Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 8

Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 8
11. júní 2011 LAUGARDAGUR8 1. Hvaða íslenska sjónvarpskona kom fram í kveðjuþætti fyrir Opruh Winfrey í Bandaríkjunum? 2. Hve há er nýumsamin erlend skuldabréfsútgáfa ríkisins? 3. Hverrar tegundar voru hundar sem lögðust á fé í Eyrarbakkahreppi á fimmtudag? SVÖRIN 1. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. 2. Upp á einn milljarð dala, eða sem nemur 114 milljörðum króna. 3. Þeir voru af Boxer- kyni. Ert þú starfsmaður á leik- eða grunnskóla og tekur laun skv. launaflokki 119? Veistu að sveitarfélögin utan Reykjavíkur eru að bjóða þér minni launahækkanir en öðrum? Getur þú sætt þig við það? Er það vilji sveitarstjórnarmanna að verðmeta störf sumra lægra en annarra? MISMUNUN! Starfsgreinasamband Íslands | Sætúni 1 | 105 Reykjavík | 5626410 | sgs@sgs.is | sgs.is LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn á þrítugsaldri, sem lögreglan telur að séu meðlimir Íslandsdeildar Hells Angels, voru handteknir fyrr í vikunni við iðnaðarhúsnæði í austurborginni. Við húsleit þar fundust rúm- lega 120 kannabisplöntur á nokkr- um ræktunarstigum. Það er mat lögreglu að ræktunin, sem var á tveimur hæðum í húsinu, hafi verið þar í nokkurn tíma. Við húsleitina fundust einnig tvær haglabyssur, tvíhleypa og hálfsjálfvirk. Búið var að sverfa verksmiðjunúmerið af báðum byssunum. Áhugi meðlima Hells Angels á að safna vopnum er þó þekktur víða um heim, að sögn lögreglunnar. Haglabyssurnar eru nú í skoðun. Ýmis gögn er tengjast Hells Angels fundust á staðnum, en tveir aðrir karlmenn á þrítugs- aldri sem hafa tengingu við klúbbinn voru einnig yfirheyrðir vegna málsins. Rannsóknin er liður í samvinnu lögreglustjóranna á höfuðborg- arsvæðinu og Suðurnesjum sem beinist gegn skipulagðri brota- starfsemi, meðal annars þeirri sem tengist alþjóðlegum vélhjóla- hópum. - jss Tveir ætlaðir meðlimir í Hells Angels handteknir með 120 kannabisplöntur: Vélhjólamenn með haglabyssur ORKUMÁL Ný sýning verður opnuð almenningi í Búrfellsstöð á morg- un en þar eru endurnýjanlegir orkugjafar kynntir á gagnvirkan hátt. Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að markmiðið með sýning- unni sé bæði að skemmta gestum og fræða þá um vinnslu og notk- un endurnýjanlegrar orku. Gestir geta meðal annars spreytt sig á því að virkja vatnsfall í þar til gerðu líkani. Ragna Sara Jónsdóttir, forstöðu- maður samskiptasviðs Landsvirkj- unar, segir í samtali við Frétta- blaðið að undirbúningur hafi staðið frá síðasta hausti, en fyrirtækið Gagarín hannaði sýninguna. „Við lögðum upp með að miðla upplýsingum á áhugaverðan og skemmtilegan hátt. Þetta er liður í því hjá okkur í Landsvirkjun að opna fyrirtækið enn frekar og stuðla bæði að gagnsæi og aukinni umfjöllun um orkumál almennt.“ Um eins og hálfs tíma akstur er upp að Búrfellsstöð frá Reykjavík en Ragna Sara segist fullviss um að margir eigi eftir að leggja leið sína á sýninguna, enda sé margt skemmtilegt hægt að gera og sjá í nágrenni virkjunarinnar. - þj Ný gagnvirk orkusýning Landsvirkjunar í Búrfellsstöð opnar á morgun: Sambland af fræðslu og fróðleik FRÓÐLEGT Á sýningunni í Búrfellsstöð má meðal annars sjá þetta líkan af virkjuninni. MYND/LANDSVIRKJUN TVÆR BYSSUR Byssurnar sem teknar voru. Lögreglan rannsakar nú uppruna þeirra. DÓMSMÁL „Við erum dæmd fyrir skattalagabrot sem aldrei voru framin af ásetningi heldur vegna vanrækslu og afglapa löggilts endurskoðanda sem við treystum,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjón- varpsstjóri ÍNN. Ingvi var í gær dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik við rekstur fyrir- tækisins Langárveiða. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða fimmtán milljónir króna í sekt. Eiginkona hans hlaut þriggja mán- aða skilorðsbundinn dóm og til að greiða átta milljóna króna sekt. „Við berum ábyrgð á þessu, þannig eru lög landsins. Við erum búin að eyða langleiðinni í tíu milljónir króna í að sortera úr óreiðunni og eigum enga peninga til að áfrýja,“ segir Ingvi Hrafn. Dómurinn muni því standa. - sh Ingvi Hrafn og frú á skilorð: Eiga ekki fyrir áfrýjun málsins AUSTURRÍKI Austurríska ríkið vill selja tvo fjallstinda í Ölpunum fyrir sem samsvarar um 20 millj- ónum íslenskra króna. Bæði fjöll- in, Grosser Kinigar sem er 2.690 m hátt og Rosskopf sem er 2.600 m, eru við landamæri Ítalíu. Josef Ausserlechner, bæjar- stjóri í bænum Kartitisch sem er við rætur þessara fjalla, bendir á að Grikkir selji eyjarnar sínar. Yfirvöld í Kartitisch hafa áhuga á að bjóða í tindana. Bæjarstjórinn hefur þó ekki áhuga á að greiða nema lítið brot af upphæðinni. - ibs Austurríki í söluhugleiðingum: Alpatindar aug- lýstir til sölu WASHINGTON Hillary Clinton, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur hug á að verða yfirmaður Alþjóðabank- ans. Heimildar- menn frétta- stofu AFP segja hana hafa rætt við embættis- menn í Hvíta húsinu um afsögn sína á næsta ári. Emb- ættismenn í Washington segja að Hillary Clin- ton hafi ekki rætt við neinn í Hvíta húsinu né nokkurn annan um að gerast yfirmaður Alþjóðabankans. „Hún hefur alls engan áhuga á starfinu og myndi ekki taka því þótt það byðist,“ sagði Philippe Reines, náinn samstarfsmaður Obama forseta. - ibs Clinton sögð íhuga afsögn: Sögð vilja í Al- þjóðabankann HILLARY CLINTON VEISTU SVARIÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.