Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 64
6 matur
Maður hefur hitt ýmsa mjög skemmtilega karaktera og á vonandi bara eftir að
hitta fleiri í framtíðinni,“ segir
Guðmundur Ragnarsson, mat-
reiðslumaður og annar eigandi
veitingahússins Lauga-áss. Hann
hefur í starfi sínu verið viðloðandi
tökur á mörgum erlendum stór-
myndum hérlendis, Tomb Raider,
Batman Begins, Flags of Our
Fathers og fleiri, og eldað ofan í
stórstjörnur á borð við Angel-
inu Jolie, Christian Bale og Clint
Eastwood.
Guðmundur ber fræga fólkinu
einstaklega vel söguna og tekur
fram að allt sé þetta ósköp venju-
legt fólk inn við beinið. „Ég er nú
yfirleitt frekar ósýnilegur fyrir
því svona framan af, eða þar til
það smakkar á matnum mínum,“
segir hann brosandi og blikkar
blaðamann.
Þannig að erlendu gestirnir
kunna vel að meta matseldina?
„Mjög vel, og sumir hafa meira
að segja beðið mig um að koma
út að vinna fyrir sig. Reinout
Oerlemans, leikstjóri hollensku
þrívíddarmyndarinnar Nova
zembla, sem er eins konar Balt-
asar Kormákur Hollands, átti til
að mynda ekki orð af hrifningu
og spurði hvað ég væri eiginlega
að gera hér. Slík tilboð hafa
hins vegar ekki freistað
mín því hér finnst mér
langbest að vera. Ann-
ars væri ég fyrir löngu
farinn.“
Spurður hvort stjörn-
urnar geri miklar matar-
kröfur, svona í líkingu við
þær sem meðlimir hljómsveitar-
innar Eagles settu fram á dögun-
um, kannast Guðmundur ekki við
það. „Mér fannst þær heldur ekkert
yfirgengilegar. Það er bara verið
að halda uppi ákveðnum staðli. Svo
er ekkert nýnæmi að fræga fólk-
ið vilji hollan og ferskan mat. Það
er frekar regla en undantekning,“
segir hann og kveðst ávallt hafa
þá ósk að leiðarljósi. „Ég og mitt
fólk matreiðum lambakjöt, humar
og allar tegundir af fiski, útlend-
ingarnir eru vitlausir í hann þótt
sumir séu feimnir að smakka í
fyrstu. Allur matur er svo að sjálf-
sögðu búinn til á staðnum.“
Talið berst að framtíðar-
verkefnum og þá verður
Guðmundur þögull sem
gröfin. „Þegar ég tek að
mér ný verkefni er ég
bundinn algjörum trún-
aði og má því ekki fjalla
um þau með nokkrum
hætti fyrr en að þeim lokn-
um,“ segir hann en fæst hins
vegar til að ljóstra upp einu leynd-
armáli í sárabætur; uppskrift að
rétti sem stjörnurnar hreinlega
dýrka. „Þetta er gljáður lax með
mangó, límónu og myntupestó;
rosalega góður og auðvelt og fljót-
legt að elda hann á ferðalögum.
Ég hvet því sem flesta til að prófa
sjálfir!“ - rve
Fær stjörnur
Guðmundur hefur fengið atvinnutilboð
í Hollywood en honum þykir best að
vera heima á Íslandi.
Fræga fólkið vill ferskmeti og gljáði laxinn fellur í kramið. RÉTTABLAÐIÐ/GVA
GLJÁÐUR LAX MEÐ
MANGÓ, LÍMÓNU OG
MYNTU
800 g laxaflök (4 bitar)
1 stk. mangó saxað smátt
1 stk. límóna
fersk mynta rifin
niður / söxuð
salt og pipar
1 dl hvítvín
olía
Gljáið lax
í olíu á pönnu í
5 mínútur. Setjið
mangóbita og rifna
myntu yfir. Hellið hvítvíni yfir
og látið jafna sig í 5 mínútur
undir loki.
Kreistið límónu yfir þegar
laxinn er borinn fram.
KREMAÐ VILLISVEPPA-
BANKABYGG
200 g bankabygg
600 dl vatn – grænmetissoð
(notið grænmetisteninga í
vatnið)
30 g villisveppir, helst úr
íslenskri náttúru
2 dl rjómi
Sjóðið bankabygg í 20
mínútur í grænmetissoði
með villisveppunum. Setj-
ið rjóma í þegar bankabyggið
er orðið mjúkt og sjóðið í 5
mínútur.
Kryddið með salti og pipar
eftir smekk.
Berið fram með fersku sumar-
salati.
SANNKÖLLUÐ STJÖRNUMÁLTÍÐ
Fyrir 4
TIL SÍN Í MAT
Guðmundur Ragnarsson matreiðslumaður hefur
eldað ofan í ýmsar stjórstjörnur í gegnum tíðina.
Flestar kunna vel að meta matseld Guðmundar sem
hefur fengið ýmis spennandi tilboð frá Hollywood.
A
SUMARHÚSIÐ
& GARÐURINN
HEITASTA SPENNUBÓK
garðyrkjumannsins!
www.rit.is
„Árstíðirnar í garðinum“ er fimmta bókin í bókaflokknum Við ræktum, sem Sumarhúsið og garðurinn gefur út.
Höfundur er Vilmundur Kip Hansen garðyrkju- og þjóðfræðingur, einn þekktasti penni í garðyrkju á Íslandi.
Ljósmyndir Páls Jökuls Péturssonar úr íslenskum görðum prýða bókina. Páll hefur á undanförnum árum getið
sér gott orð fyrir myndir af plöntum og úr náttúru Íslands.
Bókin skiptist í fjóra meginkafla, vor, sumar, haust og vetur, og fjallar höfundur um verkin sem tengjast
árstíðunum. Leitast er við að gera bókina aðgengilega öllum þeim sem dreymir um að rækta garðinn sinn.
Í bókinni er fjallað um fjölda plantna, hvort sem um er að ræða sumarblóm, haustlauka, grænmeti, laukjurtir,
fjölda kryddtegunda, sígræn og lauffellandi tré og runna, úrval ávaxtatrjáa og berjarunna.
VIÐ RÆKTUM
Bókaklúbburinn Við ræktum var settur á laggirnar vorið
2005 þegar fyrsta bókin kom út, Garðurinn allt árið.
Árstíðirnar í garðinum er fimmta bókin í flokknum,
en einnig hafa komið út bækurnar Lauftré á Íslandi,
Barrtré á Íslandi og Matjurtir.
l Félagar í bókaklúbbnum fá bækurnar á betra verði.
Skráning í bókaklúbbinn er í síma 578 4800
eða á www.rit.is.
H
N
O
T
SS
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n