Fréttablaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 44
2. maí 2011 MÁNUDAGUR28 28 menning@frettabladid.is hundleið á sínum karli. Pabbinn eins og blanda milli Peters Sellers og pabba Denna dæma- lausa. Nína Dögg Filippusdóttir lék öll hlut- verk mæðranna og stekkur fimlega milli tíma- skeiða. Það er erfitt að gera upp á milli hvar hún botnaði best enda gervin góð og naut hún sín til fulls og var á köflum sprenghlægileg. En það var einmitt markmiðið að fá fólk til að hlæja þótt margur væri broddurinn og hann oft beittur. Fólk hló vegna þess að það þekkti sínar eigin og forfeðranna dellur. Golf, sílíkon, skipti- nemi, þríhyrningur, Eldhúsmellur, súludans og söngvakeppni, allt það sem heltekið hefur land- ann í dægurmálum fékk sinn sess. Hugmyndirnar voru ýktar og fyndnar og þrátt fyrir að liðin séu allmörg ár þekktu allir Baldur og Konna í gervi Guðna og Tómasar og lá við að sumir í salnum köfnuðu úr hlátri yfir aulafyndni þeirra. Karlmenn hópsins brugðu sér í kvenmannsgervi án þess að verið væri að ganga alla leið í einhverju draggi. Þeir léku eins og maður getur ímyndað sér að gömlu bresku leikararnir hafi gert þar sem ungir piltar urðu að leika smástúlkur en hér var ekkert gert til að fela að um pilta væri að ræða. Víkingur Kristjánsson í hlutverki stúlkubarnsins sem vill ný brjóst í fermingargjöf var frábær. Það gerðust nokkur atvik sem greinilega ekki var reiknað með og áttu leikarar sjálfir því stund- um svolítið bágt með að halda sér frá því að springa, en samspil salarins og hópsins var svo gott að slík smáatriði trufluðu engan. Þeir Gísli Örn Garðarsson og Björn Hlynur Haraldsson, voru vægast sagt skrautlegir sem parið Arna og Aron sem birtist skyndilega inni í lífi hjónanna Guðnýjar og Klemens og rugla svolítið þeirra ofurvenjulegu tilveru. Dansat- riði hátt uppi á mæni og niðri á súluprýddum grasigrónum gangi voru frábær einkum þegar Björn Hlynur renndi sér ísmeygilega syngjandi með skökk gleraugu í anda Cary Grant. Guðrún er gamla frænkan sem fylgir kyn- slóðunum og sýnir sig svo að hafa verið viðhald afans allan tímann. Sú hin skakkmynnta mær sem alltaf er að kvarta yfir hávaða mismunandi kynslóða er líka svolítið lím í verkinu. Jóhann- es Níels Sigurðsson lék dömuna þá, auk þess sem hann brá sér í hlutverk Aladdíns sem kom með indverskan mat í furðuboðið. Hann náði mjög góðum tökum á því að kreista hlátur úr áhorfendum. Gísli Örn, sem hippapabbinn, sjó- arinn sem var sífullur í landi, var einnig mjög trúverðugur í samhenginu og hreyfimynstur þeirra allra vel tengd við tímaskeiðin. Eina sem var svolítið þreytandi var ameríska kerlingin, en því var bjargað með því að hún var drepin fyrir allra augum. Búningar Ilmar Stefánsdóttur, einkum hippa- frúardressið tímasetti leikinn vel.Ólafur Thor- oddsen sér um hljóðið sem skiptir öllu máli ásamt lýsingunni sem var í höndum Þórðar Orra Péturssonar og var skemmtileg. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Skemmtileg og heit sýning í vorkuld- anum. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX „Þessi leiksýning hefur allt sem þarf til að skapa vel heppnað og eftirminnilegt leikverk.“ I.Þ., Mbl. „Þetta var geggjuð flott sýning, eins og gelgjan sagði. Og hvað viljið þið meira?“ B.S., pressan.is „Critics choice“ Time Out, London Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is fim. 12/5 kl. 20 – lau. 21/5 kl. 20 – fös. 27/5 kl. 20 Leikhús ★★★★ Húsmóðirin Vesturport Leikarar: Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Jó- hannes Niels Sigurðsson, Víkingur Kristjánsson. Tónlist: Pálmi Sigurhjartarson Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir Lýsing: Þórður Orri Pétursson Hljóð: Ólafur Thoroddsen Frumsamin tónlist: Pálmi Sigurhjartarson Hljómsveit: Benedikt Brynleifsson, Birgir Kárason, Pálmi Sigurhjartarson Hljóðblöndun og upptaka: Þröstur Jóhannsson Leikritið Húsmóðirin var frumsýnt í sal Nýja sviðsins í Borgarleikhúsinu síðastliðinn mið- vikudag. Þá gnauðuðu vindar og vorblærinn slóst við sjálfan sig meðan leikarahópur Vest- urports bauð upp á ferðalag í miklum hita, ferðalag milli tímaskeiða í lífi þriggja kyn- slóða húsmæðra. Áhorfendur komu sér fyrir við lítil kaffihúsaborð og á sviðinu gaf að líta þrjár heimilismyndir allar merktar Bessastöð- um, í höfuð forföðurins Bessa. Á hverju þessara heimila búa hjón með dóttur tilheyrandi þrem kynslóðum úr sömu fjölskyldu. Hér var verið að leika sér með þær ýkjur sem þóttu hvað mest áberandi á hverjum tíma. Vesturportsleikurum fatast ekki listin þó hér sé um léttmeti, hopp og hí að ræða. Á margan hátt var eins og verið væri að fletta Fálkanum og Vikunni og hlusta svolítið á Ríkisútvarpið inn á milli. Sá sem leiðir leikinn áfram er píanó- leikarinn Pálmi Sigurhjartarson sem var hreint frábær, ekki aðeins andardráttur verksins held- ur einnig lungu þess. Mamman í fína húsinu frá sjötta áratugnum með túperaða hárið eins og klippt út úr Axminster-teppaauglýsingu, Ýkjur, dellur og merkjavörur Erlingur E. Halldórsson hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini á laugardag. Verð- launin hlaut hann fyrir þýðingu sína á Gleðileiknum guðdómlega eftir Dante Alighieri. Erlingur E. Halldórsson fékkst fyrr á árum einkum við leikstjórn og leikrita- gerð en hefur í seinni tíð snúið sér æ meir að þýðingum sígildra meistaraverka frá fornöld og síð- miðöldum og sent frá sér þýðing- ar á verkum eftir höfunda á borð við Rabelais, Petróníus, Apúleius, Boccaccio og Chaucer. Fyrir þýð- ingu sína á Gargantúa og Pan- tagrúl eftir Rabelais hlaut hann heiðursverðlaun Frönsku aka- demíunnar árið 1993. Gleðileikurinn guðdómlegi leið- ir lesandann inn í hugarheim mið- alda og lýsir leiðsluferð skáldsins um handanheima þar sem birtast ýmis stig mannlegrar reynslu, allt neðan frá dýpsta víti illsku og kvala til uppheima ljóss og sælu. Á frummálinu er Gleðileikurinn kveðinn undir svonefndum ters- ínahætti með þríteknu rími, sem knýr frásögnina áfram, en Erling- ur þýðir verkið yfir á lausamál sem nær „á sinn hátt með kjarn- miklu, en stundum nokkuð sér- viskulegu orðfæri að gera ferða- lýsinguna ljóslifandi, jafnt innra sem ytra, og miðla lesanda af þeirri óvenjulegu reynslu sem þar er lýst,“ eins og segir í fréttatil- kynningu. Dómnefnd um Íslensku þýðinga- verðlaunin 2011 skipa þau Krist- ján Árnason formaður, Ragnheið- ur Margrét Guðmundsdóttir og Steinunn Inga Óttarsdóttir Fjórir aðrir þýðendur voru til- nefndir til verðlaunanna að þessu sinni: Atli Magnússon var til- nefndur fyrir Silas Marner eftir George Eliot, Njörður P. Njarð- vík fyrir Vetrarbraut eftir Kjell Espmark, Óskar Árni Óskarsson fyrir Kaffihús tregans eftir Car- son McCullers, og Þórarinn Eld- járn fyrir Lé konung eftir Willi- am Shakespeare Verðlaununum fylgja 400.000 kr. sem Rithöfundasamband Íslands og Félag íslenskra bóka- útgefenda leggja til. Verðlaunaður fyrir Dante-þýðingu VERÐLAUNIN AFHENT Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Erlingi E. Hall- dórssyni þýðingarverðlaunin. HÚSMÓÐIRIN „Vesturportsleikurum fatast ekki listin þó hér sé um léttmeti, hopp og hí að ræða,” segir í leikdómi. SÍÐUSTU TÓNLEIKAR VETRARINS í tónleikaröðinni Te og tónlist verða haldnir á Bókasafni Seltjarnarness í kvöld kl. 17.30. Á tónleikunum verða flutt verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Flytj- endur eru Selnes-tríó, en það skipa Auður Edda Erlendsdóttir klarinett,Stefanía Bergljót Stefánsdóttir víóla og Halldór Víkingsson píanó. Verkið Te Deum fyrir kór, ein- söngvara og kammersveit eftir Marc-Antonie Charpentier verð- ur flutt á tónleikum kórs Lang- holtsskirkju næsta sunnudag, 8. maí, klukkan 20. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson og ein- söngvararnir þrettán koma allir úr röðum kórfélaga en flest- ir kórfélaganna hafa lokið eða stunda söngnám. Te Deum er samið á síðari hluta 17. aldar og er fullt af gleði og birtu. Flestir þekkja upphaf verksins sem er prelúdía í rondó- formi og er kynningarlag Evr- ópusöngvakeppninnar. Á sömu tónleikum verður frumflutt nýtt verk eftir Misti Þorkelsdótt- ur með styrk frá Musica nova. Verkið heitir In via aeterna eða Á hinum eilífa vegi. Miðasala fer fram í Langholts- kirkju og miðaverð er kr. 3.500 en 2.500 fyrir félaga í Listafélagi Langholtskirkju, nemendur og eldri borgara. Kór Lang- holtskirkju með tónleika JÓN STEFÁNSSON Stjórnar kór Langholts- kirkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.