Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 26
11. júní 2011 LAUGARDAGUR26
■ Faðir Cyndi Lauper er af þýskum og svissneskum
ættum, en móðir hennar á rætur sínar að rekja
til Sikileyjar.
■ Hún varð fyrsti kvenkyns tónlistarmaðurinn til
að senda frá sér fjórar smáskífur, sem allar náðu
fimm efstu sætum Billboard-vinsældalistans,
af einni og sömu plötunni. Platan var frumraun
hennar, She‘s So Unusual.
■ Hún breytti upprunalegum texta lagsins Girls
Just Want to Have Fun, sem saminn var af
Robert Hazard, því henni fannst textinn lykta af
kvenhatri.
■ Raddsvið söngkonunnar nær yfir fjórar áttundir.
■ Lauper söng einn eftirminnilegasta einsöngskaflann í fjáröflunarlaginu We
Are the World með stórstjörnuhópnum USA for Africa árið 1985.
■ Djassgoðsögnin Miles Davis gaf út sína útgáfu af laginu Time After Time,
sem Lauper samdi ásamt Rob Hyman úr bandarísku rokksveitinni The
Hooters, á plötunni You‘re Under Arrest árið 1985.
■ True Colors, titillag annarrar breiðskífu Lauper frá 1986, var einkennislag
heimsmeistaramótsins í rugby árið 2003.
■ Árið 1995 fékk Lauper Emmy-verðlaun fyrir gestahlutverk í gamanþátta-
röðinni Mad About You. Hún hefur einnig leikið í fjölmörgum öðrum
sjónvarpsþáttum og kvikmyndum og var keppandi í Celebrity Apprentice-
þætti auðkýfingsins Donald Trump á síðasta ári.
■ Leikfangarisinn Mattel hannaði Barbie-útgáfu í líki söngkonunnar sem
hluta af leikfangalínunni „Ladies of the 80‘s“ á síðasta ári.
■ Það var enginn annar en gamla rokkstjarnan og presturinn Little Richard
sem gaf Lauper og eiginmann hennar, David Thornton, saman árið 1991.
arlega vinsæl og eftir svona góða
byrjun reynist oft erfitt að keppa
við söguna. Ég er stolt af upphafi
ferilsins og mjög ánægð með fer-
ilinn eins og hann leggur sig.“
Lady Gaga duglegust í bransanum
Ásamt því að heilla heims-
byggðina með tónlist sinni hefur
Lauper verið einkar atorkusöm í
baráttu sinni fyrir bættum mann-
réttindum víða um heim og fjár-
öf lun fyrir fórnarlömb ýmissa
náttúruhamfara og sjúkdóma. Nú
síðast vann hún með nýstirninu
Lady Gaga að leiðum til að koma
í veg fyrir HIV-smit kvenna. Var
það ánægjuleg reynsla?
„Já, það var mjög mikilvæg
reynsla fyrir okkur báðar. Við
eigum margt sameiginlegt og í
gegnum þessa vinnu erum við
orðnar góðar vinkonur. Lady
Gaga er einstök. Hún er ein allra
duglegasta stelpan í bransanum
og það er ekki annað hægt en að
dást að kraftinum og ástríðunni
sem hún leggur í allt sem hún
gerir. Hún er djarfur listamaður
og ég dái hana.“
Er á dagskránni að þið hljóðrit-
ið lög saman?
„Nei, að minnsta kosti ekki á
næstunni. Hún gaf nýlega út plötu
og ég er viss um að hún hefur nóg
að gera við að kynna hana.“
Er það rétt að þú og eiginmaður
þinn, leikarinn David Thornton,
hafið skírt son ykkar Declyn til
heiðurs öðrum tónlistarmanni
sem heldur tónleika í Hörpu von
bráðar, Elvis Costello, sem heitir
réttu nafni Declan MacManus?
„Við hjónin erum bæði aðdá-
endur Costello. Við höfum hist
nokkrum sinnum, rekist á hvort
annað á tónleikum og ýmsum upp-
ákomum og svo lékum við saman
í einum þætti af gamanþáttaröð-
inni 30 Rock á dögunum. Það var
mjög gaman að vinna með honum.
En Declyn er ekki skírður í höf-
uðið á Costello. Eiginmaður minn
á ættir sínar að rekja til Wales og
Skotlands og við vorum að leita að
nafni frá þeim heimshluta. Okkur
finnst þetta bara frábært nafn.
Sonur okkar heitir fullu nafni
Declyn Wallace Lauper Thornton.
Það er dálítið flott, ekki satt?“
Ævisaga og raunveruleikaþáttur
Hver eru þín helstu framtíðar-
áform?
„Ég er með heilan helling af
verkefnum í burðarliðnum. Ég
er í miðjum klíðum við að skrifa
sjálfsævisögu mína, sem kemur
út seint á þessu ári. Í haust hefst
svo framleiðsla á nýjum raun-
veruleikaþætti sem ég verð aðal-
stjarnan í. Svo er ég þessa dagana
að semja lög fyrir Broadway-upp-
færslu á ensku gamanmyndinni
Kinky Boots. En á þessum tíma-
punkti er ég fyrst og fremst að
einbeita mér að Memphis Blues.“
King, Charlie Mussel-
white, Ann Peebles og
Allen Toussaint. Plat-
an hefur víða hlot-
ið fyrirtaks viðtök-
ur og trónaði meðal
annars á toppi banda-
ríska Billboard Blues-
listans í þrettán vikur
samfleytt. Memphis
Blues er einnig mest
selda plata Lauper í
ein 25 ár eða síðan
önnur plata henn-
ar, hin geysivinsæla
True Colors, kom út
árið 1986.
Hvernig stendur á
því að þú ákvaðst að
einbeita þér að blús-
tónlist á nýjustu plöt-
unni?
„Ég hef verið með
þessa plötu í pípunum
í átta ár. Allt frá því að
ég var lítil stelpa hef
ég haft mikla ástríðu
fyrir þessari tónlist og því var
það eins og draumur fyrir mig
að láta loksins verða
af því að gera heila
svona plötu. Þegar ég
var lítil las ég blaða-
grein þar sem sagði
að einhver af hljóm-
sveitunum sem ég var
hrifin af á þeim tíma
væri undir sterkum
áhrifum af blúsnum,
svo ég fór beinustu
leið og keypti plötur
með Muddy Waters,
Ma Rainey og Big
Momma Thornton. Ég
heillaðist gjörsamlega
og hef verið heilluð
síðan. Það voru mikil
forréttindi að vinna
með þessum goðsögn-
um úr blúsheiminum,
hverri einustu þeirra.“
Syng ennþá gömlu
lögin
Eðli málsins sam-
kvæmt geta áhorf-
endur í Hörpu átt von á að heyra
mörg lög af Memphis Blues-
plötunni, nýjustu afurð Lauper.
En munu gömlu smellirnir frá
níunda áratugnum, þegar frægð-
arsól hennar reis sem hæst, einn-
ig heyrast á Íslandi? Lög á borð
við Girls Just Want to Have Fun,
Time After Time, All Through the
Night og True Colors?
„Já, að sjálfsögðu. Ég hef
ennþá mjög gaman af því að
flytja þessi gömlu lög. Ég vil líka
gleðja áhorfendurna og hvet þá
því til að fjölmenna og við getum
haldið partí saman.“
Finnurðu fyrir því að einhverjir
hugsi fyrst og fremst um þig sem
listamann frá níunda áratugn-
um, þrátt fyrir að þú hafir verið
í bransanum í nærri þrjá áratugi
og tæklað hinar ýmsu tegundir
tónlistar, frá hreinræktuðu poppi
út í rólegri lendur, klúbbatónlist
og nú síðast blús?
„Já, því miður finn ég fyrir því
á köflum að ímynd mín í hugum
margra sé föst á níunda áratugn-
um. En ég skil það líka ágæt-
lega. Fyrsta platan mín [She‘s So
Unusual frá árinu 1983] var gríð-
É
g veit ekki mikið um
Ísland, en mig hefur
alltaf langað til að
heimsækja landið.
Þegar umboðsmaður-
inn minn lét mig vita að það væri
möguleiki á að halda tónleika á
Íslandi varð ég mjög ánægð,“
segir bandaríska söngkonan
Cyndi Lauper, sem heldur tón-
leika í Hörpu annað kvöld, sunnu-
daginn 12. júní.
Harpa er fyrsti viðkomustað-
ur hinnar 57 ára gömlu Lauper
á tónleikaferðalagi hennar um
Evrópu sem stendur yfir fram
í lok júlí. Hún segist að vonum
spennt fyrir heimsókninni, enda
hafi hún heyrt fjölmargar sögur
af landi og þjóð frá vinum sínum
sem hafi komið til Íslands.
„Ég veit að landið er mjög fal-
legt og hef heyrt margar sögur af
eldfjöllum og risastórum jöklum.
Svo er ein af mínum uppáhalds-
hljómsveitum, Sykurmolarnir,
frá Íslandi. Ég dýrkaði þá hljóm-
sveit þegar hún kom fyrst fram á
sjónarsviðið og ég er enn á þeirri
skoðun að Björk sé snillingur. Ég
hef líka heyrt að Íslendingar séu
mjög vinaleg þjóð. Ég gæti því
ekki hugsað mér betri stað til
að hefja tónleikaferðina á. Þetta
verður frábært. Mikið ævintýri,“
segir Lauper.
Alltaf verið blúsaðdáandi
Hljómleikaferðalagið um Evr-
ópu er liður í kynningu Lauper
á sinni elleftu og nýjustu hljóm-
plötu, Memphis Blues, sem söng-
konan sendi frá sér síðastlið-
ið sumar. Á plötunni spreytir
Lauper sig á hreinræktaðri blús-
tónlist í fyrsta sinn og nýtur við
það fulltingis kanóna á blús-
sviðinu á borð við sjálfan B.B.
Frábært að byrja á Íslandi
LANGUR FERILL Cyndi Lauper segist ætla að syngja mörg lög af nýjustu plötu sinni, Memphis Blues, í Hörpu. Hún telur þó líka í
gömlu smellina frá níunda áratugnum og hefur enn gaman af að flytja þá. MYNDIR/ YUKI KUROYANAGI OG NORDICPHOTOS/GETTY
■ TÍU STAÐREYNDIR UM CYNDI LAUPER
Bandaríska söngkonan
Cyndi Lauper, sem
sló í gegn um miðjan
níunda áratuginn með
ofursmellum á borð við
Girls Just Want to Have
Fun og Time After
Time, heldur fyrstu
tónleikana á Evróputúr
sínum í Hörpu annað
kvöld. Kjartan Guð-
mundsson spjallaði við
Lauper um nýjustu
blúsplötuna hennar,
upphaf ferilsins, vin-
konuna Lady Gaga og
helstu framtíðaráform.
Það voru
mikil forrétt-
indi að vinna
með þessum
goðsögnum
úr blúsheim-
inum, hverri
einustu
þeirra.