Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 10

Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 10
11. júní 2011 LAUGARDAGUR10 Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar telur að Karli Sigurbjörnssyni og öðrum vígðum þjónum kirkjunnar hafi orðið á mistök í starfi er ásak- anir á hendur Ólafi Skúlasyni bisk- upi komu fram árið 1996 og 2009. Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar hefur lokið störfum og gefið út ítarlega skýrslu þar sem biskupsmálið er rakið og viðbrögð kirkjunn- ar tilgreind. Þá leggur nefndin fram tillögur um úrbætur í starfsháttum kirkjunnar sem verða teknar fyrir á kirkjuþingi á þriðjudag. „Það er niðurstaða rannsóknarnefndarinn- ar að ýmislegt hafi farið úrskeiðis [er varðar viðbrögð kirkjunnar við ásökunum á hendur leiðtoga hennar] og mistök verið gerð. Þótt þær aðstæður sem prestar og aðrir starfs- menn kirkjunnar stóðu frammi fyrir á árinu 1996 hafi vissulega verið mjög erfiðar ein- kenndust vinnubrögð þeirra af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögð- um. Þessi almenna ályktun á einnig við um viðbrögð kirkjunnar á árunum 2008 til 2010 þegar málið var aftur til meðferðar á vett- vangi hennar.“ Rannsóknarnefnd kirkjuþings var kjör- in til að rannsaka viðbrögð og starfshætti vígðra þjóna og annarra starfsmanna þjóð- kirkjunnar vegna ásakana dóttur Ólafs, Guð- rúnar Ebbu Ólafsdóttur, Sigrúnar Pálínu Ingvars dóttur, Dagbjartar Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur á hendur biskupi um kynferðisbrot. Biskup Íslands gerði mistök Róbert R. Spanó, formaður rannsóknarnefnd- arinnar, segir Karl Sigurbjörnsson hafa gert mistök í starfi sínu í tvígang. Fyrst árið 1996 þegar hann tók að sér sálgæslu- og sáttahlut- verk á milli Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Ólafs Skúlasonar, þegar hann hafði komið að málinu persónulega daginn áður á vett- vangi kirkjuráðs. Síðan hafi ýmis mistök verið gerð af hálfu kirkjunnar þegar mál Guðrúnar Ebbu Ólafs- dóttur kom inn á borð Biskupsstofu í mars árið 2009. Það eru talin ámælisverð vinnu- brögð að leysa ekki úr máli Guðrúnar Ebbu heldur láta hana bíða í rúmt ár eftir viðbrögð- um. Það sé ótvíræð niðurstaða nefndarinnar að Karl Sigurbjörnsson hafi sem biskup og forseti kirkjuráðs borið ábyrgð á þeim mis- tökum. Rannsóknarnefndin sendi Karli Sigur- björnssyni bréf í apríl þar sem honum var gefinn kostur á að svara fyrir sig. Í svari hafnar biskup að hafa gert mistök í starfi sínu, hvort sem var árið 1996 í máli Sigrúnar Pálínu eða árið 2009 þegar Guðrún Ebba bað um áheyrn kirkjuráðs á Biskupsstofu. Biskup segir þó í svari sínu að eftir á að hyggja hafi verið umdeilanlegt hvort rétt hafi verið staðið að málum þegar kirkjuráð ákvað að gefa út yfirlýsingu þar sem biskupi var sýndur stuðningur. „Ég tel mikilvægt að litið sé til þeirra erf- iðu og fordæmislausu aðstæðna sem uppi voru um þetta leyti,“ segir Karl í svari sínu. „Mikill þrýstingur var af hálfu biskups og annarra kirkjuráðsmanna að kirkjuráð gæfi út yfirlýsingu vegna þess fárs sem geisaði í kringum málið.“ Ólafur Skúlason fór fram á það við kirkju- ráð og prófasta að gefin yrði út stuðningsyfir- lýsing þar sem ásökununum yrði lýst sem áburði á hendur honum og hann væri saklaus af. Í framburði Karls fyrir rannsóknarnefnd- inni sagði hann að ræða Ólafs yfir kirkjuráði hefði verið „mjög tilfinningaþrungin,“ og „mjög erfitt að sitja undir,“ að því er fram kemur í skýrslunni, þar sem einnig er sér- staklega tekið fram að ljóst sé að Ólafur Skúlason hafi haft mikinn og ráðandi pers- ónuleika og áhrif hans á samstarfsmenn sína hafi verið mikil. Fleiri prestar harðlega gagnrýndir Nefndin telur að ekki leiki nokkur vafi á því að meta beri framgöngu einstakra presta í málinu árið 1996 í því ljósi að ásakanirnar beindust að æðsta yfirmanni þeirra. Ólafur hafði veruleg áhrif á samstarfsmenn sína og það liggi einnig ótvírætt fyrir að hann hafi sjálfur gerst sekur um trúnaðarbrot við með- ferð málsins. Þá gerir nefndin sérstaklega athugasemdir við ákvörðun Baldurs Kristjánssonar, vara- formanns stjórnar Prestafélags Íslands, sem á sama tíma gegndi starfi biskupsrit- ara og vann því náið með biskupi, að sitja áfram fundi stjórnarinnar þar sem erindi kvennanna voru til umfjöllunar. Grunsemd- ir hafi verið uppi um að upplýsingum hafi verið lekið til biskups af hálfu stjórnarmanna í félaginu, en þetta hefur nefndin ekki feng- ið staðfest. Þá hefði stjórnin einnig átt að krefjast þess tafarlaust að Baldur viki sæti á meðan málin voru til umfjöllunar. Gerðar eru athugasemdir við aðkomu Vig- fúsar Þórs Árnasonar að stuðningsyfirlýs- ingu við Ólaf Skúlason. Er það gert í ljósi þess að Vigfús hafði nokkrum mánuðum áður gerst sálusorgari Sigrúnar Pálu og hlýtt á frásögn hennar um að biskup hafði beitt hana ofbeldi. Hafi hann því ekki hugað að skyldum sínum gagnvart skjólstæðingi sínum með því að styðja biskup í kjölfarið. Stjórn Prestafélags Íslands er gagnrýnd í skýrslu nefndarinnar, sem telur hana hafa vanrækt hlutverk sitt samkvæmt lögum og siðareglum félagsins í framhaldi af máli Sigrúnar Pálínu. Geir Waage var formaður Prestafélagsins árið 1996. Hann mótmæl- ir því að mistök eða vanræksla hafi átt sér stað af hálfu stjórnarinnar í andmælabréfi til nefndarinnar. Biskup tjáir sig ekki Karl Sigurbjörnsson biskup vill ekkert tjá sig við fjölmiðla um niðurstöður skýrslunn- ar. Ekki hefur verið hægt að ná í hann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Starfsfólk Biskups- stofu segir Karl farinn úr bænum til að fá ró og næði til að fara yfir skýrsluna og muni fyrst tjá sig um efni hennar á kirkjuþingi 14. júní næstkomandi þar sem innihald hennar verður tekið fyrir. FRÉTTASKÝRING: Niðurstöður rannsóknarnefndar um viðbrögð starfsmanna þjóðkirkjunnar Rannsóknarnefndin telur að þeir kirkjunnar menn sem stóðu að yfirlýsingu kirkjuráðsins, þar sem lýst er stuðningi við Ólaf Skúlason í mars árið 1996, hafi gert alvarleg mistök með því að gefa hana út opinberlega á þeim tíma. Þá telur nefndin Prófasta- félag Íslands, sem einnig birti stuðningsyfirlýsingu í sama mánuði, hafa með því einnig gert alvarleg mistök og yfirlýsingin sé talin tilraun til þöggunar. Þeir sem eftirlifandi eru og áttu sæti í kirkjuráði árið 1996 eru Karl Sigurbjörnsson biskup og Helgi K. Hjálmarsson. Þeir sem eftirlifandi eru og stóðu að yfirlýsingu Prófastafé- lags Íslands árið 1996 eru: Baldur Vilhelmsson, Björn Jónsson, Dalla Þórðardóttir, Davíð Baldursson, Flosi Magnússon, Guðmundur Þorsteinsson, Guðni Þór Ólafsson, Ingiberg H. Hannesson, Sigurjón Einarsson, Sváfnir Sveinbjarnar- son og Örn Friðriksson. Allir prófastar fengu send and- mælabréf. Í svari Arnar Frið- rikssonar, kemur meðal annars fram að hann trúi ekki einu orði sem komi frá konunum sem ásaka Ólaf. Framburður þeirra hafi verið ótrúverðugur og þær hafi sennilega verið að bera biskup sökum til þess að fá út úr honum peninga. „Það er þekkt staðreynd, að stundum ljúga konur í slíkum málum, og hefi ég persónulega orðið fyrir slíku,“ segir í svari hans. Varðandi Ólaf Skúlason segir Örn: „Það er athyglisvert, hvað Ólaf- ur, þessi stóri og glæsilegi maður virðist hafa verið klaufskur í þessum málum. Árangurslausar tilraunir við ótal konur – og meira að segja ekki alltaf svo sérstak- lega eftirsóknarverðar, að því er manni sýnist.“ Telja kirkjuráð og prófasta hafa gert alvarleg mistök með yfirlýsingum sínum: Yfirlýsing tilraun til þöggunar „Mér finnst rétt að biskupinn íhugi stöðu sína eftir þessa skýrslu og mér finnst mikilvægt að heyra hvað hann hefur að segja um þetta mál,“ segir Sigríður Guðmarsdóttir, sóknar- prestur í Reykjavík. Hún segir boltann nú vera hjá biskupi og öðrum þeim sem nefndin telur að hafi gert mistök í ferlinu. „Skýrslan er mikil að vöxtum og það liggur ljóst fyrir að það var þörf á þessari vinnu. Ég er mjög slegin yfir efni hennar og finnst hún marka ákveðin tímamót,“ segir Sigríður. „Þarna er mikið efni, bæði gott og skelfilegt.“ Sigríður hefur hugsað sér að tjá sig um efni skýrslunnar á næstu dögum. Biskup íhugi stöðu sína SIGRÍÐUR GUÐMARSDÓTTIR „Sumpartinn finnst mér eins og nefndin hafi komið með sápu og vatn og svo er það okkar að þvo málið,“ segir Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðs þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot. „Mér þótti mikið til vinnu hennar koma.“ Gunnar Rúnar segir skýrslu rannsóknarnefndar- innar mjög vel unnið skjal. Nefndin hafi fengið send öll þau gögn fagráðsins sem hún bað um og telur hann að hún hafi komið með réttmætar ábendingar til ráðsins í skýrslunni. „Þau sáu allt sem við höfum gert og fengu send gögn. Þau fengu yfirsýn yfir það hvernig við vinnum og hvernig við mótum, þróum og þrosk- um störf okkar,“ segir Gunnar Rúnar og telur að þær ábendingar sem fagráðið fékk í skýrslunni hafi verið réttmætar. Það snýr meðal annars að málefnum Guðrúnar Ebbu árið 2009. „Það er greinilega margt sem má betur fara. Við tökum þessum ábendingum sem þarna eru. Annað væri bara heimska,“ segir formaður fagráðs þjóðkirkjunnar. Afar ánægður með skýrsluna Vígðum þjónum kirkjunnar urðu á alvarleg mistök í biskupsmálinu KIRKJAN BRÁST Rannsóknarnefndin, þau Þorgeir Ingi Njálsson, Róbert R. Spanó og Berglind Guðmundsdóttir, gerðu grein fyrir helstu niðurstöðum rannsóknar- nefndarinnar. Skýrslan er rúmlega 330 blaðsíður og hefur nefndin verið að störfum síðan í nóvember á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sunna Valgerðardóttir sunna@frettabladid.is Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, vill að Karl Sigurbjörnsson segi af sér sem biskup, að því er fram kom í fréttum RÚV í gærkvöld. Hún hefur ráðið lög- mann sem undirbýr málsókn meðal annars á hendur Karli, sem gæti hlaupið á tugum milljóna. Undirbýr málsókn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.