Fréttablaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 8
2. maí 2011 MÁNUDAGUR8 Borgardekk EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur mældist 1,8 prósent í Bandaríkjunum á árs- grundvelli á fyrstu þremur mán- uðum ársins, samkvæmt upplýs- ingum viðskiptaráðuneytisins þar í landi. Þetta er verulegur samdráttur á milli ársfjórðunga en hagkerfið óx um 3,1 prósent á síðasta ársfjórð- ungi í fyrra. Ekki bætti úr skák að atvinnuleysi jókst vestanhafs í þarsíðustu viku. Þessi afturkipp- ur í efnahagslífinu þykir draga úr væntingum um viðspyrnu efna- hagslífsins eftir fjármálakrepp- una. Hagtölurnar vestra eru nokkuð undir væntingum en samkvæmt meðal spá Reuters var almennt reiknað með 2,0 prósenta hag- vexti á fjórðungnum. Þá hljóðaði hagspá bandaríska seðlabankans upp á 3,4 til 3,9 prósenta hagvöxt á árinu öllu. Ben Bernanke seðlabankastjóri sagði á blaðamannafundi fyrir helgi að bankastjórnin myndi leggja lóð sitt á vogarskálarnar til að koma efnahagslífinu í gang, þar á meðal að halda stýrivöxtum lágum. Eftir birtingu upplýsinganna í gær birti seðlabankinn endur- skoðaða hagspá þar sem vænt- ingar um hagvöxt voru dregnar niður í 3,1 til 3,3 prósent. Rökin fyrir endurskoðuninni voru veikur bati efnahagslífsins og almennar verðhækkanir sem hafi keyrt upp verðbólgu. Breska ríkisútvarpið, BBC, segir hækkun á raforkuverði ekki óeðlilega nú um stundir enda kald- ur vetur að baki. Reuters-frétta- stofan bætir við að veðurfarið hafi hamlað framkvæmdum utan- dyra. Við þá þróun hafi bæst snörp hækkun á eldsneyti og matvælum, ekki síst korni og hveiti, sem kom illa við buddu neytenda og olli því að þeir héldu að sér höndum í byrj- un árs. jonab@frettabladid.is að Atvinnuleysi og lítill hag- vöxtur í Bandaríkjunum Atvinnuleysi hefur aukist í Bandaríkjunum og hagvöxtur er undir væntingum. Neytendur halda að sér höndum. Seðlabankinn gerir allt hvað hann getur til að koma efnahagslífinu í gang. Á sama tíma og verðhækkanir og aukin verðbólga setur hagspár úr skorðum í Bandaríkjunum varaði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, AGS, við því í gær að vísbendingar væru um ofhitnun í hagkerfum Asíuríkjanna. Hagvöxtur þar mældist 8,3 prósent í fyrra og hljóðar spá upp á 7,0 prósenta hagvöxt þar á næstu tveimur árum. Í skýrslu AGS um aðstæður Asíuríkjanna eftir fjármálakreppuna sem kom út í Hong Kong í gær segir að gert sé ráð fyrir að eftirspurn á heimamarkaði og traustur útflutningur haldi þar uppi hagvexti. Á hinn bóginn hafi verð- bólga aukist hratt frá því í október í fyrra. Það geti verið varasamt þar sem svo virðist sem Asíubúar hafi greiðan aðgang að lánsfé og fasteignaverð sé enn hátt. Seðlabankar ríkjanna verði því að herða tökin og draga úr fjár- magni í umferð til að draga úr ofhitnun hagkerfisins, að sögn AGS. Vísbendingar um ofhitnun í Asíu HORFT Á BANKASTJÓRANN Ben Bernanke seðlabankastjóri sagðist á blaðamanna- fundi í fyrradag ætla að gera allt hvað hann geti til að koma efnahagslífi Banda- ríkjanna á réttan kjöl. Þar á meðal að halda vaxtastigi lágu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MENNTAMÁL Starfsfólki í leikskólum landsins fækkaði úr 5.639 í 5.488 á milli áranna 2009 og 2010. Er það fækkun um 151 starfsmann, en stöðugildum fækkaði einnig, úr 4.847 í 4.770. Körlum sem starfa í leikskólum fjölgar um 23 frá fyrra ári en konunum fækkar um 174. Eru þetta upplýsingar frá Hagstofu Íslands. Brottfall starfsmanna fer hækkandi og er fækkunin mest í aldurshópnum 30 til 39 ára. Barngildi á hvert stöðugildi starfsmanns fer hækkandi, en þar er tekið tillit til aldurs og dvalartíma barnsins og menntunar starfsfólks. Börnum á starfsmann fækkaði talsvert frá árinu 1998 til 2008 en eftir það hefur börnum á hvern starfsmann fjölgað á ný. Á sama tíma og starfsfólki fækkar fjölgar börnum í leikskólum og hafa þau aldrei verið fleiri. Í desember 2010 sótti 18.961 barn leik- skóla á Íslandi og fjölgaði þeim um 245 frá desember 2009. Þó hefur hlutfall barna á leik- skólum á aldrinum eins til fimm ára lækkað lítillega, úr 83 prósentum í 82 prósent. Færri börn en áður fá sérstakan stuðning í leikskólum vegna fötlunar eða félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, en þeim fækkaði úr 9,5 prósentum af heildarfjölda barna í 6,5 prósent. Þá hefur börnum með erlent ríkisfang fjölgað um 82 frá fyrra ári. - sv Aldrei fleiri börn í leikskólum landsins en á síðasta ári: Starfsfólki fækkar en börnum fjölgar LEIKSKÓLABÖRN Á HOFI VIÐ GULLTEIG Aldrei hafa verið fleiri börn í leikskólum landsins, en að sama skapi fækkar starfsfólki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVEITARSTJÓRN Bæjarhrepps á Ströndum samþykkti á fundi sínum að óska eftir því að sam- einast sveitarfélaginu Húnaþingi vestra í Vestur-Húnavatnssýslu, að því er kemur fram á vef Bæj- arins besta. Töluvert samstarf er nú þegar milli sveitarfélaganna og sækja íbúar Bæjarhrepps, sem eru um eitt hundrað talsins, ýmsa þjónustu til Húnaþings vestra. Tæplega hundrað íbúar eru í Bæjarhreppi en hann er sjötta fámennasta sveitarfélag landsins. Flestir hafa atvinnu af landbún- aði, verslun og þjónustu. Dálítið þéttbýli er á Borðeyri, sem er eitt minnsta þorp landsins. - kh. Breytingar á Ströndum: Bæjarhreppur vill sameinast RANNSÓKNIR Stjórn Fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr sjóðnum fyrir árið 2011. Fjár- veiting til sjóðsins í ár var 17,2 milljónir króna. Samtals bárust 45 umsóknir að þessu sinni að upphæð 73 milljónir. Samþykktir voru styrkir til sextán aðila að upphæð átján milljónir. Áframhaldandi fornleifarann- sókn á Skriðuklaustri fékk hæsta styrkinn, þrjár milljónir króna. Fornleifauppgröftur í kirkjugarð- inum á Hofsstöðum í Mývatns- sveit fékk tvær og hálfa milljón. - shá Úthlutun Fornleifasjóðs: Sextán fengu en 45 sóttu um FORNLEIFAPPGRÖFTUR Átján milljónir voru til skiptanna í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti á laugar- daginn fund með Prithviraj Chav- an, forsætisráðherra Maharastra, og fór fundurinn fram í höfuðborg- inni Mumbai samkvæmt tilkynn- ingu frá utanríkisráðu neytinu. Á fundinum ræddu ráðherr arnir möguleika aukins viðskiptasam- starfs Íslands og Indlands meðal annars í sjávarútvegi og jarðhita- málum. Maharastra er annað stærsta hérað Indlands með ríflega 110 milljónir íbúa og þar eru jarðhita- svæði sem indversk stjórnvöld hafa hug á að nýta til að mæta orkuþörf landsins. Jafnframt ræddu ráðherr- arnir fyrirhuguð áform um að indverskir sérfræðingar komi til náms í Jarðhitaskóla og Sjávar- útvegsháskóla SÞ, og mögulegt samstarf í kvikmyndaiðnaði en Mumbai er, auk þess að vera mið- stöð viðskipta og fjármálalífs, einnig höfuðborg indverskra kvik- mynda. kvikmyndaiðnaðurinn er stundum kallaður Bollywood þar í landi. Síðar um daginn hitti utanríkis- ráðherra Kateekal Sankarnaray- anan, héraðsstjóra Maharastra, og ræddu þeir á sömu nótum mögu- legt samstarf Íslands og Indlands. Á föstudag opnaði utanríkis- ráðherra nýja kjörræðisskrif- stofu Íslands í Mumbai. Kjör- ræðismaður Íslands í borginni er Gul Kripalani, stofnandi og fram- kvæmdastjóri indverska sjávarút- vegsfyrirtækisins Pijikay. Össur Skarphéðinsson í heimsókn á Indlandi: Ráðherra ræddi aukið samstarf við Indverja 1 Hvaða geimskutla verður síðust út í geiminn í sumar? 2 Hvað heitir forseti Sýrlands? 3 Hvers lensk er hljómsveitin Cut Copy? SVÖR 1. Aatlantis 2. Bashar Assad 3. Hún er áströlsk VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.