Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 28
11. júní 2011 LAUGARDAGUR28
Stóri maðurinn yfirgefur völlinn
Í miðri úrslitarimmu Dallas Mavericks og Miami Heat tilkynnti einn frægasti körfuknattleiksmaður allra tíma, Shaquille O‘Neal,
að hann væri hættur keppni eftir nítján leiktímabil í NBA-deildinni. Kjartan Guðmundsson tók saman upplýsingar um skemmti-
kraftinn Shaq, sem margir telja einn albesta miðherja deildarinnar frá upphafi ásamt Bill Russell, Wilt Chamberlain og fleirum.
ÍTREKUÐ MEIÐSLI
Shaq glímdi oft og tíðum við meiðsli og reyndist táin honum
sérlega erfið. Þegar hann frestaði því að fara í aðgerð á tánni þar
til rétt fyrir upphaf leiktíðarinnar 2002 til 2003, og hlaut bágt fyrir,
útskýrði hann mál sitt á þennan hátt: „Ég meiddi mig á vinnutíma
og ég læt mér batna á vinnutíma.“
VERÐMÆTIR FÆTUR
Íþróttavörufyrirtækið Reebok hannaði fyrst skó á
risavaxna fætur Shaq árið 1993 og kallaði gerðina
„Shaqnosis“. Síðar gerði Shaq samning við kínverska
fyrirtækið Ni Ling um framleiðslu á „Shaq Ni Ling“-
skóm og meðal stoltra eigenda slíkra er enginn annar
en Bandaríkjaforsetinn Barack Obama.
KJAFTFOR SKEMMTIKRAFTUR
Shaq er af mörgum talinn einn skemmtilegasti leikmaðurinn í
sögu NBA-deildarinnar og uppátæki hans innan vallar sem utan
voru eins og himnasending fyrir fjölmiðlafólk. Kjafturinn kom
kappanum þó gjarnan í vandræði, til að mynda þegar Lakers lék
gegn Sacramento Kings í úrslitum Vesturdeildarinnar árið 2002
og hann kallaði liðið ítrekað „Sacramento Queens“ í viðtölum.
Eins skaut hann oftsinnis eitruðum skotum á Kobe Bryant, liðs-
félaga sinn, og í rappkeppni árið 2008 endaði Shaq atriði sitt á
að spyrja Bryant: „Hvernig bragðast svo rassinn á mér?“
HACK-A-SHAQ
Allan feril sinn voru Shaq afar mis-
lagðar hendur á vítalínunni, sem
andstæðingar nýttu sér til hins ýtrasta
og brutu á honum í gríð og erg. Var
þessi ákveðna leikaðferð kölluð „Hack-
A-Shaq“. Shaq var ekki mikið hrifnari
af þriggja stiga skotum, enda skoraði
hann aðeins eina slíka körfu á nítján
ára löngum ferli sínum í NBA.
HVAÐ TEKUR VIÐ?
Margir hafa velt því fyrir sér hvað Shaq tekur sér fyrir
hendur nú að ferli loknum. Hann hætti snemma í skóla til
að sinna ferlinum, en útskrifaðist þó úr háskóla árið 2000
og sagðist þá „loksins geta fengið sér almennilega vinnu“.
Hann hefur löngum lýst yfir áhuga sínum á að gerast
lögreglumaður, og er reyndar heiðursmeðlimur lögreglu-
embættisins í Miami, en flestir telja líklegt að Shaq gerist
fljótlega sérfræðingur sjónvarpsstöðva í NBA-tengdum
málum, enda vel til slíkra starfa fallinn.
HENGD UPP Í RJÁFUR
Shaq lék með sex NBA-liðum á nítján ára ferli;
Orlando Magic, LA Lakers, Miami Heat, Phoenix
Suns, Cleveland Cavaliers og Boston Celtics. Stjórn
Lakers hefur þegar gefið út að treyja Shaqs númer
34 verði hengd upp í Staples Center-höllinni, en
margir eru einnig á þeirri skoðun að Magic og
Heat ættu að fara að fordæmi þeirra.
GUÐDÓMLEGUR GUMPUR
Shaq er rassstór af náttúrunnar hendi, sem
reyndist hin mesta blessun þegar hann keyrði
með látum upp að körfunni og tók hvert frákastið
á fætur öðru á ferlinum. Það var erfitt að komast
nálægt honum.
HÖFUÐSTÓR
Shaq er af mörgum talinn hafa eitt
stærsta egóið í sögu NBA. Eins vinsæll og
hann var meðal áhorfenda var það ljóður
á ráði leikmannsins að skilja við nánast
öll liðin sem hann lék með í illu.
HRINGARNIR
Shaq vann fjóra NBA-titla, þrjá með Lakers frá 2000
til 2002 og með Heat 2006. Hann var valinn nýliði
ársins 1993, var fimmtán sinnum valinn í Stjörnuliðið
(þar af þrisvar valinn besti maður Stjörnuleiksins), var
þrisvar sinnum besti maður úrslitakeppninnar og einu
sinni besti maður leiktíðarinnar. Þá var Shaq tvisvar
sinnum stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar og er
fimmti stigahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi.
MAÐUR MARGRA GÆLUNAFNA
Fjölmiðlafólk var iðið við að finna upp á
gælunöfnum fyrir Shaq, en ekki þó jafn duglegt
og leikmaðurinn sjálfur. Diesel, Shaq Fu, Big
Daddy, Súpermann, Big Cactus, Big Shaqtus,
Wilt Chamberneezy og Big Conductor eru ein-
ungis örfá dæmi um þau. Frægasta gælunafnið
er þó líklega MDE (Most Dominant Ever).