Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 36
11. júní 2011 LAUGARDAGUR2
þegar það er búið að rölta í bæinn.
Það gleður mig ætíð hversu vinsæll
ég er hjá breiðum aldurshópi og á
böllin kemur fólk af öllum kynslóð-
um,“ segir Geirmundur, sem hallar
sér í leiguherbergi eftir böll í borg-
inni en leggur árla af stað norður
til að vera kominn í sveitastörfin á
Geirmundarstöðum upp úr hádegi.
„Svo næ ég helginni úr mér með
því að fara tímanlega í háttinn á
sunnudagskvöldi og þá vakna ég
flottur til vinnu í kaupfélaginu
klukkan átta á mánudagsmorgni,“
segir Geirmundur, sem saknar
sveitaballa sem sveipuð voru róm-
antík bjartra sumarnótta í íslenskri
sveit.
„Hér áður fyrr voru sveita-
böll auglýst og fullt hús helgi eftir
helgi, en nú þarf helst hestamanna-
mót eða árlega viðburði svo hægt
sé að slá upp sveitaballi. Það þykir
mér miður í íslenska sumrinu og er
menning sem er eftirsjá að.“
thordis@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Geirmundur Valtýsson
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
SUMAR 14
Gondólar og rómantík verða á meðal þess sem skreyta þessa glæsilegu ferð okkar um Ítalíu
og Austurríki. Flogið er til Mílanó, þaðan ekið til Stresa við Lago Maggiore vatn þar sem gist
verður í 3 nætur. Við siglum yfir til eyjunnar Isola Bella, þar sem höll Borromeo ættarinnar
er að finna, en hana prýðir einn fallegasti blómagarður sunnan Alpafjalla. Við færum okkur
yfir að Gardavatni, til Moniga del Garda og gistum þar í aðrar 3 nætur. Skoðunarferðir
þaðan til Salò, Desenzano del Garda, stærsta bæjar við vatnið og Sirmione. Þá er komið að
Gondólahátíðinni „Regatta“ í Feneyjum, sem er elsta hátíð þeirra eða frá 12. öld.
Upphaflega var hátíðin haldin til að fagna velgengni og sigrum sjóflotans á hafi úti og má
því sjá röð skreyttra gondóla og fólk klætt litríkum búningum frá 16. öld. Gistum í 3 nætur í
Mestre, þaðan sem er frábært útsýni yfir til Feneyja. Síðan er haldið til Austurríkis þar sem
dvalið verður í 3 nætur í Pertisau við Achensee. Förum í Gramai-Alm þjóðgarðinn í
Karwendel fjöllunum og til Mayrhofen, eins aðalferðamannabæjar í hinum fagra Zillertal.
Ferðinni lýkur svo með ævintýraferð með gufulest frá Zillertal yfir Inndalinn og að Achensee.
Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir
Verð: 255.300 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu,
ferja 2 daga yfir til Feneyja, gufulestarferð í Zillertal og íslensk fararstjórn.
27. ágúst - 8. september
Gondólahátíð í Feneyjum
Skeifunni 3j - sími 553-8282 - www.heilsudrekinn.is
Opið laugardaga og sunnudaga
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
AFSLÁTTUR
-20%
GLÆSILEG
SPARIDRESS
SKOÐIÐ SÝNISHORN Á LAXDAL.IS
Þetta verða föt af okkur grjón-
unum, já,“ segir tónlistarmaður-
inn Pan Thorarensen, sem ásamt
félögum sínum úr tónlistarheimin-
um, þeim Jóhannesi Birgi Pálma-
syni, Benedikt Frey Jónssyni og
Ársæli Þór Ingvasyni, stendur fyrir
fatamarkaði í bakporti Priksins við
Bankastræti 12 milli 13 og 18 í dag.
Pan segir markaðinn þó ekki ein-
göngu snúast um föt heldur verði
þarna „fullt af alls kyns dóti“,
meðal annars vínylplötur og fleira
tónlistartengt. „Þetta eru ýmsir
hlutir sem við höfum fundið við
tiltekt í herbergjunum okkar og
margt sem kemur á óvart,“ segir
hann og glottir. „Sumir halda að
þetta verði bara rapparaföt en við
höfum allir mjög ólíkan fatastíl svo
úrvalið er fjölbreytt. Fullt af stelpu-
fötum og skóm líka, þannig að þótt
við köllum þetta Strákamarkað
gleymdum við ekkert að hugsa um
stelpurnar.“
Spurður hvaðan stelpufötin séu
komin vefst Pan eilítið tunga um
tönn, en segir að lokum að þau séu
eiginlega bara héðan og þaðan.
„Eitthvað aðeins er stolið úr fata-
skápum eiginkvennanna, en þær
vita ekkert af því svo þær reka
sennilega upp stór augu þegar þær
mæta á markaðinn í dag og sjá fötin
sín til sölu.“ Er ekki möguleiki á
að selja þeim eitthvað af fötunum
aftur? „Það gæti verið,“ segir Pan
hugsi. „Veit samt ekki hvort það
er mikill bisness í því, en það gæti
hugsast.“
Til glöggvunar þeim sem eiga
erfitt með að koma nöfnum tón-
listarmannanna fyrir sig má geta
þess að þeir eru allir betur þekkt-
ir undir sviðsnöfnum sínum. Pan
sem Beatmakin Troopa, Ársæll
sem Intro Beats, Benedikt sem B-
Ruff og Jóhannes kallar sig Epic
Rain. Þeir verða allir á staðnum
og geta eflaust sagt væntanleg-
um viðskiptavinum skemmtilegar
sögur sem tengjast fatnaðinum og
hlutunum á markaðnum ef þess er
óskað. fridrikab@frettabladid.is
Fataskápar kvenna rændir
Fjórir ungir tónlistarmenn standa fyrir Strákamarkaði á Prikinu í dag. Þar verða seld föt af þeim sjálfum,
auk ýmissa annarra hluta, jafnvel föt úr fataskápum eiginkvennanna, fjarlægð að þeim forspurðum.
Tónlistarmennirnir Pan Thorarensen og Jóhannes Birgir Pálmason standa fyrir Strákamarkaði á Prikinu við Bankastræti milli kl. 13
og 18 í dag, ásamt Benedikt Frey Jónssyni og Ársæli Þór Ingvasyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Rammagerðin verður með starfsemi í sölu-
turninum á Lækjartorgi framvegis. Turninn var
reistur á torginu fyrir konungskomuna 1907 og
er því orðinn rótgróinn í bæjarmyndinni.