Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 74
11. júní 2011 LAUGARDAGUR38
krakkar@frettabladid.is
38
Hvað er það skemmtilegasta við
að vera rithöfundur og hvað er
það leiðinlegasta? „Það skemmti-
legasta er að hitta áhugasama og
spurula lesendur, en það leiðin-
legasta er að geta ekki helgað sig
ritstörfum.“
Hver er uppáhaldssögupersónan
úr bókunum þínum? „Mér þykir
óskaplega vænt um allar persón-
urnar í bókinni Svalasta 7an og
framhaldsbókunum, en Guðbjörg
Guðrúnardóttir og Starkaður í
bókinni Allt hold er hey standa
mér næst.“
Hver þeirra er líkust þér sjálfum
þegar þú varst barn og ungling-
ur? „Ég tel að Kiddi í Tár, bros og
takkaskór sé líkastur mér, sem og
Jóel og Álfhildur í Þokunni.“
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera með þínum börnum?
„Mér þykir skemmtilegast að
spæla egg á hausnum á þeim og
krota á kinnarnar þeirra með
rauðum tússpenna.“
Kunna krakkarnir þínir að meta
bækurnar þínar? „Kolfinna,
fjórtán ára, uppgötvaði bæk-
urnar mínar í fyrra og sefur
með þær undir koddanum.
Yngri sonurinn, Þorlákur
Helgi tíu ára, ritstýrði bók-
inni Ertu guð, afi?
Er gaman að vera þú? „Það
er svo gaman að ég vildi að
það væru 48 klukkustundir
í sólarhringnum svo ég gæti
notið þess enn betur. Og
skrifað enn fleiri bækur.“
Hver er uppáhaldssetn-
ingin þín úr eigin bókum?
„Guð minn góður, ég meina
Jesús Kristur, hvernig á ég að
muna það?“
Hver eru áhugamál þín?
„Áhugamálin snúast fyrst og
fremst um að búa til sögur,
vera heilbrigður og gera góð-
verk.“
Hvaðan koma hugmynd-
irnar að sögunum? „Hug-
myndirnar koma af himn-
um ofan á hverjum degi og
allar nætur, endalaust.“
Áttu þér uppáhaldsrit-
höfund? „Það fer allt eftir því
hvernig mér líður hverju sinni.“
Segðu okkur þrjá áhugaverða
hluti um þig sem enginn veit. „Ef
enginn veit það er það vegna þess
að enginn má vita það. En ég get
til dæmis staðið á öðrum fæti og
ropað. Ég elska að syngja. Og get
sofið undir stýri á rauðu ljósi.“
Saknarðu stundum sögupersóna
þinna og grætur með þeim? „Ég
sakna þeirra oft, sérstaklega þess
að hafa sagt skilið við krakkana í
Þokunni. Langar að halda áfram
að spinna með þeim, en aðrar
persónur eru frekari. Ég grét
heilmikið með Starkaði þegar
hann var að kveðja Guðbjörgu í
Allt hold er hey.“
Þú skrifar mikið um tilveru
unglinga. Fékkst þú ung-
lingaveikina? „Er ung-
lingaveiki að skella
hurðum, fá bólur,
nenna ekki að
læra og æla eftir
sælgætisát? Jú,
vitan lega, en mín
unglingaveiki í
Ólafsvík var að
vinna í fiski tólf
tíma á dag og
spila fótbolta
hina tólf tím-
ana.“
Hvers vegna
verða börn í
sveit, afar og
ömmur, fótbolti
og dularfullir
atburðir þér svo
oft að yrkisefni?
„Vegna þess að ég
var einu sinni afi
minn og afturganga,
bjó í París fyrir 200
árum og flýg út úr lík-
amanum á nóttunni.
Mér þykir gaman að
deila því með öðrum.“
Hvað ætlarðu að gera í
sumar? „Í sumar ætla
ég að skrifa eins og
brjálæðingur, hér og
þar um landið, skemmta
mér með fjölskyldunni en svo
telja á mér tærnar í haust.“
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Einu sinni voru tvær appels-
ínur í göngutúr. Skyndilega
datt önnur appelsínan í læk.
Þá sagði hin appelsínan:
„Fljót, skerðu þig í báta!“
Hvað er rautt og svart inni í
ískáp?
Svar: Tómatur í leðurjakka!
Af hverju hætti tannlæknirinn
störfum?
Svar: Hann reif kjaft!
Mamma: „Af hverju er litla
systir þín að gráta?“
Nonni: „Vegna þess að ég
vildi ekki gefa henni af
namminu mínu.“
Mamma: „Er nammið hennar
búið?“
Nonni: „Já, hún var líka
hágrátandi á meðan ég borð-
aði það.“
FJARAN OG HAFIÐ er vefsíða sem snýst um lífverur í fjörum og hafinu.
Slóðin er http://iis.nams.is/hafid/
VAR EITT SINN AFTURGANGA
Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson er efstur á vinsældalista íslenskra barna
og unglinga fyrir spennandi bækur sínar og hlaut fyrir skemmstu Bókaverðlaun
barnanna 2010 fyrir bók sína Ertu guð, afi?
Guð minn
góður, ég meina
Jesús Kristur, hvernig
á ég að muna það?
5 dl hveiti
2 dl ylvolgt vatn
3 tsk. þurrger
1/2 tsk. salt
2 msk. ólífuolía
5 stk. pylsur
Blandið hveiti, geri
og salti saman í skál.
Bætið ólífuolíu og
ylvolgu vatni saman
við. Notið sleif til að
blanda hráefnunum
varlega saman í skál-
inni og hnoðið það
svo vel á hreinu borði.
Setjið deigið aftur í
skálina, hreint visku-
stykki yfir og látið það
hefast í 30 mínútur.
Fáið aðstoð ein-
hvers fullorðins við að
kveikja á bakaraofn-
inum, hann á að vera
180° heitur.
Takið deigið úr skál-
inni og fletjið það út
á borðinu. Ekki spara
hveitið á kökukeflið
og borðið til að deigið
festist ekki við. Fletjið
deigið þunnt út. Notið
hníf og skerið út 10
stykki tígla. Gott er að
miða við að hver tígull
sé sirka á stærð við
lófa. Skerið pylsurnar í
tvennt og leggið einn
pylsubita í miðju hvers
tíguls. Leggið deig-
ið saman þannig að
pylsuendarnir standi
út. Raðið bitunum
á bökunarpappír og
setjið á bökunarplötu.
Bakið í miðjum ofni í
10-12 mínútur.
Latar pylsur í teppi
Við þökkum öllum sem komu með tillögur að nafni á
skvettulegu kúna kærlega fyrir þátttökuna.
Skvetta skal hún heita
www.ms.is