Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 16
16 11. júní 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 F erðahelgin mikla, hvítasunnuhelgin, er gengin í garð með tilheyrandi ferðalögum landsmanna. Umferð um þjóðvegi landsins verður þó ef að líkum lætur ekki eins mikil og í fyrra, að minnsta kosti ekki ef hún verður í takti við þá þróun sem verið hefur það sem af er árinu. Umferðin nú í maí var tíu prósentum minni en í maí í fyrra, sem er þrisvar sinnum meiri samdráttur á umferð en mest hefur áður orðið. Vegagerðin spáir því að níu prósentum færri bílum verði ekið um vegi landsins á þessu ári en í fyrra. Umferðartöl- urnar verða þá á pari við það sem þær voru árið 2005. Frá þessu var greint í fréttum á dögunum og flestir ef ekki allir sem tjáðu sig um efnið töldu samdrátt umferðar hin mestu ótíðindi. Það er auðvitað verulega leitt ef íslenskar fjölskyldur veigra sér við að halda til fundar við land sitt, náttúru og fjölskyldu í öðrum landshlutum vegna þess að eldsneytiskostnaður reynist of þungur. Tæplega fjórtán prósentum minni umferð fyrstu helgina í júní en um sömu helgi í fyrra bendir til að sú sé að ein- hverju leyti raunin. Sé rýnt í tölurnar kemur í ljós að samdráttur er meiri á laugardeginum en föstudegi og sunnudegi, sem bendir til að fólk leggi síður land undir fót í styttri helgarferðir. Fólk virðist sem sagt fremur hika við að skreppa um langan veg í stuttan tíma. Það er líka bagalegt ef verslun dregst saman í nágrannabyggð- um höfuðborgarsvæðisins vegna fækkandi ferða höfuðborgarbúa út á land, eins og fram kom í fréttum á dögunum. Á hitt er þó að líta að umferð er ekki eingöngu frá höfuðborgarsvæðinu og út á land heldur líka á hinn veginn. Þannig má leiða að því líkur að verslun í heimabyggð úti á landi aukist eitthvað á móti færri íbúum af höfuðborgarsvæðinu sem þar versla. Tölur um umferð á vegum eru byggðar á talningu ökutækja, ekki farþega. Þótt líklegt sé að fækkun farartækja leiði til fækk- unar fólks sem fer milli staða er sú fækkun ekki jafnmikil og fækkun ökutækjanna. Má ekki hugsa sér að fleiri noti almenn- ingssamgöngur en áður og að færst hafi í vöxt að fólk sem fer milli byggðarlaga sameinist í bíla? Ekki eru það vondar fréttir. Færri ökutæki þýða hins vegar afdráttarlaust minni eldsneytis- notkun, sem aftur þýðir ekki bara minni útblástursmengun held- ur einnig minni gjaldeyrisnotkun. Minni umferð um vegi stuðlar þannig beint að hagstæðari greiðslujöfnuði. Færri ökutæki þýða líka minna slit á vegum, sem þýðir ekki bara minni svifryks- mengun heldur einnig minni kostnað við viðhald vega. Þá er ótalið að minni umferð dregur áreiðanlega úr umferðar- slysum með öllu sem þeim tilheyrir, minni harmi og miska og minni kostnaði fyrir þá sem fyrir slysunum verða og samfélagið allt. Allar breytingar hafa bæði kosti og galla, auk þess sem breyting sem einum finnst vera til góðs getur öðrum þótt vera til tjóns. Fækkun bíla á vegum hefur þannig í för með sér tiltekna galla en um leið einnig kosti. Þannig er einnig um minnkandi umferð á vegum. Hún hefur nefnilega ýmsa kosti í för með sér, sem vega jafnvel þyngra en gallarnir. SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Minnkandi umferð á vegum: Gott eða slæmt? Stundum snúast vopnin í höndum þeirra sem beita þeim. Birtingarmynd tveggja slíkra atburða kom fram í vikunni sem er að líða. Þannig falla pólitísku málaferlin gegn Geir Haarde í grýttan jarð- veg og forsætisráðherra hefur verið svikinn um gleðina yfir því að kollvarpa stjórnkerfi fiskveiða. Forystumenn VG og sumir sam- fylkingarmenn mátu hugarvíl þjóðarinnar eftir hrunið á þann veg að óhætt væri að færa ákvarð- anir um pólitíska ábyrgð frá fólk- inu inn á borð dómstóla. Þegar á hólminn var komið náðu þeir aðei ns sa m- komulagi um að ákæra Geir Haarde einan úr hópi þeirra tólf sem báru pólitíska ábyrgð í síðustu ríkis- stjórn. Ákæran var þannig nið- urstaða í póli- tískum hrossakaupum. Nú fá forystumenn málaferl- anna vindinn í fangið af því að almenningur virðist vilja halda sig við það grundvallaratriði lýð- ræðisskipulagsins að stjórnmála- menn sæti pólitískri ábyrgð vegna skoðana sinna en ekki refsiábyrgð. Ákærendurnir höfðu vænst þess að geta baðað sig í sviðsljósi póli- tísks uppgjörs með réttarhöldum og aukið með því hróður sinn. Í staðinn fara þeir með veggjum eða þvo hendur sínar hver sem betur getur. Ástæðan fyrir vonbrigðum þeirra er einföld: Þeir skynjuðu ekki hvar mörkin liggja milli lýð- ræðis og gerræðis. Gleðisvik Viðbrögðin við sjávarút-vegsfrumvörpunum eru að sínu leyti athyglis-verðari. Stjórnarflokk- arnir hafa barist gegn markaðs- skipulagi í sjávarútvegi frá þeim degi að þeir lögleiddu það sjálfir árið 1990. Andstaðan hefur birst í fullyrðingum um ranglæti. Þeir hafa boðað réttlæti. Andstaðan hefur einnig birst í staðhæfingum um að auðlindinni hafi verið stol- ið. Þeir hafa lofað að færa þjóðinni hana aftur. Stjórnarflokkarnir höfðu tutt- ugu ár til að koma hugmyndum sínum um stjórn fiskveiða í laga- búning. Þegar tvær vikur voru eftir af þinghaldi eftir tveggja ára setu í ríkisstjórn tókst þeim að leggja fram tvö frumvörp, eitt fyrir hvorn stjórnarflokk, með fyrirvörum nær allra stuðnings- manna stjórnarinnar. Krafa for- sætisráðherra til Alþingis var sú að frumvörpin yrðu rædd og afgreidd áður en vinnuhópur hag- fræðinga, sem skoðar efnahagsleg áhrif þeirra, hefði tök á að birta niðurstöður sínar. Til að mæta kröfum um vand- aðan undirbúning lagafrumvarpa og málefnalegar umræður var rétt að byrja á hagfræðilegri skoð- un málsins. Síðan átti að semja frumvarp um þá leið sem þjónaði almannahagsmunum best. Þessu sneri forsætisráðherra við og vildi hvorki að Alþingi né almenningur fengi að sjá hagfræðingaálitið fyrr en búið væri að samþykkja lögin. Nú eftir tuttugu ár liggur loks fyrir hvernig efna á loforðin um réttlæti í sjávarútvegi. Hver eru þá viðbrögð almennings? Fáir sjá réttlætið og enginn mælir úrræð- unum bót; jafnvel ekki stærstu samtök almannahagsmuna í land- inu eins og ASÍ. Þegar kemur að efndum réttlætisloforðanna er þverstæðan sú að stjórnin fær ekki byr í seglin eins og hún hafði eðli- lega vænst. Hvernig í ósköpunum stendur á því? Hvernig í ósköpunum? Svarið liggur í frumvörpun-um sjálfum. Þau fela í sér brotthvarf frá markaðs-lögmálum og ákveða inn- leiðingu pólitískrar miðstýringar. Það er leiðin að því raunverulega markmiði, sem bjó að baki réttlæt- isloforðunum, að fjölga í samtök- um útvegsmanna og smábátasjó- manna. Nýliðun er það kallað þó að í flestum tilvikum sé um þá að ræða sem áður höfðu verið keypt- ir út úr greininni í hagræðingar- skyni. Þegar öllu er á botninn hvolft á að efna loforð um réttlæti með sérhagsmunagæslu fyrir þá sem vilja koma aftur inn í atvinnu- greinina. Þessi sérhagsmunagæsla kemur niður á hagkvæmni í stórum útgerðarrekstri sem smáum. Hag- fræðingur ASÍ hefur bent á að kostnaðurinn bitnar á almenningi með lægra gengi krónunnar. Þetta var hins vegar aldrei sagt. Framsóknarmenn kúventu sjáv- arútvegsstefnu sinni í þágu sér- hagsmuna fyrir nýja útgerðar- menn. Utanríkisráðherra heillaðist svo af þessum kollhnís að hann gleymdi sem snöggvast að þeir skuthverfðu líka í Evrópumálum og vill nú ólmur fá þá að ríkis- stjórnarborðinu. Sjálfstæðisflokk- urinn situr einn eftir sem mál- svari þeirra almannahagsmuna að stjórnkerfi fiskveiða knýi atvinnu- greinina til mestrar mögulegrar arðsemi. Án arðsemi er engin auðs- uppspretta, enginn skattstofn og engin Evrópusambandsaðild. Vandi stjórnarflokkanna er sá að þeir lofuðu í stjórnarandstöðu að fjölga útgerðum án þess að það kæmi niður á hagkvæmni í þágu þjóðarbúsins. Nú standa þeir and- spænis gagnstæðum veruleika. Vonbrigði þeirra með viðtökur almennings eiga einmitt rætur í því að þeir sögðu aldrei satt. Af því má læra. Vandinn við að segja ekki satt Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Fylgstu með Pepsideildinni í Boltavaktinni á Vísi. Beinar textalýsingar allra leikja, útvarpslýsing á leik í hverri umferð í Boltavarpinu og umfjöllun strax að loknum leik. Myndbönd með viðtölum öll mörkin í sjónvarpi Vísis. Vertu á Boltavaktinni með Vísi í sumar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.