Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 52
11. júní 2011 LAUGARDAGUR14
Lundinn minjagripaverslun leitar að
sumarstarfsfólki. Umsækjendur þurfa
að vera 19 ára eða eldri, með góða
enskukunnáttu og mikla þjónustulund.
Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá með
mynd á info@geysir.net fyrir 17.júní
SUMARSTARF Í
MIÐBÆNUM
H a f n a r s t r æ t i 5 o g S k ó l a v ö r ð u s t í g 1 0
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins en lýtur sérstakri stjórn.
Seðlabankinn fer með stjórn peningamála á Íslandi og hefur með höndum margþætta
starfsemi í þeim tilgangi. Meginmarkmiðið með stjórn peningamála er stöðugleiki í
verðlagsmálum. Seðlabankinn á enn fremur að sinna viðfangsefnum sem samrýmast
hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að
virku og öruggu fjármálakerfi , þ.m.t. greiðslukerfi í landinu og við útlönd.
Helstu verkefni:
• Umsjón með launavinnslu bankans og dótturfélaga
• Þáttaka í ráðningarferlum og nýliðun
• Umsjón með starfslýsingum, starfsmannasamtölum,
starfsánægjukönnunum o.fl.
• Skýrslugerð um starfsmannamál
• Utanumhald starfsmannaupplýsinga
• Utanumhald um stefnur í starfsmannamálum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er skilyrði
• Reynsla og þekking á kjara- og starfsmannamálum
er skilyrði
• Þekking af Oracle mannauðs- og launakerfi er kostur
• Færni í Excel og framsetningu á rituðu efni
• Traust, trúnaður og færni í mannlegum samskipt-
um eru lykilatriði í fari þess starfsmanns sem ráðinn
verður
• Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi
• Frumkvæði, nákvæmni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Laust starf hjá Seðlabanka Íslands
Sérfræðingur í starfsmanna- og launamálum á rekstrarsviði Seðlabanka Íslands
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta H. Bragadóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, í síma 569-9600.
Sótt skal um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is, í síðasta lagi sunnudaginn 26. júní
næstkomandi. Umsóknir gilda í sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á rekstrarsviði bankans. Starfið er tímabundið til eins
árs með möguleika á fastráðningu. Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík.
Rekstrarsvið er fjölmennasta svið bankans. Sviðið annast rekstur og umsýslu eigna og lausafjármuna bankans,
öryggismál, innkaup, gerð rekstraráætlana og útgjaldaeftirlit. Sviðið annast einnig starfsmannahald bankans og
launamál og undir það heyra ýmis viðfangsefni sem lúta að innanhússþjónustu, s.s. umbrot og skjalahald.
Laust er til umsóknar starf fulltrúa í
móttöku Tollstjóra.
Hjá Tollstjóra starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks
sem hefur það að markmiði að veita góða og
skilvirka þjónustu og standa vörð um hagsmuni al-
mennings og atvinnulífs. Lögð er áhersla á símennt-
un starfsmanna, heilsueflingu og góðan aðbúnað.
Starfssvið:
• Móttaka viðskiptavina og gesta.
• Upplýsingagjöf.
• Móttaka pósts, símbréfa, boðsendinga og gagna.
• Skráning og afgreiðsla.
• Umsjón með afgreiðslusal.
• Aðstoð við framkvæmd þjónustukannana.
• Aðstoð við úrlausn verkefna á innheimtu- og
tollasviði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða annað sambærilegt nám
(eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms).
• Almenn færni í notkun helstu tölvukerfa við
skrifstofustörf.
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlanda-
máli og til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti.
• Þjónustuvitund og ríkur þjónustuvilji.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í starfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Rut
Benediktsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og gæða-
mála, í síma 560-0300.
Umsóknarfrestur er til 25. júní nk. Umsókn merkt
„fulltrúi í móttöku“ ásamt ferilskrá skal senda í
gegnum tölvupóst: starf@tollur.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að um-
sóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út.
sími: 511 1144