Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 18
18 11. júní 2011 LAUGARDAGUR
Stjórnvöld hafa ákveðið að verja rúmum átta milljörðum króna á þessu ári til
að hækka bætur almannatrygginga og
atvinnuleysisbætur. Þetta er í samræmi við
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að líf-
eyrisþegar og atvinnuleitendur skuli njóta
hliðstæðra kjarabóta og samið hefur verið
um á almennum vinnumarkaði.
Fyrir átta milljarða króna er unnt að
bæta umtalsvert kjör þeirra sem minnst
hafa og draga úr fátækt. Það er markmið-
ið með þessum aðgerðum stjórnvalda þar
sem hækkanir verða mestar hjá þeim tekju-
lægstu í hópi lífeyris- og bótaþega.
12.000 króna hækkun atvinnuleysisbóta og
lágmarkstryggingar lífeyrisþega
Grunnlífeyrir, aldurstengd örorkuuppbót,
tekjutrygging og heimilisuppbót hækka um
8,1% frá 1. júní 2011. Með þessu móti hækk-
ar lágmarkstrygging þeirra sem hafa engar
tekjur aðrar en bætur almannatrygginga um
12.000 krónur. Eftir hækkunina eru lífeyris-
þega sem býr einn tryggðar 196.000 krón-
ur á mánuði en sá sem býr með öðrum fær
169.000 krónur á mánuði. Grunnatvinnuleys-
isbætur hækka einnig um 12.000 krónur í
tæpar 162.000 krónur á mánuði.
Auk framantalinna bótaflokka hækkar
endurhæfingarlífeyrir, barnalífeyrir, upp-
bót á lífeyri og sérstök uppbót til fram-
færslu, vasapeningar og örorkustyrkur
um 8,1%. Sama máli gegnir um mæðra-
og feðralaun, umönnunargreiðslur, maka-
og umönnunarbætur, barnalífeyri vegna
menntunar, dánarbætur, foreldragreiðslur,
fæðingarstyrk og ættleiðingarstyrk.
50.000 króna eingreiðsla
í júní og uppbót í desember
Lífeyrisþegar sem fengu greiddan lífeyri
einhvern tíma á tímabilinu 1. mars til 31.
maí 2011 fá 50.000 króna eingreiðslu í júní.
Sama gildir um atvinnuleitendur sem eru
að fullu tryggðir í atvinnuleysisbótakerf-
inu og hafa staðfest atvinnuleit á tíma-
bilinu 20. febrúar til 19. maí síðastliðinn.
Hafi atvinnuleitendur ekki fullan bótarétt
er eingreiðslan reiknuð í hlutfalli við það
en verður þó aldrei lægri en 12.500 krón-
ur. Eingreiðslurnar svara til eingreiðslu til
launafólks samkvæmt kjarasamningum.
Desemberuppbót elli- og örorkulífeyris-
þega hækkar úr 30% í 42% af tekjutrygg-
ingu og heimilisuppbót. Hækkunin nemur
rúmum 15.000 krónum og verður desemb-
eruppbótin um 52.500 krónur hjá lífeyris-
þegum.
Atvinnuleitendum var í fyrsta sinn greidd
desemberuppbót á liðnu ári. Hún hefur nú
verið bundin í lög og verður í desember
2011 rúmar 63.000 krónur að meðtalinni
15.000 króna eingreiðslu.
Orlofsuppbót lífeyrisþega
Orlofsuppbót til elli- og örorkulífeyrisþega
hækkar úr 20% í 28,3% af tekjutryggingu
og heimilisuppbót eða sem svarar 10.000
krónum og verður rúmar 34.000 krónur.
Hjá þeim sem eru ekki með heimilisupp-
bót hækkar orlofsuppbótin að hámarki um
7.700 krónur.
Bensínstyrkur hækkar og skerðir ekki
lágmarkstryggingu lífeyrisþega
Uppbót vegna reksturs á bíl (bensínstyrk-
ur) hækkar um 8,1%. Til þessa hefur upp-
bótin dregist frá þeirri upphæð sem lögð
er til grundvallar lágmarkstryggingu líf-
eyrisþega. Með breytingunum nú hættir
hún að skerða lágmarkstrygginguna líkt
og gildir um aðrar uppbætur sem greiddar
eru fólki til að mæta kostnaði, til dæmis
vegna sjúkra- og lyfjakostnaðar.
Staða hinna tekjulægstu varin
Haustið 2008 setti forveri minn, Jóhanna
Sigurðardóttir þáverandi félagsmálaráð-
herra, reglugerð sem tryggði lágmarks-
tryggingu á lífeyrisgreiðslur sem var þá
150.000 krónur á mánuði hjá einstakling-
um. Með þessu varð grundvallarbreyting
á stöðu tekjulægstu lífeyrisþeganna í sam-
anburði við lægstu laun á vinnumarkaði og
var lágmarkslífeyrir nú orðinn hærri í hlut-
falli af lægstu launum en hann hafði verið
í þrettán ár.
Stjórnvöld hafa síðustu misseri lagt sér-
staka áherslu á að verja stöðu þeirra tekju-
lægstu í hópi lífeyrisþega. Lágmarks-
trygging lífeyris var hækkuð um 20% í
janúar 2009 sem fór þá í 180.000 krónur,
aftur varð hækkun um 2,3% 1. janúar 2010
og með hækkununum nú fer hún í rúmar
196.000 krónur á mánuði hjá einstaklingum
sem búa einir.
Á myndinni sést hvernig lágmarkstrygg-
ing einhleypra lífeyrisþega hefur þróast
sem hlutfall af lægstu launum síðastliðin
tíu ár.
Þáttaskil urðu í ársbyrjun 2009 þegar
hlutfall þessara greiðslna fór í 115%
miðað við lægstu laun og hafði þá aldrei
verið hærra. Með þeim breytingum sem nú
eru gerðar á lífeyrisgreiðslum helst hlut-
fall þeirra enn vel yfir lágmarkslaunum á
almennum vinnumarkaði.
Elli- og örorkulífeyrisþegar eru stór
hópur landsmanna, rúmlega 40.000 manns.
Aðstæður innan hópsins eru mismunandi.
Margir eru ágætlega settir en hluti hópsins
stendur verr og á erfitt með að ná endum
saman. Stefna stjórnvalda hefur verið sú
að styðja sérstaklega við þá sem lökust
hafa kjörin og verður haldið áfram á þeirri
braut, enda brýnt á þessum tímum þegar
minna er til skiptanna en áður og mikil-
vægt að auka jöfnuð í samfélaginu.
Átta milljarðar til hækkunar
lífeyris og bóta í velferðarkerfinu
Hækkun bóta
Guðbjartur
Hannesson
velferðarráðherra
Lágmarkstrygging einhleypra lífeyrisþega sem
hlutfall af lægstu launum (með eingreiðslu)
Stjórnvöld hafa síðustu
misseri lagt sérstaka
áherslu á að verja stöðu þeirra
tekjulægstu í hópi lífeyrisþega.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/P
O
R
5
53
58
0
6/
11
www.harpa.is
Miðasala á harpa.is, midi.is og í miðasölu Hörpu frá kl. 10-18 á virkum dögum
og kl. 12-18 um helgar. Miðasölusíminn er 528 5050 og er opinn frá kl. 10-18
eða fram að viðburðum.
Heimspíanistar í Hörpu – opnunartónleikar
8. júlí kl. 20.00
Píanókonsert nr. 4 í G-dúr op. 58
eftir Beethoven
Einleikari: Maria João Pires
Stjórnandi: Maxim Vengerov
Hljómsveit: St. Christopher
Einleikstónleikar – Maria João Pires
10. júlí kl. 20.00
Sónata nr. 6 og Silungakvintettinn
í A-dúr op. 114 eftir Schubert
Maria João Pires heldur aðeins fáa einleikstónleika árlega og
er þetta því einstakt tækifæri til að upplifa flutning eins
virtasta píanóleikara samtímans í Hörpu.
TÓN LISTA R- OG
RÁÐST EFN U H ÚSIÐ
Í REYKJAVÍK
MARIA JOÃO PIRES OG MAXIM VENGEROV
TÓNLISTARVIÐBURÐIR Á
HEIMSMÆLIKVARÐA
SALA HEFST
Í DAG KL. 12