Fréttablaðið - 02.05.2011, Side 6

Fréttablaðið - 02.05.2011, Side 6
2. maí 2011 MÁNUDAGUR6 LANDBÚNAÐUR Landssamtök sauð- fjárbænda (LS) fordæma stjórn- sýslu Matvælastofnunar í fjöl- mörgum málum og ekki síst í Funamálinu. Það er mat LS að enn sé óvíst hversu miklum skaða stofnunin hafi „valdið orðspori íslenskra land- búnaðarvara erlendis með ónákvæmri og illa tímasettri upplýsingagjöf t i l erlendra aðila.“ Matvæla- stofnun vísar gagnrýni LS á bug og furðar sig á því af hverju gagnrýni bænda snýr að eftirlits- stofnun en ekki þeim sem varð þess valdandi að díoxín barst út í náttúruna, eða sorpbrennslunni Funa í Skutulsfirði. LS setti þessa gagnrýni sína fram í samþykktum á nýafstöðn- um aðalfundi. Í samþykkt um Funamálið [díoxínmálið] er stjórn- sýsla Matvælastofnunar fordæmd eins og áður segir og þess er kraf- ist af Alþingi að starfshættir og stjórnsýsla MAST verði tekin til athugunar „af til þess bærum aðil- um enda sé óvíst hversu miklum skaða upplýsingagjöf stofnunar- innar hefur valdið.“ Matvælastofnun hefur í ítar- legri greinargerð svarað ávirð- ingum LS og telur að vegið sé að stofnuninni af full mikilli hörku og ekki „í samræmi við það sem rétt er“. Sindri Sigurgeirsson, formaður LS, sagði í viðtali í Bændablaðinu að tilkynning frá MAST hafi verið fréttaefni í fimm heimsálfum og þar hefði ekki komið fram nauð- synlegar upplýsingar; til hversu lítils svæðis mengunin náði og aðeins náð til brotabrots af fram- leiðslunni. Til þessara orða er vitnað í greinargerð MAST en sagt að brugðist var við fyrirspurnum systurstofnana tveimur dögum eftir að fyrstu fréttir birtust um innköllun díoxínmengaðs kjöts. Var fréttatilkynning send út, meðal annars í gegnum við- vörunarkerfi Evrópu (RASFF). Þar hafi nákvæmlega verið tekið fram hvaða magn var um að ræða og hvert það fór til markaðssetn- ingar. Þá segir að í tilkynningu frá stjórnvöldum hafi komið fram að innköllunin væri gerð í varúðar- skyni. „Við vonum að tekist hafi að róa kaupendur okkar. Þetta var áhyggjuefni þar sem 40 prósent af okkar afurðum fara á erlenda markaði,“ segir Sindri. „Hins vegar vil ég hrósa vinnubrögðum Matvælastofnunar sem brást taf- arlaust við okkar samþykktum og kom með athugasemdir sínar.“ Sindri merkir breytingu innan eftirlitsstofnana eftir að Funamál- ið kom upp, enda sé það fyrsta mál þessarar gerðar hérlendis. „Við kunnum einfaldlega ekki á svona lagað en erum að læra,“ segir Sindri. svavar@frettabladid.is Við vonum að tekist hafi að róa kaupend- ur okkar. Þetta var áhyggju- efni þar sem 40 prósent af okkar afurðum fara á erlenda markaði. SINDRI SIGURGEIRSSON FORMAÐUR LANDSSAMTAKA SAUÐFJÁRBÆNDA fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is Við lífrænt FJÁRMÁL Árni Páll Árnason, efnahags- og við- skiptaráðherra, hefur kallað stjórnendur Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins á sinn fund í næstu viku til að reyna að finna lausn á deilumáli á milli stofnananna. Stofn- anirnar heyra báðar undir efnahags- og við- skiptaráðuneytið. Samkeppniseftirlitið lagði dagsektir á bankann í síðustu viku með því fororði að bankinn hafi hafnað því að gefa upplýsingar um útlán einstakra banka og sparisjóða. Með neituninni hefur Seðlabankinn brotið sam- keppnislög að mati eftirlitsins. Seðlabank- inn útskýrir ákvörðun sína um að neita Sam- keppniseftirlitinu um gögn með þeim rökum að þagnarskylda bankans sé afar rík. Sam- keppniseftirlitið telur hins vegar að bankinn hafi vanrækt ótvíræða lagaskyldu um afhend- ingu gagna og upplýsinga. Árni Páll segir deiluna óheppilega og að greiða verði úr henni sem fyrst. „Það er mikil- vægt að eftirlitsstofnanir vinni í takt. Það er einn af lærdómum hrunsins að þær deili upp- lýsingum að því marki sem mögulegt er. Það er líka mikilvægt að nauðsynlegur trúnaður gildi um viðkvæmar upplýsingar. Það er líka brýnt að þeir sem láta trúnaðarupplýsingar frá sér til tiltekinna stofnanna geti treyst því að farið sé með þær af virðingu.“ Árni segir báðar stofnanirnar gegna afar mikilvægu samfélagslegu hlutverki og í því ljósi nálgist hann deiluna. - shá Árni Páll Árnason kallar til sín stjórnendur Seðlabanka og Samkeppniseftirlits: Ráðherra vill fá lyktir í dagsektadeilunni ÁRNI PÁLL ÁRNASON Ráðherra mun funda með for- svarsmönnum Seðlabankans og Samkeppniseftirlitsins. BANDARÍKIN Bandaríska geim- vísindastofnunin frestaði fyrir- huguðu geimskoti geimskutlunn- ar Endeavour vegna bilunar í kælibúnaði. Reynt verður aftur á morgun. Að sögn yfirmanna NASA er enn óljóst nákvæmlega hvað orsakaði bilunina í kælikerfinu. Endeavour hefur lagt að baki 209 milljón kílómetra leið um geiminn. Fyrirhuguð ferð geim- skutlunnar er hennar tuttugasta og fimmta og jafnframt hennar síðasta. - sm Bilun í kælikerfi Endeavour: Stefnt að geim- skoti á morgun GEIMSKUTLAN Endeavour sést hér á skotpallinum í Flórída. LÍBÍA Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) ákváðu í gær að flytja allt alþjóðlegt starfslið sitt á brott frá Trípólí, höfuðborg Líbíu. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að hópur fólks réðist á skrifstofur SÞ og erlend sendiráð í borginni. Ástæðan mun hafa verið þær fréttir að sonur Múammars Gaddafis Líbíuleiðtoga hefði verið drepinn í loftárás NATO. Í samtali við breska ríkisútvarpið (BBC) sagði starfsmaður SÞ að sú ákvörðun að flytja starfsliðið á brott verði endurskoðuð í næstu viku. Einnig að Líbísk yfirvöld hefðu beðist afsökunar á árásinni á skrifstofu SÞ og kennt „reiðum múg“ um skemmd- arverkin. Í frétt BBC segir einnig að breska sendiráðið í Trípóli hafi verið brennt til grunna. Bresk yfirvöld hafi vísað sendiherra Líbíu úr landi í kjölfar árásar- innar. Þá hafa ítölsku yfirvöld fordæmt árásina sem gerð var á sendiráð þjóðarinnar í Trípóli. - kg Ráðist á skrifstofur Sameinuðu þjóðanna og erlend sendiráð í Líbíu: SÞ flytur starfsfólk frá Trípólí LÍBÍA Stuðningsmenn Gadaffis mótmæla fyrir utan hús leiðtogans sem sprengt var í árás NATO. Sonur Gadaffis var drepinn í árásinni. NORDICPHOTOS/AFP Bændur skjóta fast á Matvælastofnun Sauðfjárbændur fordæma stjórnsýslu eftirlitsstofnana í Funa-málinu og vilja opinbera rannsókn. Matvælastofnun svarar því til að verið sé að hengja bakara fyrir smið og gagnrýnin eigi frekar að beinast að þeim sem mengaði umhverfið. Á FJALLI Ímynd íslenskra landbúnaðarafurða byggir fyrst og síðast á hreinleika. Sauðfjárbændur telja stjórnsýslu MAST í Funamálinu hafa skaðað þá ímynd í augum útlendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SINDRI SIGUR- GEIRSSON Horfðir þú á konunglega brúð- kaupið í beinni útsendingu? JÁ 42,3% NEI 57,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú á opnunarhátíð tón- listarhússins Hörpu? Segðu skoðun þína á Vísir.is MÁLÞING Í tilefni alþjóðadags tjáningar- og fjölmiðlafrelsis verður haldið málþing um tján- ingarfrelsi og mótmælarétt í Bíó Paradís á morgun. Málþingið er skipulagt af íslensku Unesco-nefndinni í samstarfi við Blaðamannafélag Íslands og Mannréttindaskrif- stofu Íslands. Markmið málþingsins er að efna til gagnrýninnar og upp- byggilegrar umræðu um mót- mælaréttinn. Þingið hefst klukk- an tvö eftir hádegi og stendur til klukkan fimm. - sm Alþjóðadagur tjáningarfrelsis: Málþing um mótmælarétt Telja voðaverki afstýrt Þýska lögreglan handtók á föstudag þrjá meinta liðsmenn Al-Kaída- hryðjuverkasamtakanna sem taldir eru hafa ætlað að fremja sprengju- árásir á fjölförnum stöðum þar í landi. Tveir mannanna voru af marokkósk- um uppruna og sá þriðji írönskum. ÞÝSKALAND KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.