var fimm ára gamall drengur í Borg- arfirði. Þá skall á feykilegur bylur um land allt. Þetta man ég,“ segir Páll og bætir við að honum lít- ist afbragðsvel á sumarið sem fram undan er. „Veturinn hefur verið mildur og það veit á gott, sérstaklega fyrir gróðurinn. Margir hafa kvart- að undan þessum aprílmánuði sem er nýliðinn, og kannski með réttu því veðrið hefur verið hálfleiðin- legt, en staðreyndin er sú að þessi apríl er líklega sá níundi hlýjasti síðan mælingar hófust hér á landi árið 1846. Svona vill náttúran hafa þetta og ekki þýðir að kvarta yfir því,“ segir Páll. - kg Mesta snjólag í aldarfjórðung mældist í Reykjavík í gærmorgun: Spáð hlýnandi veðri í dag Þóra Björk, var brúðkaupið gott fyrir sinn hatt? „Ég þori að éta minn hatt upp á það að brúðkaupið var skraut- fjöður í hatt krýndra sem ókrýndra drottninga heimsins.“ Þóra Björk Ólafsdóttir viðskipta- fræðingur, til vinstri, og vinkonur hennar hittust á föstudagsmorgun, fylgdust með konunglega brúðkaupinu í sjónvarpinu, settu upp hárskraut og gæddu sér á gúrkusamlokum. SAMGÖNGUR Dýpkunarskipið Skandia er við störf við Landeyjahöfn og liggur fyrir að hægt verði að opna höfnina aftur á miðvikudag. Herjólfur sigldi síðast frá Landeyjahöfn þann 12. janúar. Að sögn Gísla Vals Gíslasonar, stýrimanns á Herj- ólfi, náði dýpkunarskipið fimm ferðum aðfaranótt sunnudags og gekk vinnan mjög vel. Dýpt hafnar- innar verður mæld aftur í dag og verður þá hægt að áætla hvenær siglt verður á Landeyjahöfn að nýju. Ef veður helst gott og dýpkunarstarfið gengur vel eru líkur á að höfnin opni á miðvikudag. „Höfnin var mæld á laugardag og þá var lítið eftir. Ef veðurskilyrði haldast góð áfram ættu þeir að geta athafnað sig allan sólarhringinn. Þá ættum við að geta byrjað að sigla aftur til Landeyjahafnar innan skamms,“ segir Gísli Valur. Þann 6. apríl var minnsta dýptin í hafnarmynninu 4,5 metrar en Herjólfur ristir 4,2 metra þegar skipið er í kyrrstöðu. Æskileg dýpt hafnarmynnisins er því minnst 6 metrar. - sm Dýpkunarskip er við störf við Landeyjahöfn: Landeyjahöfn opnar líklega í vikunni BRETLAND Hertoginn og hertoga- ynjan af Cambridge eyða fyrstu helgi sinni sem hjón á leynilegum stað. Hjónin hyggjast ekki fara í brúðkaupsferð sína strax og mun Vilhjálmur prins mæta aftur til vinnu sinnar á morgun. Ekki hefur verið gefið upp hve- nær farið verður í væntanleg brúðkaupsferð eða hvert verður farið, en margir telja líklegt að hveitibrauðsdögunum verði eytt í Keníu þar sem Vilhjálmur bað Katrínar. -sm Brúðkaupsferðinni frestað: Mætir til vinnu aftur á morgun SÆL SAMAN Katrín og Vilhjálmur vörðu brúðkaupsnóttinni í Buckingham-höll. VETRARTÍÐ Ungir sem aldnir drógu skemmtu sér í snjónum á Seltjarnarnesi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SJÁVARÚTVEGUR Landhelgisgæslan kannaði í gær veiðar sjö togara frá Spáni og Rússlandi sem sáust að veiðum á Reykjaneshrygg fyrir þremur dögum. Við skoðun kom í ljós að skipið frá Spáni var á langhalaveiðum en rússnesku skipin úthafskarfaveiðum. Veiðum á langhala er ekki stjórnað með beinum hætti og eru skipin því í fullum rétti hafi við- komandi þjóð veiðireynslu. Rúss- nesku skipin eru á karfaveiðum en fjölþjóðlegt samkomulag er um að veiðarnar hefjist ekki fyrir 10. maí. Rússar eru ekki bundnir af samþykktinni. Öll skipin eru að veiðum utan íslenskrar fiskveiðilögsögu. - shá Gæslan á Reykjaneshrygg: Sjö togarar veiddu löglega BANDARÍKIN Barack Obama Banda- ríkjaforseti virðist ekki taka hugmynd auðjöfursins Donalds Trump um mögulegt forseta- framboð ýkja alvarlega. Forset- inn hæddist að Trump í árlegum kvöldverði með blaðamönnum um helgina og sýndi meðal annars mynd af Hvíta húsinu þar sem sjá mátti bikiníklæddar stúlkur með kokteila í heitum potti. Obama gerði einnig grín að þeim orðrómi að hann hafi ekki fæðst í Bandaríkjunum. Nú þegar hann hefði birt fæðingarvottorðið sitt gæti Trump snúið sér að mik- ilvægari álitaefnum, eins og því hvort tunglferðin 1969 hafi verið sviðsett. Trump sat svipbrigða- laus undir öllu gamninu. - sh Obama hæðist að Trump: Hvíta húsið yrði eitt syndabæli OBAMA OG TRUMP Sá síðarnefndi kunni ekki meta háðsglósur forsetans. BANDARÍKIN Tala látinna fer hækk- andi eftir að skýstrokkar fóru yfir suðurríki Bandaríkjanna í síðustu viku. Alls hafa 340 látið lífið í ham- förunum og varð Alabama einna verst úti, en þar fórust 248 manns í óveðrinu. Um tvö hundruð ský- strokkar fóru yfir sex fylki í Suður-Bandaríkjunum og er eyði- leggingin gríðarleg. Björgunarsveitir og hermenn leita enn að fórnarlömbum sem gætu verið föst í húsarústum. Um milljón heimili á svæðinu eru enn án rafmagns. Barack Obama, for- seti Bandaríkjanna, heimsótti hamfarasvæðið í gær. - sm Tala látinna fer hækkandi: Yfir 300 látnir LANDEYJAHÖFN Talið líklegt að hún opni á miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJARAMÁL Gylfi Arnbjörns- son, forseti ASÍ, segir kjaravið- ræður munu halda áfram við framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins (SA) í dag. Ekkert samband hafi verið milli aðilanna yfir helgina. Gylfi hélt ræðu á Akureyri í gær í tilefni af bar- áttudegi verkalýðsins. „Við töl- uðum til þeirra [SA] en ekki beint við samtökin,“ segir Gylfi. Á föstudag sagði Gylfi verka- lýðshreyfinguna nú undirbúa allsherjarverkfall í þessum mán- uði. - kg Kjarasamningar ASÍ og SA: Viðræður halda áfram í dag LÖGREGLUMÁL Lögregla leggur nú allt kapp á að rekja uppruna og dreifingarleiðir fíkniefnis- ins PMMA, sem grunur leikur á að hafi dregið tvítuga stúlku til dauða á laugardagsmorgun. Stúlkan var stödd í samkvæmi hjá kunningja sínum þegar hún lést. Hún hafði neytt fíkniefna. Dánarorsök liggur ekki fyrir en í ljósi þess að PMMA hafði fundist í fyrsta sinn á Íslandi fyrr í apríl, í fórum manns í Borgarnesi, beind- ist grunur strax að því. Lögregla handtók fjóra á staðnum og lagði hald á fíkniefni. Á laugar- dagskvöld var leitað í tveim- ur húsum til viðbótar og fleiri hand- teknir. Lög- regl a hélt á f r a m a ð rekja sig eftir viðskiptaslóð- inni og gerði þriðju húsleit- ina í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- i ns fa n nst nokkurt magn fíkniefna á öllum fjórum stöðun- um, þar á meðal hvítt efni sem við fyrstu sýn virðist vera amfetamín en ekki er hægt að útiloka að sé umrætt PMMA. Efnið hefur verið sent Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræðum til greiningar. Hún getur tekið nokkurn tíma. Meira en tugur manna hefur Lögregla gerir dauða- leit að banvænu dópi Lögregla leitar nú logandi ljósi að stórhættulegu fíkniefni sem talið er komið í almenna umferð. Ung stúlka lést á laugardag eftir neyslu. Nokkurt magn fíkni- efna fannst á fjórum stöðum um helgina og hefur nú verið sent til rannsóknar. Efnið skeinuhætta er skammstafað PMMA en fræðiheitið er parametoxímet- amfetamín. Það er náskylt metamfetamíni en hefur virkni ekki ósvipaða MDMA, eða e-töflum og e-töfludufti. Efnið er ýmist selt í duft- eða pilluformi, og þá sem amfetamín eða MDMA, en er þó mun líklegra til að valda hjartastoppi, ekki síst vegna þess að áhrifin koma síðar fram og því freistast fólk til að neyta meira en ella. Í janúar fluttu norskir fjölmiðlar fréttir þess efnis að tólf hefðu látist eftir neyslu efnisins á undanförnu ári. Fyrir mánuði var svo greint frá því í Hollandi að efnið hefði dregið fjóra þar til dauða síðan í nóvember. Sextán látnir í Noregi og Hollandi KARL STEINAR VALSSON Maður ætlar svo sem engum að dreifa svona efnum vitandi að þau kunni að vera eitruð KARL STEINAR VALSSON YFIRMAÐUR FÍKNIEFNADEILDAR LÖGGREGLUNNAR SPURNING DAGSINS Ný verslun Hamraborg 1 Opnunartilboð - 2. - 6. maí Petmax.is gæludýraverslun - Hamraborg 1 (að neðanverðu) - Kópavogi Ódýr kostur fyrir hunda og ketti Verðdæmi 15 kg poki OK dog Rétt verð 7.980 kr. Tilboðsverð 5.985 kr. OPNUN ARTILBO Ð 10-25% AFSLÁT TUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.