Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 32
2 matur
BLÁR BRONCO OG NESTISKARFA
Friðrika Benónýsdóttir skrifar
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir
Pennar: Friðrika Benónýsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Júlía Margrét Alexandersdóttir, Marta María Friðriksdóttir og Ragnheiður
Tryggvadóttir. Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Stefán Karlsson Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is v
Sunnudagsbíltúrar bernskunnar eru sveipaðir töfraljóma: Okkur yngstu systkinunum smalað í baksæti Broncosins, mamma vara-lituð á hælaháum skóm í framsætinu, pabbi blístrandi við stýrið
og nestiskarfan lokkandi í rýminu fyrir aftan. Það var nefnilega ekk-
ert verið að stoppa í sjoppum á ferðalögum þess tíma. Morgunninn fór í
að smyrja flatkökur með reyktum Mývatnssilungi og hangikjöti, skella
kleinum, heimabökuðum kanilsnúðum og vínarbrauði í Macintosh-dós,
hita kakó til að setja á hitabrúsa, brjóta saman servíettur og pakka svo
öllu saman, ásamt drykkjarílátum og áhöldum, í körfu.
Stór hluti spenningsins og ánægjunnar fólst í því að taka til nestið
og þótt áfangastaðirnir væru oftar en ekki perlur íslenskrar náttúru;
Ásbyrgi, Hljóðaklettar, Dettifoss, Dimmuborgir eða Vaglaskógur, var
tilhlökkunin að stórum hluta bundin við það að bera körfuna góðu úr
bílnum, finna sæmilega sléttan blett til að setjast á, breiða dúk á jörð-
ina og raða góðgætinu á hann. Meira að segja máltíðin sjálf var hálfgert
aukaatriði. Það var þessi óvenjulega umgjörð, ásamt því að hafa pabba
og mömmu út af fyrir okkur, sem gerði stundina magíska.
Á tímum einnota grills og tilbúins grillkjöts er slík nestisgerð orðin
næsta fátíð, einfaldara og auðveldara að renna við í búð, kaupa grill-
kjöt og meðlæti, eða einfaldlega stoppa í vegasjoppu og kaupa pylsur
með öllu á línuna. Matarblaðið í dag er þó helgað þeim góða sið að hafa
með sér mat að heiman á ferðalaginu, hvort sem um lengri eða styttri
ferðir er að ræða, gefa sér tíma til að pakka honum fallega og njóta þess
að dedúa við „borðhaldið“ úti í náttúrunni. Það gefur ferðinni örlítinn
heimsborgarabrag að hafa með sér gúrkusamlokur og skonsur, eða rauð-
vínsflösku, osta og baguette, en íslenska góðmetið er þó auðvitað efst á
blaði í íslenskri náttúru.
Ég á minningar úr ferðum í fjallakofa þar sem við gátum eldað mat á kolavélum. Til
dæmis í Ferðafélagsskálann í
Hvítárnesi og skála Fjallamanna
á Fimmvörðuhálsi. Þá tókum við
bara heimilismatinn með okkur,
saltkjötið, súpukjötið, fiskinn og
kartöflurnar,“ byrjar Ari Trausti
þegar hann er beðinn að rifja upp
hvað hann snæddi í fjallaferðum
með foreldrum sínum þegar hann
var að alast upp. „Við fórum líka
í lengri ferðir þar sem mjög erf-
itt var að elda eitthvað að ráði og
þá kom dósamaturinn að góðum
notum, kjötbollur, fiskbúðingur og
fleira í þeim dúr. Við vorum alltaf
með prímus með okkur, bara venju-
legan sænskan steinolíuprímus,“
heldur hann áfram. Minnist þess
líka að fjölskyldan og ferðafélag-
arnir lifðu á landsins gæðum eftir
föngum. „Pabbi var mikill veiði-
maður og var með stöng og haglara
með sér svo hann veiddi gjarnan
silung eða gæs. Silungur var mjög
oft á borðum.“
Þá er komið að dagsbitanum.
Hvernig var hann? „Ef við vorum
að ganga á Vífilsfellið eða önnur
fjöll í nágrenninu var það nokk-
urn veginn visst að það var brauð
með osti eða flatkaka með kæfu í
nestisboxinu. Svo var drykkur með
í hitabrúsa, yfirleitt kakó og stund-
um te. Amma mín var voða mikil
tekona og hún fékk mig til að taka
með mér te með sítrónu og sykri.“
Ekki kveðst Ari Trausti hafa átt
sér uppáhaldsferðamat sem hann
hafi haft sérstakt dálæti á. „Sil-
ungur og kartöflur er auðvitað fín-
asti matur en annað var nú ekkert
spennandi. Bara ósköp venjuleg-
ur matur og ekkert til að eiga sem
uppáhald. Það eina sem ég ánetjað-
ist var flatbrauðið og lifrarkæfan.
Ef ég fer í dagstúra núna hef ég það
gjarnan með mér. Mér finnst það
mjög sniðugur orkugjafi.“ - gun
Ánetjaðist
„Við tókum bara heimilismatinn með okkur, saltkjötið, súpukjötið, fiskinn og kartöflurnar,“ segir Ari Trausti um nestisútbúnað-
inn á uppvaxtarárunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FLATBRAUÐI OG KÆFU
Ungur fór Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur að ganga á fjöll með
foreldrum sínum, Guðmundi frá Miðdal og Lydíu Pálsdóttur sem voru meðal
frumkvöðla í að ferðast um hálendi Íslands. Hvað skyldi hafa verið í matinn?
Hvunn-
dagsF
For-
réttur A
Aðal-
réttur
Kökur
E Eftir-réttur
FiskurHollt
Hvunndags/til
hátíðabrigða
BAKKABRIM
Bakkabrim er lítið lífrænt kaffiskýli við
Eyrarbakkabryggju. Þar er boðið upp á
nýmalað lífrænt kaffi, te og heitt súkk-
ulaði. Auk þess kokka eigendurnir Arna
Ösp Magnúsdóttir og David Kelley upp
indælar heimalagaðar súpur, heimabak-
að brauð og kökur auk alls konar snarls.
Þau nota lífrænt og árstíðabundið hrá-
efni úr héraði eins og kostur er auk þess
að útbúa allan mat frá grunni.
Umhverfisvernd er þeim hugleikin.
Öll götumálin eru úr lífrænt niðurbrjót-
anlegum efnum, þau flokka allt rusl og
nota umhverfisvæn hreinsiefni.
Arna og David opnuðu Bakkabrim í
fyrrasumar en húsið byggðu þau sjálf.
Kaffiskýlið stendur á fallegum stað við
höfnina og stutt er að ganga niður að strönd. Þeir sem vilja njóta veitinga utandyra geta fengið
útbúnar lautarkörfur með góðgæti frá Bakkabrimi. Hægt er að fá lánaða fuglaskoðunarbók og
kíki, krabbagildrur og veiðistangir. Þá geta börnin sent flöskuskeyti auk þess sem boðið er upp á
jóga á ströndinni, fuglaskoðun og fleira skemmtilegt fyrir hópa.
Í sumar verður haft opið frá 11-17 alla daga, nema mánudaga.
Lautarferð í fjörunni
lengra
geymsl
uþol
nú með
tappa
Ljúffengar uppskriftir með matreiðslurjóma
er að finna á www.gottimatinn.is
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Uppskriftarbók og DVD diskur fylgir
Vita Mix svunta og
kanna fylgja með á
meðan birgðir endast
Blandarinn sem allir eru
að tala um!