Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 6
11. júní 2011 LAUGARDAGUR6
11
-0
56
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
...hvert er
þitt eftirlæt
...endilega f
Hrísmjólkin frá MS fæ
ljúffengum bragðtegu
rifsberja- og hindberj
og gömlu góðu kanils
„Við höfum verið mjög þolinmóð
og gefið lengri frest en aðrir fá. En
nú verðið þið að borga,“ segir Per
Sanderud, forseti Eftirlitsstofnun-
ar EFTA, ESA.
ESA sendi stjórnvöldum áminn-
ingarbréf í maí í fyrra þar sem lýst
var þeirri skoðun að Íslending-
ar hefðu ekki farið eftir tilskipun
samnings Evrópska efnahagssvæð-
isins (EES) um innstæðutrygging-
ar. Stjórnvöld svöruðu bréfinu í
maí síðastliðnum og mótmæltu.
ESA heldur fast við sinn keip
og hefur nú gefið stjórnvöldum
þriggja mánaða frest til viðbótar
til andsvara. Berist svarið ekki
innan marka eða það sé ekki full-
nægjandi mun Icesave-málið fara
fyrir EFTA-dómsstólinn.
Per Sanderud segir Íslendinga
hafa með réttu átt að greiða inn-
stæðutrygginguna skömmu eftir
hrunið. Að gefnum öllum frestum
rann gjalddaginn upp í október
2009.
ESA ákvað hins vegar að bíða
með ákvörðun sína þar til viðræð-
um samninganefndar við stjórn-
völd í Bretlandi og Hollandi lyki.
„Við höfum ekki viljað blanda
okkur í mál ykkar og verið þolin-
móð. En nú hafið þið kosið um það
í tvígang. Nú hefur liðið svo lang-
ur tími síðan þið áttuð að greiða
trygginguna að við getum ekki
beðið lengur,“ segir Sanderud.
Hann leggur áherslu á að um mik-
ilvægt neytendamál sé að ræða,
innstæðueigendur verði að geta
treyst því að fá lágmarkstrygg-
ingu greidda.
Álit ESA er ekki í mótsögn við
neyðarlögin þótt þar sé komið inn
á mismunun stjórnvalda á inn-
stæðueigendum eftir þjóðerni.
Það snýst öðru fremur um tilskip-
un um innstæðutryggingar sem
Íslendingar undirgengust þegar
EES-samningurinn var fullgild-
ur. „Þið verðið að uppfylla þær
skyldur sem stjórnvöld hafa geng-
ist undir með aðild sinni að EES-
samningnum,“ segir Sanderud.
- jab
Íslendingar drógu það of lengi að greiða innstæðueigendum, segir forseti ESA:
„Nú verðið þið að borga“
FRÉTTASKÝRING
Hvað kemur fram í nýju áliti ESA um
Icesave og hvaða afleiðingar hefur
það?
Íslendingum ber að greiða lág-
marksinnstæðutryggingu vegna
Icesave-reikninganna, samkvæmt
áliti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA.
Þar er vísað til mismununar á inn-
lendum og erlendum innstæðu-
eigendum.
Lárus Blöndal lögmaður, sem
sat í Icesave-nefndinni fyrir hönd
stjórnarandstöðunnar, segir þessa
niðurstöðu ekki koma á óvart. Það
að niðurstaðan byggi á mismunun
en ekki ríkisábyrgð á lágmarks-
innistæðum sé þó verri kostur af
tveimur slæmum. Dæmi EFTA-
dómstóllinn út frá sömu forsend-
um gæti það þýtt að Íslendingar
yrðu að greiða innistæðurnar að
fullu.
Eftirlitsstofnunin kemst að
þeirri niðurstöðu að lágmarks-
tryggingin skuli greidd, en hún
nemur ríflega tuttugu þúsund
evrum. „Stofnunin kemst að þeirri
niðurstöðu að það hafi verið ólög-
mæt mismunun að innstæðu-
eigendur í íslenskum útibúum hafi
haft aðgang að sínu fé, en ekki þeir
í erlendu útibúunum. Álitið bygg-
ir á því að rök Íslendinga í mál-
inu standist ekki og þá er það jafn
ólögmæt mismunun að hinir hafi
ekki aðgang að því sem er umfram
lágmarkið,“ segir Lárus. „En við
eigum auðvitað okkar varnir fyrir
EFTA-dómstólnum.“
Lárus og fleiri vöruðu við þess-
ari niðurstöðu á sínum tíma. Hætt
er við að Íslendingum muni reyn-
ast erfitt að uppfylla skilyrði álits-
ins, en samkvæmt því ber þeim að
greiða upphæðina á næstu þremur
mánuðum. Um rúmlega 700 millj-
arða króna er að ræða.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að gera
hafi mátt ráð fyrir þessari niður-
stöðu.
„Ég hef lagt áherslu á að íslensk
stjórnvöld byggju sig undir þetta
og ég geri ráð fyrir því að menn
hafi þegar hafið undirbúning að
málsvörn fyrir EFTA-dómstóln-
um, ef málið fer þangað. Ég bind
vonir við að þrotabúið geti staðið
undir öllum þessum kröfum, en
það getur tíminn einn leitt í ljós.“
Frosti Sigurjónsson, sem var í
forsvari fyrir Kjosum.is, og barð-
ist gegn Icesave-samningunum,
segir hins vegar að þessi niður-
staða hafi komið honum á óvart.
„Þetta kemur á óvart miðað við
þau rök sem við vorum búin að
færa í málinu. Þetta er hins vegar
ekki endapunktur og ég held að
það sé afskaplega fráleitt að þetta
fari svona fyrir dómstólum. Nú
verðum við bara að takast á fyrir
rétti. Ég hefði hins vegar haldið
að þeir hefðu látið sannfærast af
svarbréfinu, sem var ágætt,“ segir
Frosti og vísar þar til svarbréfs
íslenskra stjórnvalda til stofnun-
arinnar.
Eftirlitsstofnun EFTA hefur
það hlutverk að tryggja að Ísland,
Noregur og Liechtenstein uppfylli
skyldur sínar samkvæmt EES-
samningnum. Tilskipun um inn-
stæðutryggingar er hluti af þeim
samningi og samkvæmt áliti stofn-
unarinnar bar Íslandi að tryggja
hverjum sparifjáreiganda 20.000
evrur í kjölfar falls Landsbankans,
og útibúa hans í Bretlandi og Hol-
landi, í október 2008. Það er því
álit stofnunarinnar að Ísland hafi
brotið gegn tilskipuninni með því
að tryggja ekki greiðslu lágmarks-
tryggingarinnar.
Í maí 2010 var stjórnvöldum sent
áminningarbréf þar sem Eftirlits-
stofnunin gerði grein fyrir afstöðu
sinni. Ísland svaraði bréflega í maí
2011 en stofnunin hefur nú hafnað
þeim rökum sem þar komu fram.
Árni Páll Árnason, efnahags- og
viðskiptaráðherra, sagðist í sam-
tali við Vísi ekki óttast dómstóla-
leiðina. Íslendingar hefðu sterk
rök í málinu og mikil samstaða
hefði verið um málsvörnina.
„Icesave-málið varð til vegna
útrásar Landsbankans í Bretlandi
og Hollandi. Við höfum sem þjóð
og stjórnvöld reynt að takast á við
málið og leysa það. Eins og staðan
er í dag eru ekki aðrir kostir í stöð-
unni en að sækja það með skýrum
hætti gagnvart eftirlitsstofnuninni
en ef hún kýs að fara með það fyrir
dóm tökum við til varnar þar. Við
höfum sterk og skýr rök og svo
verðum við að lifa með niðurstöðu
dóms,“ sagði Árni Páll í samtali
við Vísi. kolbeinn@frettabladid.is
Íslendingum ber að borga
Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið út rökstutt álit um að Íslendingum beri að borga lágmarkstryggingar til
eigenda innstæðureikninga Icesave. Málið fer fyrir dómstóla verði ekki greitt innan þriggja mánaða.
Í yfirlýsingu frá EFTA segir: „Íslensk stjórnvöld gerðu greinarmun á inn-
stæðueigendum í íslenskum útibúum og útibúum erlendis þegar gripið
var til neyðarráðstafana í kjölfar bankahrunsins í október 2008. Innstæður
í innlendum útibúum voru aðgengilegar þar sem þær voru fluttar í nýju
bankana, þar á meðal Nýja Landsbankann. Innstæðueigendur í erlendum
útibúum höfðu hins vegar ekki aðgang að reikningnum sínum og nutu ekki
þeirrar lágmarksverndar sem tilskipun [EFTA] mælir fyrir um. Tilskipunin
kveður á um að innstæðutryggingakerfi skuli taka til allra innstæðueigenda
og heimilar þar af leiðandi ekki slíka mismunum á sparifjáreigendum. Ísland
braut því gegn tilskipuninni með því að tryggja ekki greiðslu lágmarkstrygg-
ingar til innstæðueigenda í Icesave.“
Ísland fær þrjá mánuði til að gera viðeigandi ráðstafanir til að fara að
álitinu. Fari Ísland ekki að álitinu, getur ESA ákveðið að leggja málið fyrir
EFTA-dómstólinn.
Ísland braut gegn tilskipun EFTA
PER SANDERUD Þolinmæði okkar er á
þrotum, segir forseti Eftirlitsstofnunar
EFTA. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NEITAÐI AÐ STAÐFESTA Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitaði að staðfesta
lögin um Icesave og þjóðin felldi þau síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VIÐSKIPTI Breska matvörukeðjan
Iceland Foods hagnaðist um 155,5
milljónir punda, jafnvirði 29 millj-
arða króna, fyrir skatt í fyrra. Til
samanburðar nam hagnaðurinn
135,4 milljónum punda árið 2009.
Velta verslunarinnar nam 2,4
milljörðum punda í fyrra, rúmum
fjögur hundruð milljörðum króna,
og er það fimmtán prósenta aukn-
ing á milli ára.
Miðað við afkomuna má ætla að
markaðsverðmæti matvörukeðj-
unnar liggi á bilinu 1,2 til 1,5 millj-
arðar punda, eða allt að 280 millj-
arðar króna. Skilanefnd gamla
Landsbankans vinnur að sölu á 67
prósenta hlut sínum í versluninni
og gæti verðmæti hans þessu sam-
kvæmt numið á bilinu átta hundr-
uð milljónum til einum milljarði
punda, allt að tæpum 190 milljörð-
um króna, miðað við gengið krónu
gagnvart pundi.
Iceland Foods var áður að mestu í
eigu Baugs Group og tengdra félaga
og gjarnan líkt við gullnámu, slíkur
var arðurinn af rekstri verslunar-
innar. Þrotabú gamla Landsbank-
ans fékk þrettán milljarða króna í
arð í fyrra vegna afkomunnar árið
2009. Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um arðgreiðslur vegna afkom-
unnar í fyrra, samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins. - jab
Eignarhluti skilanefndar Landsbankans í Iceland Foods 190 milljarða króna virði:
Fengu 13 milljarða í arð í fyrra
EIN AF 800 VERSLUNUM Rekstur Iceland
Foods hefur skilað eigendum sínum
vænum arði í gegnum árin.
TYRKLAND Fjórir ferðamenn hafa
látist og margir veikst eftir að
hafa drukkið tréspíra sem fram-
reiddur var sem viskí í bátsferð
utan við Bodrum í Tyrklandi.
Talið er að um 12 þúsund flöskur
með þessum banvæna drykk séu
í umferð og er nú verið að kanna
hvar þeim hefur verið dreift.
Fyrir tveimur árum létust þrír
þýskir nemendur eftir að hafa
drukkið eitrað áfengi í Tyrk-
landi. Piltarnir töldu sig vera að
drekka vodka en höfðu í raun
drukkið tréspíra. - ibs
Svikið áfengi í umferð:
Fjórir ferða-
menn látnir
VIÐSKIPTI Bifreiðaumboðin Ingvar
Helgason og Bifreiðar og land-
búnaðarvélar verða mögulega
auglýst til sölu í ágúst.
Í fréttatilkynningu segir að
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
hafi verið falinn undirbúningur
á sölu BLIH ehf., sem er móður-
félag fyrirtækjanna tveggja.
Eigendur BLIH eftir endur-
skipulagningu eru Miðengi ehf.,
dótturfélag Íslandsbanka, SP
fjármögnun hf. og Lýsing hf.
Stefnt er að því að söluferlið hefj-
ist í ágúst og verður þá tilkynnt
um tímasetningar og kröfur til
hugsanlegra kaupenda. - þj
Bifreiðaumboð til sölu:
Söluferli gæti
hafist í ágúst
NÁTTÚRA Ríkisstjórn Íslands hefur
ákveðið að setja fjörutíu milljónir
króna í landgræðslu á svæðum
þar sem mikið öskufall varð í
Grímsvatnagosinu.
Ef ekkert verður að gert mega
íbúar á þessum svæðum eiga von
á öskufoki næstu mánuði. Land-
græðslan lagði því til að gripið
yrði til aðgerða til að draga úr
öskufoki. Aðgerðirnar felast í
sáningu, áburðargjöf og annars
konar gróðurstyrkingu.
Til viðbótar fjárveitingu
stjórnvalda ætlar Landgræðslan
að verja 7,5 milljónum í verk-
efnið, sem hún mun sinna. - þeb
Landgræðsla á gossvæðum:
40 milljónir
vegna öskufoks
GRÍMSVATNAGOS Ef gróður verður ekki
styrktur á svæðinu er hætt við að íbúar
þurfi að þola öskufok reglulega á næstu
mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ertu bjartsýn/n á gengi íslenska
U-21 landsliðsins á Evrópu-
mótinu í Danmörku?
Já 73%
Nei 27%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að biskup Íslands eigi
að segja af sér eftir niðurstöður
rannsóknarnefndar kirkjuþings?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
KJÖRKASSINN