Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 70

Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 70
11. júní 2011 LAUGARDAGUR34 timamot@frettabladid.is Gagngerar endurbætur upp á tæpan milljarð króna hafa verið gerðar á húsnæði Hótel Loftleiða undanfarið, en auk nýs útlits fær hótelið nú nýtt nafn, Reykjavík Natura. „Í hönnun húsnæðisins höfðum við að leiðarljósi að endurspegla annars vegar þann tíma þegar hótelið var byggt árið 1966 og að hafa það vina- legt og íslenskt, og hins vegar nafn- breytinguna,“ segir Hildur Ómars- dóttir, markaðsstjóri hótelsins. Lögð var áhersla á að gera þessa nálgun við íslenska náttúru áþreifanlega með ýmum hætti. Til dæmis eru nýupp- gerð herbergin þematengd. „Þannig geta gestir valið milli þess að gista í jökla-, norðurljósa-, mosa-, jarðhita-, eldvirkni- og vatnaherbergjum,“ segir Hildur, en auk þess eru ný fjölskyldu- herbergi hótelsins skreytt teikningum Eggerts Péturssonar af flóru Íslands. Íslenskir listamenn fá stóran sess á hótelinu, en verkin voru valin af kost- gæfni. „Við erum í góðri samvinnu við íslenska listamenn og höfum fengið verk sem voru gerð sérstaklega í til- efni af endurbótunum,“ segir Hildur og nefnir listaverkið Blik eftir Rúrí Fannberg í gestamóttöku og skúlptúra eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur. Meðal annarra nýjunga á hótelinu má nefna veitingastaðinn Satt á jarð- hæð og Sóley Natura Spa í kjallaran- um auk þess sem gamla sundlaugin hefur verið algjörlega endurnýjuð. Þá hefur rekstur hótelsins verið umhverf- isvottaður. „Nýting hótelsins er mjög góð,“ segir Hildur ánægð, en á hverju ári gista um 50 þúsund einstaklingar á hótelinu í 220 herbergjum og gisti- nætur eru um 88 þúsund talsins. Níu- tíu prósent gesta hótelsins eru erlendir ferðamenn og á nafnabreyting hót- elsins einnig rætur að rekja til þess. Einnig er áætlað að byggja annað hótel við höfnina í Reykjavík, sem mun bera nafnið Reykjavík Marina. „Með nafn- breytingunni sköpum við þannig vett- vang fyrir fleiri hótel í keðjuna,“ segir Hildur. solveig@frettabladid.is HÓTEL LOFTLEIÐIR: ENDURBÆTT OG BREYTT Í REYKJAVÍK NATURA Náttúran er rauði þráðurinn Í GÖMLUM ANDA Reynt var að fanga anda þess tíma þegar hótelið var byggt árið 1966. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NOTALEGT Lögð var áhersla á að gera hótelið vinalegt og íslenskt. NÁTTÚRAN Íslenskt Drápuhlíðargrjót var notað til að gæða hótelið íslenskum anda. GESTAMÓTTAKA Hótel Loftleiðir, nú Reykjavík Natura, er vel nýtt. 50 þúsund gestir dvelja þar árlega í 220 herbergjum og gistinætur eru um 88 þúsund talsins. MARKAÐSSTJÓRI Íslensk náttúra er áþreifan- leg á hótelinu að sögn Hildar Ómarsdóttur. 73 Arnþór EA 16 kom með fullfermi af Íslandssíld til Neskaupstaðar þennan mánaðardag árið 1994 en síld úr þeim stofni hafði þá ekki verið landað á Íslandi í 27 ár. Arnþór EA 16, sem gerður var út frá Árskógssandi, var við veiðar um 210 sjómílur norðaustur af Langanesi og fékk tæp 300 tonn af Íslandssíld í tveimur köstum. Ingvar Guð- mundsson skipstjóri var bjartsýnn á framhaldið og hvatti aðra til að fara á miðin, þótt torfurnar sem hann hefði orðið var við væru ekki ýkja stórar. Síldin var stór og þótti í góðu ástandi miðað við árstíma, með um 20 prósenta fituinnihald. Mestallur aflinn fór þó í bræðslu en sýnishorn voru tekin til söltunar. Fleiri skip köstuðu á sömu slóðum í framhald- inu og fengu líka dágóðan afla. Heimild: timarit.is ÞETTA GERÐIST: 11. JÚNÍ 1994 Íslandssíld landað á ný eftir 27 ára hlé TRYGGVI GÍSLASON, fyrrverandi skólameistari, er 73 ára. „Algert frelsi er fullkomin ánauð nema sterkur sjálfsagi fylgi.“ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Hrefnu Júlíusdóttur sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 24. maí síðastliðinn. Sérstakar þakkir til heimilisfólks og starfsfólks Sunnuhlíðar í Kópavogi. Bjarkey Magnúsdóttir Jóhannes Kristjánsson Sólveig Sigurðardóttir Brynja Kristjánsdóttir Örn Bergsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Guðmundsson Höfða, Akranesi, áður til heimilis að Akursbraut 22, andaðist 8. júní. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 14. júní kl. 14. Grétar Bjarnason Þorgerður Þórdís Haraldsdóttir Viðar Bjarnason Ingibjörg Hulda Björnsdóttir Valur Bjarnason Sólrún Ósk Aðalsteinsdóttir og afabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Magnús Daníelsson fyrrverandi lögregluvarðstjóri, Strikinu 8, Garðabæ, lést á Landspítalanum Fossvogi, laugardaginn 4. júní. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ, þriðju- daginn 14. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Líknar- og hjálparsjóð Landssambands lögreglumanna. Elín Ringsted Guðmundur Ringsted Magnússon Þórunn Aldís Pétursdóttir Guðríður Kristín Magnúsdóttir Kristján G. Hálfdánarson Daníel Þorkell Magnússon Hrönn Magnúsdóttir Guðmundur Skúli Hartvigsson Geirlaug Magnúsdóttir Theodór Ásgeirsson Magnús Már Magnússon Sigríður Kristín Hafþórsdóttir afa- og langafabörn Innilegar þakkir fyrir allar þær fallegu og hlýlegu kveðjur sem okkur bárust vegna andláts Jóns Kr. Sólnes hæstaréttarlögmanns, Aðalstræti 72, Akureyri. Halla Elín Baldursdóttir Lilja Björk Sólnes Rawn Salenger Baldur Már Helgason Svanhildur Sigurðardóttir Jón Ragnar Sólnes Valgerður Sólnes Kristín Sólnes og barnabörn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.